Viljum við hrekja barnafólk úr landi?

Árni Páll Árnason
13980550081_b61cc1413a_b.jpg
Auglýsing

Barna­fjöl­skyldum og ungu fólki á leigu­mark­aði eru send skýr skila­boð í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2016. Þau geta farið og búið við marg­falt meira öryggi í nágranna­löndum okk­ar. Ekk­ert á að gera til að halda í þennan hóp eða reyna að laða þá heim sem þegar eru farn­ir. Sam­keppni um mannauð­inn er grimm og eina leiðin til að stand­ast hana er gera ungu fólki kleyft að byggja sér fram­tíð hér á landi.

Barna­bætur byrja áfram að skerð­ast við 200 þús­und króna markið og hjón með eitt barn og tekjur yfir 410 þús­und á mán­uði fá engar barna­bæt­ur. Barna­bæt­urnar eru langt frá því að fylgja verð­lags­þróun síð­ustu ára. Fæð­ing­ar­or­lofið verður í sömu lægð og það var þegar dýpsta efna­hag­skreppan gekk yfir, engar verð­lags­hækk­anir á greiðslu­þaki og engin leng­ing. Áfram á að úti­loka 25 ára og eldri frá fram­halds­skól­unum án þess að bjóða sam­bæri­legan val­kost í stað­inn. Fólki er beint í frum­greina­nám þar sem há skóla­gjöld eru inn­heimt.

Auglýsing


Þegar litið er svo undir glans­mynd­ina um 2,6 millj­arða fram­lag til hús­næð­is­mála kemur í ljós að fjár­magna á mála­flokk­inn að stærstum hluta með því að ýta með­al­tekju­fólki út úr vaxta­bóta­kerf­inu. Fryst­ing tekju­við­miða, ásamt með hækk­andi launum og lækk­andi skulda­stöðu heim­il­anna mun lækka útgjöld rík­is­ins til vaxta­bóta um 1.500 millj­ón­ir. Allir þeir sem tekið hafa lán frá hruni hafa reiknað með vaxta­bótum til að standa undir greiðslu­byrði. Þeim er nú ýtt út úr því stuðn­ings­kerfi. Var ein­hver að tala um for­sendu­brest?



Ungt fólk á leigu­mark­aði getur ekki keypt og fest­ist margt hvert í fátækt­ar­gildru vegna hárrar leigu og getur ekki sparað fyrir útborgun í íbúð. Rík­is­stjórnin hefur ekki efnt lof­orð um að hækka húsa­leigu­bætur um 400 millj­ónir króna til að mæta nei­kvæðum áhrifum af hærri mat­ar­skatti. Nýtt fram­lag rík­is­ins til að leysa hús­næð­is­vand­ann eru 700 millj­ónir króna þegar allt er tekið sam­an. Sú upp­hæð dugar til að kaupa íbúðir í einum stiga­gangi.



Við í Sam­fylk­ing­unni viljum stöðva flótt­ann frá land­inu og laða fólkið okkar heim. Til þess verða að verða til þekk­ing­ar­störf á Íslandi, sem skila sam­bæri­legum tekjum og í nágranna­lönd­un­um. En það þarf líka að vera jafn tryggt umhverfi fyrir ungt fólk hér og í nágranna­lönd­un­um. Ef hús­næði er hér dýrt og óör­uggt og opin­ber stuðn­ingur við barna­fjöl­skyldur miklu minni en í nágranna­löndum mun flótt­inn halda áfram. Við verðum að snúa þess­ari þróun við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None