Það er næg eftirspurn eftir stjórnmálaafli sem elur á útlendingaandúð

Althingi.framan.jpg
Auglýsing

Daður íslenskra stjórn­mála­afla við útlend­inga­andúð og hræðslu við hið óþekkta hefur verið fyr­ir­ferða­mikið frétta­mál annað veifið und­an­farin miss­eri. Frjáls­lyndi flokk­ur­inn reyndi á sínum tíma að not­færa sér slíkt daður fyrir þing­kosn­ing­arnar 2007 án þess að það skil­aði þeim öðrum árangri en að flokk­ur­inn logn­að­ist út af skömmu síð­ar. Fram­sókn og flug­vall­ar­vinum tókst betur til í aðdrag­anda sveita­stjórn­ar­kosn­ing­anna 2014 þegar fylgi fram­boðs­ins fór úr undir þremur pró­sentum upp í 10,5 pró­sent á nokkrum dögum eftir að moskumálið svo­kall­aða komst í hámæli.

Sá árangur sem daðrið við útlend­inga­andúð­ina skil­aði hefur vakið önnur stjórn­mála­öfl til umhugs­unar um hvort þetta sé pottur sem vert sé að hræra í til að ná í atkvæði. Hóf­legir leið­arar um harð­ari inn­flytj­enda­stefnu hafa verið skrif­aðir í Morg­un­blaðið um málið og Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, stjórn­mála­fræði­pró­fessor og fyrrum áhrifa­maður innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur ítrekað opin­berað skoð­anir sínar um hert­ari inn­flytj­enda­stefnu. Hann setti síð­ast inn Face­book-­stöðu­upp­færslu um liðna helgi þar sem stóð: „Málið er ein­falt: Við eigum að opna landið fyrir dug­legu hæfi­leika­fólki (eins og gyð­ing­arnir voru til dæmis fyrir stríð), sem vill vinna í eigin þágu og ann­arra. Okkur er það líka skylt skv. alþjóða­samn­ing­um. En við eigum að loka land­inu fyrir afbrota­mönn­um, bóta­leit­end­um, áreitnum öfga­mönnum og smit­ber­um. Eng­inn getur bannað okkur það.“

Þá er frægt þegar Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, viðr­aði hug­myndir sínar um að bak­grunnur allra múslima á Íslandi yrði kann­aður vegna þess að hann væri hræddur um að þeir væru hryðju­verka­menn. For­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og ung­liðar hans, brugð­ust hart við og skoð­unin fékk engar und­ir­tekt­ir. Það virð­ast því ekki miklar líkur á því að Sjálf­stæð­is­flokkur Bjarna Bene­dikts­sonar muni hræra í útlend­inga­andúð­ar­pott­inum þótt gömlum valda­öflum innan flokks­ins hugn­ist það aug­ljós­lega.

Auglýsing

Umræðan um útlend­inga­andúð hefur blossað upp á ný und­an­farna daga eftir frétta­flutn­ing af mögu­lega HIV-smit­uðum flótta­manni sem mögu­lega hefur smitað konur af veirunni. Í þeirri umræðu hefur komið í ljós að nóg er til af fólki sem er meira en til­búið að kjósa stjórn­mála­afl sem berst fyrir harð­ari inn­flytj­enda­stefnu.

Einn staður þar sem slíkar yfir­lýs­ingar er að finna er þráður á Face­book-­síðu Gúst­afs Níels­sonar, manns sem Fram­sókn og flug­vall­ar­vinir skip­uðu á sínum tíma í mann­réttinda­ráð Reykja­vík­ur­borg­ar, en sú skipun var síðan dregin til baka eftir að skrif hans um Islam og sam­kyn­hneigða voru dregin upp á yfir­borð­ið.









Fóst­ur­lands­ins Freyja lætur ekki að sér hæða. Auð­vitað er það partur af nútíma kven­frelsi að mega girða niðrum sig fyr­ir­...

Posted by Gústaf Níels­son on Fri­day, July 24, 2015







Í stöðu­upp­færslu Gúst­afs er látið að því liggja að mál flótta­manns­ins sýni þeim sem hafi gagn­rýnt mál­flutn­ing hans í inn­flytj­enda­málum í gegnum tíð­ina að hann hafi rétt fyrir sér. Og ummælin sem fylgja frétt­inni sýna að það er alls ekki skortur á fólki sem deilir skoð­unum hans.

gustaf1

gustaf2

gustaf3

gustaf4

gustaf5

Það verður áhuga­vert hvort eitt­hvert stjórn­mála­afl ákveði að svala þess­ari eft­ir­spurn í aðdrag­anda næstu þing­kosn­inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None