Tekjur KSÍ tvöfaldast í ár

Knattspyrnusamband Ísland mun velta 2,3 milljörðum króna í ár. Þrátt fyrir að kostnaðarsamt verði að taka þátt á EM í Frakklandi mun sambandið skila 600 milljóna hagnaði, eftir að hafa greitt yfir 400 milljónir til aðildarfélaga sinna.

Fótbolti Ísland
Auglýsing

Tekjur Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) munu tvö­fald­ast á ár­inu 2016. Í fyrra voru þær 1.112 millj­ónir króna en áætlað er að þær verð­i 2.263 millj­ónir króna á þessu ári. Gjöld sam­bands­ins munu einnig aukast mikið á yf­ir­stand­andi ári, vegna þátt­töku íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu í Evr­ópu­mót­inu í Frakk­landi næsta sum­ar. Áætlað er að gjöldin verði 1.663 millj­ón­ir króna í ár en þau voru 956 millj­ónir króna í fyrra. Það breytir því ekki að nóg verður eftir í kass­anum hjá KSÍ þeg­ar ­rekstr­ar­árið verður liðið og mótið í Frakk­landi búið. Áætl­aður hagn­að­ur­ ­sam­bands­ins er 600 millj­ónir króna á árinu. Það er næstum fjórum sinnum meiri hagn­aður en KSÍ skil­aði í ár. Þetta kemur fram í fjár­hags­á­ætlun KSÍ fyrir árið 2016 sem birt var í gær.

Aðild­ar­fé­lög KSÍ munu njóta góðs af þeirri miklu búbót sem þátt­takan á EM í Frakk­landi er fyrir efna­hag íslenskrar knatt­spyrnu. Styrkir og fram­lög til aðild­ar­fé­laga KSÍ eru áætl­aðir 413 millj­ónir króna á árinu 2016, en voru 147 millj­ónir króna í fyrra. Það er mik­ill fjár­hags­legur upp­gang­ur framundan í íslenskri knatt­spyrnu.

Næstum níu af hverjum tíu krónum koma frá UEFA

Í áætl­un­inni segir að styrkir og fram­lög til KSÍ, sem vor­u 584 millj­ónir króna árið 2015, verði 1.725 millj­ónir króna á árinu 2016. Þau munu því næstum þre­fald­ast. Ástæðan er ein­fald­lega árangur karla­lands­liðs­ins og vera þess á loka móti lands­liða í fyrsta sinn á kom­andi sumri. Aðrar tekj­ur, svo sem sjón­varps­réttur og tekjur af lands­leikjum munu að mestu standa í stað á milli ára. Alls falla 76 pró­sent allra tekna KSÍ til vegna styrkja og fram­laga.

Auglýsing

Það hefur reynst heldur betur fjárhagslega gjöfult fyrir Ísland að komast á EM í Frakklandi.Lang­hæsti styrk­ur­inn, alls 1.506 millj­ónir króna, kemur frá­ knatt­spyrnu­sam­bandi Evr­ópu (UEFA). Styrkir frá sam­band­inu fara úr 356 millj­ón­um króna árið 2015 og fara því lang­leið­ina við að fimm­fald­ast vegna þátt­töku ­ís­lenska karla­lands­liðs­ins á EM í Frakk­landi í sum­ar. Styrkir UEFA eru heil 87,3 pró­sent af öllum styrkjum og fram­lögum sem KSÍ fær á næsta ári.

Stærsti kostn­að­ar­liður yfir­stand­andi árs er A-lands­lið karla, en kostn­aður vegna þess er áætl­aður 809 millj­ónir króna. Hann var 228 millj­ónir króna í fyrra og því ljóst að það kostar skild­ing­inn að taka þátt í loka­móti. Kostn­aður við rekstur A-lands­liðs kvenna eykst líka umtals­vert á þessu ári. Áætl­anir gera ráð fyrir að hann verði 114 millj­ónir króna, sem er næstum tvisvar sinnum meira en þær 59 millj­ónir króna sem fóru í hann á árin­u 2015.

Fram­lag frá ÍSI og get­raunum 1,7 pró­sent af tekjum

Ann­ars er rekstr­ar­staða KSÍ afar sterk. Félagið á eignir sem ­metnar eru á 581 milljón króna um síð­ustu ára­mót og á 221,6 millj­ónir króna í eigin fé. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi sam­bands­ins vegna árs­ins 2015 sem einnig var gerður opin­ber í gær. Raunar er það svo að KSÍ hef­ur á und­an­förnum árum velt mun meira fé en öll önnur íþrótta­sér­sam­bönd lands­ins til­ ­sam­ans. Með þeirri við­bót sem áætluð er að falli til í ár mun sá munur aukast enn ­meira. Til sam­an­burðar má nefna að Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Íslands (ÍSI) velti um 220 millj­ónum króna á árinu 2014.

Þessi staða, og sú það mikla fjár­magn sem KSÍ fær í formi ­styrkja frá UEFA og FIFA á hverju ári, hefur gert það að verkum að innan margra ann­arra sér­sam­banda er uppi sterk krafa um að KSÍ fari út úr ÍSÍ og leyfi öðrum ­sér­sam­böndum sem eiga mun erf­ið­ara með að láta enda ná saman og sækja að njóta þeirra tekna sem til falla vegna styrkja rík­is­sjóðs og hlut­deildar sér­sam­banda í get­raun­ar­tekj­u­m. Á árinu 2016 er ­á­ætlað að KSÍ fái 33 millj­ónir króna fram­lag frá ÍSÍ og sex millj­ónir króna ­vegna íslenskra get­rauna. Sam­an­lagt er þessi tala, 39 millj­ónir króna, 1,7 ­pró­sent af tekjum KSÍ og ljóst að þær skipta sam­bandið ekki öllu máli. Þetta er hins vegar fé sem gæti skipt sköpum hjá mörgum minni sér­sam­bönd­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None