Félög Björns Inga komin með 71 prósent hlut í útgáfufélagi DV

Sigurður G. Guðjónsson og Þorsteinn Guðnason eru ekki lengur skráðir eigendur í útgáfufélagi DV. Sá hlutur sem áður var skráður á þá er nú í eigu félags Björns Inga Hrafnssonar. Viðurlögum vegna rangra upplýsinga um eigendur hefur aldrei verið beitt.

Björn Ingi Hrafnsson.
Björn Ingi Hrafnsson.
Auglýsing

Félag í eigu Björns Inga Hrafns­sonar hefur tekið yfir­ ­eign­ar­hluti Sig­urðar G. Guð­jóns­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns og félags­ins Tryggva ­Geirs ehf., í eigu Þor­steins Guðna­son­ar, í Press­unni ehf., aðal­eig­anda DV og fleiri miðla. Félag­ið, sem heitir Kringu­eignir ehf., er nú skráð fyrir 31,85 ­pró­sent hlut í Press­unni. Önnur félög sem eru í eigu Björns Inga og Arn­ar­s Æg­is­son­ar, fram­kvæmda­stjóra Pressunn­ar, eiga 39,15 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu. Því eiga félög í eigu Björns Inga nú 71 pró­sent hlut í Press­unni, sem á 84,23 ­pró­sent hlut í DV.

Breyt­ing­arnar voru skráðar á heima­síðu Fjöl­miðla­nefndar um helg­ina.

Auglýsing

Sagð­ist ekki eiga hlut sem hann var skráður fyrir

Áður en að breyt­ing­arnar voru til­kynntar vor­u ­Sig­urður og félag Þor­steins skráð fyrir sam­tals 28 pró­sent hlut í Press­unn­i. Auk þess var ekki gerð grein fyrir eig­endum að 3,85 pró­sent hlut. Þær ­eig­enda­upp­lýs­ingar voru, sam­kvæmt heima­síðu Fjöl­miðla­nefnd­ar, upp­færðar 12. jan­ú­ar 2016.

Sig­urður sagði í Face­book-­sam­tali þann 8. maí að hann ætt­i alls ekki þennan hlut sem hann hefði verið skráður fyr­ir. Óskað hefði ver­ið eftir aðstoð hans við að inn­heimta skuld sem Reynir Trausta­son, fyrrum aðal­eig­andi og rit­stjóri DV, og félög á hans vegum hefðu stofnað til við aðila og sett hluta­bréf sín að veði. „Það tók­st og ég afhenti umbjóð­anda mínum hlut­ina. Hvað hann gerð­i við þá eftir það hef ég bara ekki hug­­mynd,“ sagði Sig­urð­ur.

Í lögum um fjöl­miðla frá árinu 2011 er m.a ákvæði þar sem segir að „skylt er að veita Fjöl­miðla­nefnd öll gögn og upp­­lýs­ing­ar svo að rekja megi eign­­ar­hald og/eða yfir­­ráð til ein­stak­l­inga, almenn­ra ­fé­laga, opin­berra aðila og/eða þeirra ­sem veita þjón­­ustu fyrir opin­ber­a að­ila og getur Fjöl­miðla­nefnd hvenær sem er kra­f­ist þess að fram­an­­greind­ar ­upp­­lýs­ingar skuli veitt­­ar.“ 

Í 22. ­grein lag­anna er fjallað um til­­kynn­ing­­ar­­skyldu um eig­enda­­skipt­i að fjöl­miðla­veitu. Þar ­seg­ir: „Við sölu á hlut í fjöl­miðla­veitu bera selj­and­i og kaup­andi ábyrgð á því að til­­kynn­ing um söl­una sé send Fjöl­miðla­nefnd. Til­­kynn­ing um söl­una skal hafa borist Fjöl­miðla­nefnd innan tveggja virkra daga frá gerð kaup­­samn­ings“. Í lög­­unum segir einnig að Fjöl­miðla­nefnd skuli leggja ­stjórn­­­valds­­sekt á bæði selj­anda og kaup­anda komi í ljós að þeir hafi van­­rækt að til­­kynna um eig­enda­­skipti á hlut í fjöl­miðli.

Fjöl­miðla­nefnd hefur ekki beitt við­ur­lögum við lög­brotum

Kjarn­inn beind­i ­fyr­ir­spurn til Fjöl­miðla­nefndar um hvort að yfir­lýs­ingar Sig­urðar og sú staða hann væri enn skráður eig­andi að hlut í Press­unni sem hann kann­að­ist sjálf­ur ekki við að eiga, stæð­ist ofan­greind ákvæði lag­anna.

Sigurður G. Guðjónsson sagði árið 2014 að honum hafi þótt það „spennandi tækifæri“ að fjárfesta í Pressunni. Í maí 2016 sagðist hann hins vegar ekki hafa verið eiginlegur eigandi heldur hafi hann tekið við eignarhluta fyrir umbjóðanda sinn sem hann hafi síðan afhent áfram.Heið­dís Lilja ­Magn­ús­dótt­ir, starfs­maður Fjöl­miðla­nefnd­ar, segir að nefndin hafi óskað ­skýr­inga á þessu hjá Birni Inga, fyr­ir­svars­manna útgáfu­fé­lags­ins Pressunn­ar, bréfleið­is þann 9. maí og að sú beiðni hafi verið ítrekuð sím­leiðis skömmu síð­ar. Upp­lýs­ing­ar um breyt­ingar á eign­ar­haldi hafi síðan borist að morgni 20. maí og var heima­síð­a ­nefnd­ar­innar upp­færð eftir hádegi sama dag. Hún segir að frum­kvæð­is­skylda til­ að til­kynna um breyt­ingar á eign­ar­haldi hvíli á fjöl­miðl­unum sjálf­um. „Við sölu á hlut í fjöl­miðla­veitu ber­a ­selj­andi og kaup­andi ábyrgð á því að til­kynn­ing um söl­una sé send Fjöl­miðla­nefnd og skal hún hafa borist nefnd­inni innan tveggja virkra daga frá gerð ­kaup­samn­ings.“

