Við þurfum (ekki) að velja

flóttamenn serbía
Auglýsing

Auð­vitað viljum við taka á móti flótta­mönnum en við verðum að átta okkur á einu. Ef við opnum faðm­inn fyrir öllum þeim sem hingað vilja koma þá hrynur heil­brigð­is­kerf­ið. Hver á að borga undir öll veiku flótta­manna­börn­in? Við þurfum fyrst að lækna íslensk börn.

Ég vona að flestum ykkar hafi svelgst á kaff­inu við þennan lest­ur. Þessi mál­flutn­ingur gefur það nefni­lega í skyn að útlend­ingar séu ann­ars flokks. Hann málar mynd af flótta­mönnum sem óæski­lega ógn við heil­brigð­is­kerfið okk­ar. Eins og við þurfum að velja á milli þess hvort við aðstoðum flótta­menn eða Íslend­inga. Þetta er til­raun til þess að skapa átök á milli tveggja við­kvæmra hópa í sam­fé­lag­inu, flótta­manna ann­ars vegar og fólks sem þarfn­ast aðstoðar heil­brigð­is­kerf­is­ins hins veg­ar.

Sem betur fer hefur þessi mál­flutn­ingur hingað til ein­skorð­ast við kommenta­kerfið og síma­tíma Útvarps sögu. Sví­þjóð­ar­demókrat­ar, Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn og Sannir Finnar hafa haldið þessum mál­flutn­ingi á lofti á norð­ur­löndum en hann hefur ekki áður heyrst frá stjórn­mála­mönnum hér­lend­is. Það breytt­ist síð­ast­lið­inn föstu­dag, þegar þing­menn­irnir Brynjar Níels­son (Sjálf­stæð­is­flokki) og Katrín Júl­í­us­dóttir (Sam­fylk­ingu) tók­ust á í Morg­un­út­varpi Rásar tvö. Til­efni umræð­unnar var mál albönsku fjöl­skyldn­anna tveggja sem sendar voru úr landi ásamt öðrum hæl­is­leit­endum í síð­ustu viku. Um málið sagði Brynjar: „Hvernig halda menn að kerfið verði ef við erum bara með opinn faðm­inn fyrir hverjum sem er. Þá verður ekk­ert kerfi og það verður heldur ekk­ert heil­brigð­is­kerfi. Ég segi eins og for­set­inn; þetta er barna­leg ein­feldn­i.”

Auglýsing

Það er áhuga­vert að Brynjar Níels­son telji flótta­menn ógna íslensku heil­brigð­is­kerfi. Sýr­lensku flótta­menn­irnir 55 eru ekki einu sinni komnir til lands­ins en samt virð­ist rík­is­stjórn Brynjars á góðri leið með að rústa heil­brigð­is­kerf­inu ein og óstudd. Getur verið að stærsta ógnin við heil­brigð­is­kerfið sé ekki þolendur stríðs og ofsókna sem hér fá skjól heldur rík­is­stjórn Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks?

Það er ekki barna­leg ein­feldni að halda að við getum gert bæði í einu, veitt stríðs­hrjáðum flótta­mönnum skjól og rekið almenni­legt heil­brigð­is­kerfi. Við getum aukið aðstoð við flótta­menn, við getum bætt kjör öryrkja og aldr­aðra og við getum tryggt Land­spít­al­anum nauð­syn­legt fjár­magn. Þá getum við bætt sál­fræði­þjón­ustu, barist gegn kyn­bundnu ofbeldi og tryggt öllum jafnan rétt til mennt­un­ar. Allt þetta getum við gert. Um þessi mál þurfum við ekki að velja.

Mik­il­væg­asta val okkar mun eiga sér stað í kjör­klef­anum vorið 2017. Þá fáum við tæki­færi til að hafna mál­flutn­ingi Brynjars Níels­sonar og velja mann­úð­legri stefnu.

Höf­undur er ungur jafn­að­ar­mað­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None