Við hvaða gengi ætli sé miðað?

14309725868_8cccec7146_b.jpg
Auglýsing

Stjórn­stöð ferða­mála verður sett á lagg­irnar sam­kvæmt sam­komu­lagi sem kynnt var í gær, en Sam­band íslenskra sveit­ar­fé­laga, Sam­tök ferða­þjón­ust­unnar og rík­is­stjórnin hafa gert það með sér. Stjórn­stöð­in mun starfa til árs­ins 2020 en þá er gert ráð fyrir að gjald­eyr­is­tekjur Íslands af ferða­þjón­ustu geti numið allt að 620 millj­örð­um.

Á þessu ári er gert ráð fyrir að gjald­eyr­is­tekj­urnar verði um 350 millj­arðar af ferða­þjón­ustu, og heild­ar­gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­búss­ins um 1.140 millj­arð­ar.

Þetta eru stórar  og miklar tölur sem breyta íslenska hag­kerf­inu veru­lega, það er ef það mun ganga eftir að gjald­eyr­is­tekjur af ferða­þjón­ustu muni verða 620 millj­arðar króna á ári eftir ein­ungis fimm ár. Sé horft til vaxtar ferða­þjón­ust­unnar að und­an­förnu, þá er það ekki óvar­lega áætl­að, en nú þegar hafa komið um milljón ferða­menn til lands­ins á árinu og gert ráð fyrir að þeir verði rúm­lega 1,2 millj­ón­ir, eða um tutt­ugu pró­sent fleiri en í fyrra.

Auglýsing

Nú er sá sem þetta ritar ekki hag­fræð­ing­ur. En eitt­hvað segir manni, að þessi mikla inn­flæð­is­aukn­ing á fjár­magni í litla íslenska hag­kerf­ið, geti orsakað ris á gengi krón­unnar og hún styrkst veru­lega frá því sem nú er. Við hvaða gengi á almennt að miða þegar kemur að því að meta fram­tíð­ar­tekj­urn­ar? Það er mikið gleði­efni, hversu mik­ill kraftur er í ferða­þjónst­unni, en það má ekki gleyma því, að eftir hrunið varð Ísland næstum helm­ingi ódýr­ari áfanga­staður mælt í erlendri  mynt en það var fyr­ir. Ef krónan styrk­ist mik­ið, þá getur það dregið úr vin­sældum lands­ins. Gengið hlýtur því að vera mik­ill áhættu­þáttur í þessum miklu vaxt­ar­á­form­um.

Hörður Þór­halls­son, fram­kvæmda­stjóri nýrrar stjórn­stöðvar ferða­mála, mun von­andi leggj­ast yfir þessa stöðu sem upp er kom­in, og reyna að finna út hvernig helstu áhættu­þættir liggja í ferða­þjón­ust­unni, þegar kemur að gengi krón­unn­ar. Spor sög­unnar hræða þegar kemur að því að ganga hratt um gleð­innar dyr, og halda að hér sé allt best í heimi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None