Fjárfestar ættu að hugsa sér til hreyfings

Mikil tækifæri gætu falist í vexti fyrirtækja sem framleiða útvistar- og íþróttafatnað á næstu árum, segja sérfræðingar Morgan Stanley.

activewear
Auglýsing

Grein­endur Morgan Stanley bank­ans í Banda­ríkj­unum telja að fjár­festar geti náð góðri ávöxtun á næstu árum, ef þeir fjár­festa í fyr­ir­tækj­u­m ­sem eru lík­leg til að ná árangri með sölu á útvistar- og íþróttafatn­að­i (act­i­vewe­ar). Í nýrri skýrslu frá bank­anum kemur fram, að mark­aður með slík­an fatnað gæti stækkað um 83 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 11 þús­und millj­örðum króna, á næstu þremur árum.

Heild­ar­mark­að­ur­inn er nú um 300 millj­arða Banda­ríkja­dala, en ­vegna mik­illar eft­ir­spurnar frá Asíu, einkum Kína, er mark­að­ur­inn að stækk­a ­mik­ið.

Leið­andi vöru­merki eins og Nike, Under Armo­ur, Puma og New Balance, ­gætu notið góðs af þess­ari auknu eft­ir­spurn. En óvissan liggur í því hvort fjár­festar verði til­búnir að leggja þessum fyr­ir­tækjum til aukið fjár­magn til­ að grípa tæki­færi.

Auglýsing

Veltutölur á markaði með útivistar- og íþróttafatnað, samkvæmt tölum úr greiningu Morgan Stanley.

Reglu­leg hreyf­ing ­stækkar mark­að­inn

Það sem helst ýtir undir stækkun mark­aðar með útvi­starfatn­að eru tvö atriði. Ann­ars vegar aukin kaup­geta milli­stétt­ar­fólks í Asíu. Þar veg­ur Kína þyngst, en talið er að milli­stéttin þar í landi muni vaxa um 50 millj­ón­ir ­manna á næstu tveimur árum, og svo áfram hraðar til fram­tíðar lit­ið. Auk­in ­kaup­geta hjá stórum hópi mun auka mögu­leika á vexti.

Hins vegar er það síðan aukin vit­und­ar­vakn­ing hjá fólki ­fyrir reglu­legri hreyf­ingu. Margir kaupa sér góðan fatnað til að stunda hreyf­ingu, þó áformin um reglu­lega hreyf­ingu  gangi jafn­vel ekki eft­ir.

Grein­endur Morgan Stanley segja að við­horfskann­anir í Kína ­sér­stak­lega sýni að fólk, einkum það sem hefur tölu­verða kaup­getu, sé að hugs­a ­sér til hreyf­ings, í bók­staf­legri merk­ingu. Um 15 pró­sent fleiri hafi svar­að því til að það hreyfi sig í það minnsta þrisvar í viku árið 2014 heldur en árið 2007. Þetta eru miklar stærð­ir, þegar heim­fært er yfir á íbúa­fjölda þar sem 20 ­pró­sent af íbúum jarðar býr, 1,4 millj­arðar í Kína.

Ef fyr­ir­tækjum sem fram­leiða úti­vistar- og íþróttafatn­að ­tekst að tengja sig enn betur inn á mark­aði, þá gæti verið mikið vaxt­ar­tæki­færi í kort­un­um, að mati Morgan Stanley.

Banda­ríkin stærsti ­mark­að­ur­inn

Stærsta ein­staka mark­aðs­svæði fyrir úti­vistar- og íþróttafatn­að er Banda­rík­ín, en veltan á mark­aði þar í landi var 96 millj­arða Banda­ríkja­dala árið 2014. Asíu­mark­aður er svipað stór og Evr­ópa, eins og ótrú­legt að það hljóm­ar, eða um 56 millj­arða Banda­ríkja­dala.

Nike er stærsta fyr­ir­tækið á þessu mark­aði, en heild­ar­tekjur þess í fyrra námu 30,6 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nem­ur 3.600 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None