Áætlun hjá hinu opinbera miðar að því að lækka skuldir og styrkja innviði

Áætlun stjórnvalda um fjármál hins opinbera felur í sér margar sértækar leiðir til að styrkja fjárhag hins opinbera. Innviðir ferðaþjónustu verða styrktir sem og mennta- og heilbrigðiskerfisins.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Sam­kvæmt áætlun stjórn­valda um fjár­mál hins opin­bera næstu fimm ár, þá verður áfram lagt kapp á að lækka skuld­ir, en á sama tíma verða inn­viðir lands­ins styrktir með auknum fjár­fest­ing­um. Þannig verður sam­tals um sex millj­örðum varið í upp­bygg­ingu í ferða­þjón­ustu, eða sem nemur um 1,2 millj­örðum á ári, fram­halds­skólar fá 3,2 millj­arða króna og hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði verða hækk­aðar um 130 þús­und krónur á mán­uði í 500 þús­und, í byrjun næsta árs. 

Þetta var kunn­gjört í dag. Áætl­unin byggir á nýjum lögum um fjár­mál hins opin­bera, en þau miða meðal ann­ars að því að styrkja fjár­mála­stjórn hins opin­bera til þess að gera hag­stjórn skil­virk­ari og betra. Lögin gera ráð fyrir sam­ræmdri hag­stjórn hjá ríki og sveit­ar­fé­lög­um.

Taka skal fram að þó þessi áætlun sé sett fram núna, þá þarf að sam­þykkja fjár­út­lát á hverju ári í fjár­lög­um. Auk þess verður kosið í haust, og þá mun ný rík­is­stjórn taka við stjórn­ar­taumun­um. Lögin um fjár­mál hins opin­bera gera þó ráð fyrir virkri sam­hæf­ingu og eft­ir­fylgni áætl­ana, fram í tím­ann.

Auglýsing

Staða rík­is­sjóðs hefur batnað veru­lega á síð­ustu miss­erum, og hefur vaxta­kostn­aður rík­is­ins til að mynda dreg­ist saman um 20 millj­arða króna á ári, sé miðað við stöðu mála í lok árs í fyrra, og síðan árið 2013. 

Helstu atriði áætl­unar stjórn­valda til fimm ára, má sjá hér að neð­an.

Nokkur helstu verk­efni sem gert er ráð fyrir rúmist innan tíma­bils­ins:

  • Heil­brigð­is­mál. Í áætl­un­inni er gert ráð fyrir að fram­lög til heil­brigð­is­mála verði aukin veru­lega á næstu árum þannig að þau verði orðin ríf­lega 30 millj­örðum króna hærri árið 2021 og verði þar með orðin ríf­lega 200 millj­arðar króna á ári. Það svarar til þess að fram­lögin verði aukin um 18% að raun­virði yfir tíma­bil­ið. Sú aukn­ing er fyrir utan allar launa­hækk­anir sem munu bæt­ast við á tíma­bil­inu auk ann­arra verð­lags­breyt­inga. Þá nema fram­lög til kaupa á tækja­bún­aði fyrir LSH og FSA 5 millj­örðum á árunum 2016-2021 og 2,5 millj­örðum verður varið til stytt­ingar á biðlistum á sama tíma­bili.   
  • Nýr Land­spít­ali. Bygg­inga­fram­kvæmdir við fyrsta verká­fanga, einkum með­ferð­ar­kjarna og rann­sókn­ar­hús, verði boðnar út 2018 og komnar á fullan skrið árin 2019–2021. Þær koma til við­bótar bygg­ingu sjúkra­hót­els, sem áformað er að ljúki 2017, og fulln­að­ar­hönnun nýs með­ferð­ar­kjarna sem þegar hafði verið gert ráð fyrir í fjár­lögum 2016 og síð­ustu rík­is­fjár­mála­á­ætl­un.
  • Fæð­ing­ar­or­lof. Gert er ráð fyrir að hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði verði hækk­aðar um 130 þús­und krónur í byrjun næsta árs í 500 þús­und krónur á mán­uði, en mark­miðið er að færa greiðsl­urnar í átt að því sem þær voru fyrir 2009. Sam­tals eykst fram­lag til sjóðs­ins um 1 millj­arð króna á árunum 2017–2018.
  • Fram­halds­skólar. Fjár­mála­á­ætlun gerir ráð fyrir að fram­lög til fram­halds­skóla­stigs­ins vaxi um 3,2 millj­arða króna að raun­virði frá og með árinu 2016 og til árs­ins 2021, eða sem svarar til nálægt 12% raun­vaxtar yfir tíma­bilið á sama tíma og rekstr­ar­kostn­aður skól­anna mun lækka vegna stytt­ingar náms­ins úr fjórum árum í þrjú.  
  • Hús­næð­is­mál. Áfram verður gert ráð fyrir 1,5 millj­örðum króna í áætl­un­inni vegna stofn­fram­laga til upp­bygg­ingar á félags­legum leigu­í­búð­um.
  • Þrjú ný hjúkr­un­ar­heim­ili. Heild­ar­kostn­aður rík­is­ins vegna bygg­ingar þriggja nýrra hjúkr­un­ar­heim­ila á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er um 4,7millj­arðar króna.
  • Hús íslenskra fræða. Lokið verður við fram­kvæmd­ina á tíma­bil­inu og renna alls 3,7 millj­arðar króna til verk­efn­is­ins.  
  • Ný Vest­manna­eyja­ferja. Á tíma­bil­inu verður ný ferja að fullu fjár­mögnuð og smíðuð en áætl­aður kostn­aður við ferj­una og botn­dælu­búnað nemur nálægt 6 millj­örðum króna.
  • Ferða­manna­staðir. Stór­aukin fram­lög renna til upp­bygg­ingar inn­viða á ferða­manna­stöðum en gert er ráð fyrir að þau verði alls um 6 millj­arðar króna, eða um 1,2 millj­arðar á ári.
  • Dýra­fjarð­ar­göng. Áætluð útgjöld vegna gerðar gang­anna nema ríf­lega 12 millj­örðum króna á tíma­bil­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiInnlent
None