Er árangur ríkisstjórnarinnar sögulega lélegur?

Kjarninn skoðaði fjölda þingmála frá ríkisstjórnum 20 ár aftur í tímann í tilefni orðaskipta forsætisráðherra og þingmanns Bjartrar framtíðar.

alþingi þing
Auglýsing

Bryn­hildur Pét­urs­dótt­ir, þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar, sagði á þingi á mánu­dag að henni þætti árangur rík­is­stjórn­ar­innar mjög lélegur þegar kæmi að fram­lagn­ingu þing­mála. Aðeins hefðu verið lögð fram 45 frum­vörp og 11 þings­á­lykt­un­ar­til­lög­ur, sem væru slá­andi töl­ur. „Ég hlýt að spyrja hvort ráð­herrar í þess­ari rík­is­stjórn séu starfi sínu vaxnir og hvort hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra sem á að stýra rík­is­stjórn­inni sé nógu góður verk­stjóri.“ 

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra svar­aði því til að töl­urnar ættu nú ekki að vera slá­andi „ef hátt­virtur þing­maður hefur fylgst með sam­bæri­legum tölum und­an­farin ár, ef ekki ára­tug­i.“ Hann sagði jafn­framt að rík­is­stjórnin ein­setti sér að vinna hlut­ina vel og gera færri en betri breyt­ing­ar. Hann sagði rík­is­stjórn­ina kynna „lista yfir öll þau mál sem við sjáum fyrir okkur að gætu komið fram“ og átti þar við þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Slík skrá er alltaf lögð fram yfir mál sem rík­is­stjórn hyggst leggja fram á hverju þingi. Á þing­mála­skránni fyrir þetta þing eru 184 mál. 

Bryn­hildur spurði þá til hvers þing­mála­skráin væri og hvort hún væri óska­listi yfir mál sem gaman væri að leggja fram ef hugs­an­lega væri tími til þess. Hún sagði árang­ur­inn mjög léleg­an. „Ég held að ég fari rétt með að þetta er sögu­lega léleg­t,“ sagði Bryn­hildur í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í þing­in­u. 

Auglýsing

Hvernig er sam­an­burð­ur­inn? 

Bryn­hildur er ekki sú fyrsta til þess að vekja athygli á því að fá mál hafi komið inn til Alþing­is. Eins og Kjarn­inn greindi frá í síð­asta mán­uði höfðu bæði stjórn­ar­and­stæð­ingar og stjórn­ar­liðar vakið máls á því að málin væru fá. Þetta var í lok nóv­em­ber og þá hafði stjórnin aðeins lagt fram 25 frum­vörp. Þar af voru 15 end­ur­flutt, þrjú voru EES frum­vörp og 2 voru vegna alþjóð­legra sátt­mála. 

En í til­efni þess­ara orða­skipta Bryn­hildar og Sig­mundar ákvað Kjarn­inn að kanna málið á ný. Er árangur rík­is­stjórn­ar­innar sögu­lega lélegur eða eru töl­urnar ekk­ert slá­andi ef litið er til und­an­far­inna ára eða ára­tuga? 

Þegar litið er til síð­ustu 20 ára sést að aðeins tvisvar hefur rík­is­stjórn lagt fram jafnfá eða færri frum­vörp á þessum tíma árs, það er 9. des­em­ber. Rík­is­stjórnin hafði lagt fram 45 mál þann 9. des­em­ber árið 2003, jafn­mörg og hafa verið lögð fram í ár, og hru­nárið 2008 voru frum­vörpin á þessum tíma 44 tals­ins. Þegar þessi sam­an­burður er gerður verður þó að hafa í huga að allt fram til haustins 2012 var Alþingi ekki sett fyrr en í byrjun októ­ber, en frá 2012 hefur það verið sett snemma í sept­em­ber. 

Með­al­tal stjórn­ar­frum­varpa frá upp­hafi þings og til 9. des­em­ber hvert ár er 58,85 frum­vörp. Rík­is­stjórnin er því vel undir með­al­tali síð­ustu 20 ára. 

Þegar fjöldi þings­á­lykt­ana­til­lagna frá rík­is­stjórnum til og með 9. des­em­ber hvert ár und­an­farin 20 ár er skoð­aður kemur aftur á móti í ljós að þings­á­lykt­anir frá rík­is­stjórnum hafa oft­ast verið færri á þessum tíma árs. Með­al­talið fyrir fjölda þings­á­lykt­ana frá rík­is­stjórn síð­ustu 20 þing er 6,25 til­lög­ur, en í ár hefur rík­is­stjórnin lagt fram 11. 

Þegar frum­vörp og þings­á­lykt­un­ar­til­lögur rík­is­stjórna eru tekin saman kemur í ljós að fjórum sinnum á síð­ustu 20 árum hefur rík­is­stjórn lagt fram færri mál til og með 9. des­em­ber. Árið 2008 voru 49 mál lögð fram á þessum tíma, 50 árið 2004 og 51 árið 2003. 53 mál höfðu verið lögð fram af rík­is­stjórn árið 2001. Í ár hafa verið lögð fram 56 mál. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None