Samskipti ríkis og sveitarfélaga

Eiríkur Björn Björgvinsson segir að ríkið sé sveitarfélögunum mikilvægt og sveitarfélögin ríkinu mikilvæg. Þar eigi að ríkja jafnræði enda um að ræða tvö jafngild stjórnsýslustig.

Auglýsing

Stundum var mér öllum lokið þegar ég í störfum mínum sem bæj­ar­stjóri, bæði fyrir austan og norð­an, var að eiga við rík­is­valdið vegna samn­inga um mik­il­væg mál­efni fyrir mínar heima­byggð­ir.

Sveit­ar­fé­lögin hafa gjarnan viljað taka að sér verk­efni fyrir ríkið enda nær­sam­fé­lögin oft betur til þess fallin að sinna þjón­ustu við íbúa sína. Ríkið hefur að sama skapi séð sér ákveð­inn hag í því að semja við sveit­ar­fé­lög­in. Hér má sem dæmi nefna grunn­skól­ana sem voru, með sam­komu­lagi árið 1996, fluttir undir stjórn sveit­ar­fé­lag­anna. Einnig falla hér undir samn­ingar um rekstur hjúkr­un­ar­heim­ila, samn­ingar um menn­ing­ar­mál, o.fl.

Ég hef ekki tölu á hversu marga fundi ég hef setið þar sem tek­ist hefur verið á um kostnað við rekstur og mis­mun­andi útreikn­inga. Ég hef heldur ekki tölu á hversu mörg sím­töl ég hef átt og hversu marga tölvu­pósta ég hef sent end­ur­tekið til þess að ýta á eftir að samn­ing­ar, sem voru að renna út eða voru þegar útrunn­ir, yrðu end­ur­nýj­að­ir. Þjarkið var of stór hluti vinnu minn­ar. Alltaf var tek­ist á um krónur og aura og sveit­ar­fé­lögin á end­anum nán­ast neydd að samn­inga­borð­inu.

Auglýsing

Íbúar lands­byggð­anna eiga allt undir því að ríkið leggi til fjár­magn í efl­ingu byggð­anna, m.a. með því að semja við sveit­ar­fé­lögin um ákveðna þjón­ustu og stuðli þar með að fjöl­breyttum störfum um allt land og við allra hæfi. Það skiptir byggð­irnar máli að reknir séu háskól­ar, hjúkr­un­ar­heim­ili, heilsu­gæsl­ur, fram­halds­skólar og menn­ing­ar­mið­stöðv­ar. Það skiptir líka máli að sam­göngur séu greiðar og örugg­ar, göng séu grafin og atvinnu­svæði stækk­uð.

Ríkið er sveit­ar­fé­lög­unum mik­il­vægt og sveit­ar­fé­lögin eru rík­inu mik­il­væg. Þar á að ríkja jafn­ræði enda um að ræða tvö jafn­gild stjórn­sýslu­stig. Það er því aðkallandi að skapa sam­tals­grund­völl byggðan á virð­ingu rík­is­valds­ins fyrir reynslu og þekk­ingu sveit­ar­fé­lag­anna og íbúa þeirra og láta af því við­horfi að sveit­ar­fé­lögin séu eins og „suð­andi barn í búð“ þegar kemur að samn­inga­gerð­inni. Ég full­yrði að sveit­ar­fé­lögin hafi metnað til að vinna gott starf og veita góða þjón­ustu. Sveit­ar­fé­lögin eru ekki að kalla eftir ölm­usu frá rík­inu, þau eru að kalla eftir því að á þau sé hlust­að. Þau eru að kalla eftir sann­girni.

Hlotn­ist mér sá heiður að verða þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis mun ég, með þessa reynslu mína í fartesk­inu, leggja mig fram um að bæta sam­skipti ríkis og sveit­ar­fé­laga svo þau byggi á sann­girni, trausti og jafn­rétt­is­grunni.

Höf­undur skipar 1. sæti Við­reisnar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar