Tólf þúsund störf hurfu við hrunið - 16.300 hafa komið í staðinn

Bróðurpartur rúmlega 16 þúsund nýrra starfa sem orðið hafa til á Íslandi frá bankahruni er tilkominn vegna ferðaþjónustunnar. Störfin virðast að miklu leyti mönnum með erlendu vinnuafli og Íslendingar flytja frekar burt en til landsins.

Iðnaðarmenn framkvæmdir fólk smiðir
Auglýsing

Fyrir þau tólf þús­und störf sem töp­uð­ust á árunum 2008 til 2010 á Íslandi hafa orðið til 16.300 ný í stað­inn. Á árinu 2015 einu saman fjölg­aði störfum um sex þús­und. Bróð­ur­partur allra nýrra starfa sem orðið hafa til á Íslandi eftir banka­hrun er til­kom­inn vegna ferða­þjón­ustu og þau svör virð­ast ekki mæta nema að hluta til vænt­ingum Íslend­inga um starfs­vett­vang og starfs­kjör. Þess vegna virð­ist fjölgun starfa að miklu leyti hafa verið mætt með erlendu vinnu­afli á sama tíma og fleiri Íslend­ingar flytja af landi brott en til lands­ins. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu Arion banka á vinnu­mark­að­inum þá og nú, sem birt var í dag.

Atvinnu­leysi á Íslandi mælist nú 3,5 pró­sent sam­kvæmt könn­unum Hag­stof­unnar og 2,6 pró­sent sam­kvæmt skrán­ingum Vinnu­mála­stofn­un­ar.  Í þjóð­hags­lík­ani Seðla­banka Íslands er miðað við 4 pró­sent jafn­væg­isat­vinnu­leysi og því ljóst að skortur er á vinnu­afli hér­lendis í kjöl­far hins mikla upp­gangs í ferða­þjón­ustu.

Íslend­ingar fara, erlent vinnu­afl kemur

Í grein­ingu Arion banka er bent á að þrátt fyrir þennan skort sem mynd­ast hefur á vinnu­mark­aði þá flytja Íslend­ingar frekar úr landi, og því velt fyrir sér hvað valdi. Eitt sem spili þar inn í er aukin menntun vinnu­afls, en hlut­fall háskóla­mennt­aðra á meðal starf­andi ein­stak­linga hefur auk­ist úr 11 pró­sentum í tæp 34 pró­sent frá árinu 1991 til loka síð­asta árs.

Auglýsing

Í grein­ing­unni seg­ir: „Á síð­asta ári voru brott­fluttir Íslend­ingar umfram aðflutta 1.265. Fjölgun starfa virð­ist því að miklu leyti hafa verið mætt með erlendu vinnu­afli en á sama tíma voru aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar umfram brott­flutta 2.716. Auð­vitað eru marg­vís­legar ástæður fyrir því að fólk flytur búferlum til lengri eða skemmri tíma og það er óneit­an­lega jákvæð þróun að fólk hafi tæki­færi til að freista gæf­unnar í öðru landi. Þessi þróun gefur til kynna að sú sköpun starfa sem orðið hefur síð­ustu ár sé enn sem komið er aðeins að hluta til að mæta vænt­ingum Íslend­inga um starfs­vett­vang og starfs­kjör.“

Nið­ur­staða grein­ing­ar­deildar Arion banka er sú að flest bendi til þess að störfum muni halda áfram að fjölga mikið á næstu miss­er­um. Á sama tíma sækja sífellt fleiri Íslend­ingar sér fram­halds- og háskóla­mennt­unar og því sé spurn­ingin sem þjóðin standi frammi fyrir sú hvort mennt­unin sem Íslend­ingar eru að sækja sér falli að vinnu­mark­að­inum og umhverfi atvinnu­sköp­unar „eða hvort texti Spil­verks­ins muni eiga við: „Hér vantar tólin og tækin og réttu vanda­mál­in.“ Spenn­andi verður að fylgj­ast með fram­vind­unni á vinnu­mark­aði, hvort að ferða­þjón­ustan haldi áfram að vera leið­andi í sköpun nýrra atvinnu­tæki­færa eða hvort aðrar atvinnu­greinar taki við kefl­inu, og hvernig fyllt verður upp í hinar nýju stöð­ur.“

Konur og lands­byggð sækja á

Í grein­ing­unni er einnig sagt frá því að atvinnu­þátt­taka kvenna hafi verið 79,3 pró­sent í fyrra og hafi aldrei mælst hærri. Á sama tíma er atvinnu­þátt­taka karla 85,7 pró­sent, sem er umtals­vert lægri en hún hefur verið áður.

Þótt flest ný störf hafi orðið til á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þá fjölgar störfum hraðar á lands­byggð­inni. Í grein­ing­unni seg­ir: „Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins ber fræðslu­starf­semi höfuð og herðar yfir aðrar atvinnu­greinar í atvinnu­sköp­un. Þannig hefur störfum í tengslum við fræðslu­starf­semi fjölgað um 40 pró­sent frá árinu 2011, eða um 2.600 störf sem er mesta fjölg­unin í stöðu­gildum talið, utan sem innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Þá hefur störfum er snúa að rekstri gisti­heim­ila og veit­inga­rekstri fjölgað umtals­vert sem og störfum í flutn­ingum og versl­un­ar­geir­an­um. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ýmis sér­hæfð þjón­usta verið umsvifa­mikil sem og upp­lýs­inga- og fjar­skipta­geir­inn sem sópað hefur til sín starfs­fólki.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None