Aðspurð hvort það hafi engar afleið­ingar ef breyt­ingar á eign­ar­haldi eru til­kynntar utan þess t­veggja daga ramma sem lögin heim­ila til að veita nefnd­inni réttar upp­lýs­ingar seg­ir Heið­dís Lilja að Fjöl­miðla­nefnd hafi til þessa ekki beitt stjórn­valds­sekt­u­m. Hún geti ekki sagt til um það hversu mikið þyrfti til að koma svo þeirri heim­ild yrði beitt. „Þá yrði jafnt yfir alla að ganga en gild­is­svið laga um ­fjöl­miðla tekur jafnt til smárra ein­yrkja úti á landi sem stærri fjöl­miðla.“ Heið­dís Lilja gerði ráð fyrir að málið yrði rætt á næsta fundi Fjöl­miðla­nefnd­ar.

Kröfum var breytt í hlutafé

Haustið 2014 áttu sér­ ­stað mikil átök um yfir­­ráð yfir DV. ­Feðgarnir Reynir Trausta­­son og Jón ­Trausti Reyn­is­­son, ásamt sam­­starfs­­mönn­um sín­um, höfðu þá átt og stýrt DV um nokk­­urt skeið en fengið fjár­­hags­­lega ­fyr­ir­greiðslu víða til að standa undir þeim rekstri, meðal ann­­ars hjá Gísla Guð­­munds­­syni, fyrrum eig­anda B&L. Þeim kröfum var síðan breytt í hluta­fé ­sem dugði til að taka yfir­ DV. Í átök­unum kom maður að nafni Þor­­steinn Guðn­a­­son fram fyrir hönd þeirra krafna. 

DV var skömmu síð­ar­ ­selt til hóps undir for­yst­u ­Björns Inga Hrafns­­son­­ar. Kaupin voru gerð í nafni félags sem heitir Pressan ehf. Kaup­verðið hefur ekki verið gert opin­bert en Kjarn­inn greindi frá því fyrr á þessu ári að skuldir félags­ins hefðu hækk­að um­tals­vert á árinu 2014. Lang­­tíma­skuldir sem voru engar í árs­­lok 2013 vor­u orðnar 148 millj­­ónir króna í lok árs 2014. Auk þess tvö­­­föld­uð­ust skamm­­tíma­skuld­ir ­Pressunnar og voru orðn­­ar 124 millj­­ónir króna í lok árs. Því skuld­að­i ­fé­lagið sam­tals 272 millj­­ónir króna í lok árs 2014, sem er fjórum sinn­um ­meira en þær 68 millj­­ónir króna sem félagið skuld­aði í lok árs árið áður.

Engar opin­berar upp­­lýs­ing­ar eru til um hvaðan umrædd lán komu að öðru leyti en það að Björn Ingi Hrafns­­son hefur upp­­lýst um að hluti af ­kaup­verð­inu á DV hafi verið greitt með selj­enda­láni frá þeim sem breytt­u ­kröf­um sínum í hlutafé í mið­l­inum þegar hann var tek­inn yfir haustið 2014. 

Fannst kaup í Press­unni „spenn­andi tæki­færi“

Skömmu eftir að ­yf­ir­takan á DV gekk í gegn var greint frá nokkrum nýjum hlut­höf­um. Þann 29. des­em­ber 2014 var til að mynda birt frétt á vef­miðl­inum Press­unni. Þar var ­greint frá því að Sig­urður G. Guð­jóns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður hefði „keypt nýtt hlutafé í Press­unni sem var gefið út af til­efni af kaupum félags­ins á stærst­u­m hluta hluta­fjár í DV. Eftir kaupin á Sig­urður G. um tíu pró­sent hlut í Press­unn­i“. Í frétt­inni var eft­ir­far­andi haft eftir Sig­urði: „Mér fannst þetta spenn­andi tæki­færi og ákvað að vera með­[... ]Ég þekki fjöl­miðla­rekstur á Íslandi mjög vel, var einn ­stofn­enda Blaðs­ins á sínum tíma og tel tæki­færi fel­ast í því að setja sam­an­ mis­mun­andi fjöl­miðla, nýta mögu­leika í sam­legð og halda um leið sér­kennum hvers um sig“.

Sú yfir­lýs­ing Sig­urðar um aðkomu sína að rekstri ­fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Pressunnar er af öðrum toga en sú skýr­ing sem hann gaf ­fyrir því að vera skráður fyrir tíu pró­sent hlut í félag­inu 8. maí síð­ast­lið­inn. Þá sagði hann, líkt og áður seg­ir, að hann hefði ekki átt við­kom­andi eign­ar­hlut heldur hafi verið „óskað eftir aðstoð minni við að inn­­heimta skuld sem Reyn­ir ­Trausta­­son og félög á hans vegum höfð­u ­stofnað til við aðila og sett hluta­bréf sín að veði. Það tókst og ég afhent­i um­bjóð­anda mínum hlut­ina. Hvað hann gerð­i við þá eftir það hef ég bara ekki hug­­mynd."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None