Vandinn við að koma þaki yfir höfuðið

Fasteignaverð hækkar og hækkar. Greinendur telja ekki vera komin merki um fasteignabólu, í þetta skiptið.

Reykjavík hús fasteignir bílar
Auglýsing

Fast­eigna­mark­að­ur­inn á Íslandi hefur gengið í gegnum miklar breyt­ingar frá því hann botn­fraus í aðdrag­anda og í kjöl­far hruns­ins. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur fast­eigna­verð hækkað hratt á und­an­förnum árum, eða um ­sem nemur tæp­lega 29 pró­sentum að raun­virði frá því árið 2010, sé miðað við ­fjöl­býli. Því er spáð að hækk­unin verði 20 pró­sent til við­bótar á næstu tveim­ur árum, og bendir fátt til ann­ars en að hækk­un­ar­ferlið haldi áfram.

Eins og bent var, í frétt Kjarn­ans á mið­viku­dag­inn, þá hafa ­í­búðir ekki selst hraðar síðan í júní 2007, á hátindi efna­hags­bólunn­ar. Á sama ­tíma hefur gengið hratt á fram­boð eigna í sölu. Það á bæði við um sér­býli og ­fjöl­býli. Um 900 sér­býl­is­eignir voru aug­lýstar til sölu í apríl 2012 en þær voru 320 í apríl á þessu ári. Um 1.900 fjöl­býl­is­eignir voru aug­lýstar til árið 2012, en þær eru nú komnar niður fyrir 900.

Erf­ið­leikar framundan

Í miðbæ Reykja­víkur hefur hækk­­un­in verið langt yfir­ ­með­­al­talið í heild, eða 37,9 pró­­sent, sam­kvæmt skýrslu Reykja­vík Economics, sem Magnús Árn­i Skúla­­son hag­fræð­ingur vann fyrir Íslands­­­banka, ­með sér­­staka áherslu á sér­­býl­i. Í henni segir að hækk­­unin í mið­bænum sé mög­u­­lega ­vegna svo­­nefndra Air­bnb áhrifa. Í mið­bænum hafa tæp­­lega tvö þús­und íbúð­ir verið skráðar á vef Air­bnb til leigu fyr­ir­ ­ferða­­menn, en vöxt­­ur­inn í ferða­­þjón­­ustu hefur verið gríð­­ar­­lega hrað­­ur­ und­an­farin ár. Til marks um það komu 454 þús­und ferða­menn til lands­ins árið 2010 en því er spáð að þeir verði 1,6 millj­ónir á þessu ári, og 2,2 millj­ónir á því næsta. Áhrifin á fast­eigna­mark­að­inn á höf­uð­borg­svæð­inu sér­stak­lega, eru mikil og bein, eins og sést á þessum ­upp­lýs­ing­um.

Auglýsing

Fram­boðið á eignum til heils­árs­bú­set­u, ým­ist til leigj­enda eða þeirra sem eiga íbúð­irn­ar, hefur því dreg­ist nokk­uð ­saman vegna upp­gangs ferða­þjón­ust­unn­ar. Þetta hefur þrýst verð­inu upp á við þar ­sem eft­ir­spurn hefur verið að aukast jafnt og þétt eftir íbúðum í mið­bæn­um, á meðan fram­boðið hefur ekki auk­ist.



Rök­réttar skýr­ingar

Á árunum 2004-2006 hækk­aði fast­eigna­verð mikið og þá úr takti við mik­il­vægar tengdar stærðir eins og kaup­mátt ráð­stöf­un­ar­tekna, eins og var gert að umtals­efni í hag­sjá Lands­bank­ans fyrir nokkru. Þar sagði enn frem­ur að of snemmt væri að tala um bólu­myndun á mark­aði, þar sem hækkun verðs­ins ætt­i ­sér rök­réttar skýr­ing­ar.

„Bættur aðgangur að lánsfé en verið hafði, hækk­un láns­fjár­hlut­falla og lán á lægri vöxtum (einna helst í erlendum gjald­miðl­u­m) ­skýra mik­inn hluta hækk­un­ar­innar þá. Aðgangur að lánsfé var þrengdur nokk­uð eftir hrun, t.d. með auknum kröfum um eig­in­fjár­fram­lag, en eng­ar grund­vall­ar­breyt­ingar hafa orðið í þessum efnum á allra síð­ustu árum.

Í lang­tíma­sam­hengi verður þó að telja að kjör á í­búða­lána­mark­aði séu nokkuð hag­stæð nú. Kaup­máttur launa og ráð­stöf­un­ar­tekna hefur hins vegar auk­ist veru­lega á síð­ustu miss­erum og hefur hækk­un fast­eigna­verðs hald­ist nokkuð vel í hendur við þá þró­un.

Hlut­fallið milli raun­verðs íbúða og kaup­máttar launa hækk­að­i nokkuð frá árs­byrjun 2013 fram til árs­loka 2015 en fór svo lækk­andi og er enn lægra en þá var. Það er því alls ekki tíma­bært að full­yrða að bólu­myndun sé í gangi á fast­eigna­mark­að­i,“ sagði í hag­sjá Lands­bank­ans.

Vantar fleiri eignir

Aug­ljóst er á gangi mála á fast­eigna­mark­aði, að mik­il þörf er fyrir fleiri íbúðir á mark­aðn­um, einkum litlar og með­al­stór­ar. Í píp­unum eru þegar upp­bygg­ing­ar­á­form á nokkur þús­und íbúð­um, á næstu árum, en þörf er fyrir um tvö þús­und til 2.500 íbúðir á hverju ári á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u, til að mæta nátt­úru­legri fjölgun nýrra íbúða­kaup­enda. Eftir hrunið var ­mark­að­ur­inn alveg fros­inn um tíma, og lítið sem ekk­ert byggt í tvö ár.

Frá árin­u 2011 hefur tölu­vert verið byggt, en þó hefur íbúða­fjár­fest­ing ekki verið eins ­mikil og hún hefði þurft að vera, til að mæta mik­illi eft­ir­spurn. Margir gætu því lent í vand­ræðum með að koma þaki yfir höf­uð­ið, á næstu árum, ef ekki verður settur meiri kraftur í íbúða­upp­bygg­ingu, einkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None