Samfélagsvæðum Landsbankann

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
landsbankinn.jpg
Auglýsing

Dög­un, sam­tök um rétt­læti, sann­girni og lýð­ræði, hefur haft á stefnu­skrá sinni að breyta áherslum í banka­kerfi lands­manna. Segja má að staðan sé þannig að það sé í raun einn banki sem ræður um 90% banka­mark­að­ar­ins, LARÍS! Því þegar grannt er skoðað eru ekki mik­ill munur á Lands­bank­an­um, Arion og Íslands­banka. Í orði ríkir sam­keppni á milli þeirra, en þeir eru meira eða minna allir að bjóða það sama; sömu lánin á sömu okur­vöxt­un­um!

Þær hug­myndir sem Dögun var fyrst til að setja inn í stefnu­skrá og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur nú gert að sínu máli snýr að því að gera Lands­banka Íslands, þar sem íslenska ríkið á 98 pró­sent, að svoköll­uðum ,,sam­fé­lags­banka.“ Kjarn­inn í þeirri hug­mynd er að sam­fé­lags­banki sé nær fólk­inu og stundi fyrst og fremst starf­semi sem miðar að því að þjóna ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum og þeirra dag­legu þörf­um. Sam­fé­lags­banki er ekki fjár­fest­inga­banki í leið­inni og stundar því ekki fjár­glæfra­starf­semi, sem síðar getur komið niður á við­skipta­vin­um. Hagn­að­ur­inn sem yrði af starf­sem­inni myndi svo renna til bank­ans aftur (t.d. til að lækka vexti við­skipta­vina) eða beinna sam­fé­lags­legra verk­efna.

Hvaða hug­mynd er úrelt?



Þess­ari hug­mynd hefur Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, lýst sem úreltri, en senni­lega mis­skilur hann hug­tak­ið, því af orðum hans má ráða að hann sjái fyrir sér banka sem miðar að því að reka sjálfan sig með tapi. Það er ekki rétt. Öll fyr­ir­tæki þurfa að reka sig plús­megin við núllið, líka sam­fé­lags­bankar, annar fara þessi fyr­ir­tæki á haus­inn. Spurn­ingin er hins­veg­ar: Hvað á að gera við hagn­að­inn? Á hann að renna beint í vasa ein­hverra ein­stak­linga eða til sam­fé­lags­ins alls?

Fjár­mál­ráð­herra hefur þegar ákveðið að fela Banka­sýslu rík­is­ins það verk­efni að und­ir­búa sölu á hluta af því sem ríkið á í Lands­bank­an­um. Um er að ræða um 30% eign­ar­hlut sem stefnt er að því að selja. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er á móti þess­ari hug­mynd og vill að bank­inn verði sam­fé­lags­banki og tekur þar með undir sjón­ar­mið Dög­unar í þessu máli.

Auglýsing

Ný stefna



Fjár­mála­ráð­herra hefur nú ein­stakt tæki­færi til inn­leið­ingu á nýrri stefnu í banka­mál­um, sem setur almanna­hags­muni og þarfir sam­fé­lags­ins í for­gang. Það er: Sam­fé­lag­s­væð­ing! Hann er for­maður flokks sem einu sinni hafði slag­orðið ,,stétt með stétt.“ Hann getur stuðlað að því að stofn­setja banka í anda þessa slag­orðs. Það sem er raun­veru­lega úrelt er hin klass­íska einka­væð­ing, þar sem ein­hverjir örfáir gleypa góðu bit­ana og stinga fúlgum í eigin vasa. Íslend­ingar hafa slæma reynslu af því sem heitir einka­væð­ing og orðið sjálft vekur upp vondar minn­ing­ar. Í könnun sem MMR gerði í vor kom einnig fram að meiri­hluti lands­manna er á móti einka­væð­ingu Lands­bank­ans, sem og ann­arra lyk­il­stofn­ana rík­is­ins. Þarf ekki að taka til­lit til þessa?

Höf­undur er stjórn­mála­fræð­ingur og gjald­keri Dög­un­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None