Landsbankinn samþykkir kaup á fimm milljarða hlut í sjálfum sér

Ríkið á 98,2 prósent hlut í Landsbankanum en hlutu starfsmanna og fyrrverandi stofnfjárhafa yfirtekinna sparisjóða er 0,89 prósent. Virði hans nemur ríflega tveimur milljörðum króna.

Landsbankinn
Auglýsing

Banka­ráð Lands­bank­ans hefur ákveðið að nýta heim­ild til að kaupa eigin hluta­fé, en heim­ildin var veitt á aðal­fundi bank­ans 14. apr­íl ­síð­ast­lið­inn. Kaupin nema að hámarki 480 millj­ónum hluta, eða sem nemur um tvö­ ­pró­sent af útgefnu hluta­fé. Ríkið á um 98,2 pró­sent hluta­fjár í bank­an­um.

Sé mið tekið af því að virði bank­ans sé sem nemur bók­færðu virð­i eigin fjár, þá nemur tvö pró­sent um 5,2 millj­örðum króna.

Lækka hlutafé og gefa mögu­leika á sölu

Til­gang­ur­inn með kaup­unum er að lækka eigið fé bank­ans og einnig að gefa hlut­höfum bank­ans mögu­leika á því að selja hluti sína í bank­an­um. Eig­in­fjár­staða Lands­bank­ans er sterk, eða 28,6 pró­sent. Hún hefur styrkst mik­ið á und­an­förnum árum, og er eigið fé bank­ans nú um 260 millj­arðar króna. 

Auglýsing

Það er ör­lítið meira en hjá næst stærsta fyr­ir­tæk­inu í eigu rík­is­ins, Lands­virkj­un, sé horft á stærð­ina út frá eigin fé. Þar er eigið fé rúm­lega 250 millj­arðar króna. Arð­greiðslur bank­ans til­ hlut­hafa, að lang­mestu leyti til rík­is­ins, nema alls 82 millj­örðum á árun­um 2013 til 2016.

Hömlur á fram­sali hlut­anna í bank­anum féllu niður 1. sept­em­ber, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Lands­bank­an­um. 

Lands­bank­inn býðst til að kaupa hluti af hlut­höfum á eft­ir­far­andi þremur end­ur­kaupa­tíma­bilum að því er segir í til­kynn­ingu frá bank­an­um.  

·         19. sept­em­ber 2016 – 30. sept­em­ber 2016

·         31. októ­ber 2016 – 9. des­em­ber 2016

·         13. ­febr­úar 2017 – 24. febr­úar 2017

Jafn­framt er tekið fram hvert gengið er í við­skipt­un­um, eða 10,4 miðað við að útistand­andi hlutafé sé 23.781.690.382 krón­ur, ­ná­kvæm­lega til­greint. Þetta þýðir að tvö pró­sent hlutur er um fimm millj­arð­ar­ króna virði. „Þeir hlut­hafar sem ákveða að nýta sér­ fram­an­greint boð eiga að senda Lands­bank­anum til­kynn­ingu um það. og er eyðu­blað ­fyrir til­kynn­ing­una aðgengi­legt á vef bank­ans. Til­kynn­ingar verða afgreiddar á hverju tíma­bili í þeirri röð sem þær ber­ast bank­anum þar til fram­an­greind­u há­marki (480 millj­ónir hluta) verður náð. Verði hámark­inu náð á ein­hverju end­ur­kaupa­tíma­bil­anna verða frek­ari til­kynn­ingar því ekki afgreidd­ar, hvort sem það verður á fyrsta, öðru eða þriðja tíma­bil­in­u,“ segir í til­kynn­ing­u Lands­bank­ans.

Verðið getur breyst

Verðið í við­skiptum með hlut­ina getur þó breyst. Í sam­ræmi við ákvörðun aðal­fundar bank­ans, þá býðst Lands­bank­inn til að ­kaupa hvern hlut á fram­an­greindum end­ur­kaupa­tíma­bilum á gengi sem sam­svar­ar hlut­fall­inu á milli eigin fjár, sem til­heyrir hlut­höfum bank­ans, og síð­an heild­ar­hluta­fjár bank­ans, sam­kvæmt síð­asta birta upp­gjöri áður en við­kom­and­i end­ur­kaupa­tíma­bil hefst.

Núver­andi starfs­menn Lands­bank­ans, og hópur fyrr­ver­andi starfs­manna einnig, nokkuð mik­illa hags­muna að gæta þeg­ar kemur að hlut­unum í bank­an­um.

Við stofnun Lands­bank­ans 7. októ­ber 2008, þegar gamli bank­inn féll eins og spila­borg, lagði íslenska ríkið nýja bank­an­um til 775 millj­ónir króna í eigið fé og síðar 121,2 millj­arða króna til við­bót­ar í formi skulda­bréfs með gjald­daga árið 2018, eða sam­tals 122 millj­arða króna.

Þar með eign­að­ist íslenska ríkið 81,33% hluta­fjár í bank­anum en LBI hf. (slitabú gamla Lands­banka Íslands) átti 18,67% hlut. Í apríl 2013 gaf Lands­bank­inn út skil­yrt skulda­bréf til LBI að fjár­hæð 92 millj­arðar króna og við það fram­seldi LBI hluti sína í bank­anum til íslenska ­rík­is­ins.

Þar með fór eign­ar­hlutur rík­is­ins í um 98%. Á sama tíma eign­uð­ust þáver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Lands­bank­ans hluti í bank­an­um, sem áður voru í eigu LBI, í sam­ræmi við samn­ing íslenska ­rík­is­ins, bank­ans og LBI frá 15. des­em­ber 2009, eins nefnd er í til­kynn­ingu bank­ans. Á þeim hlutum voru kvaðir um að ekki mætti fram­selja hlut­ina fyrr en 1. sept­em­ber 2016 en gert hafði verið ráð fyrir að búið yrði að ­skrá hluta­bréf í bank­anum á skipu­legan verð­bréfa­markað fyrir þann tíma. Svo er hins vegar ekki. 

Árið 2015 runnu Spari­sjóður Norð­ur­lands og Spari­sjóður Vest­manna­eyja saman við Lands­bank­ann og fengu þá rúm­lega 400 stofn­fjár­eig­endur end­ur­gjald sem greitt var með hlutum í Lands­bank­an­um. Á þeim hlutum voru sam­svar­andi hömlur á fram­sali, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Rík­ið, starfs­menn og stofn­fjár­hafar

Alls eru hlut­hafar Lands­bank­ans 1.833 tals­ins, þegar allt er talið. Íslenska ríkið er ­stærsti hlut­hafi bank­ans og á 98,2% hlut, eins og áður sagði. Bank­inn á sjálf­ur 0,91% hlut. Þá eiga um 870 núver­andi starfs­menn bank­ans, um 530 fyrr­ver­and­i ­starfs­menn og um 430 fyrrum stofn­fjár­hafar í tveimur spari­sjóðum sam­tals 0,89%. ­Banka­ráðs­menn Lands­bank­ans eiga ekki hluti í bank­an­um. Hlutur starfs­manna, núver­and­i og fyrr­ver­andi, og 430 fyrrum stofn­fjár­haga í spari­sjóð­unum er því um 2,2 millj­arða króna virð­i. 

Fyr­ir­hug­uðum áformum um sölu á allt að þrjá­tíu pró­sent hlut í Lands­bank­ans hefur verið frestað, og bíður það nýrrar rík­is­stjórn­ar, að taka ákvörðun um hvort hlutur í bank­anum verður seldur eða hvort hann verður áfram í eigu rík­is­ins að nær öllu leyti.

Banka­sýsla rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­an­um, fagnar ákvörðun banka­ráðs og segir hana sam­ræm­ast stefnu Banka­sýsl­unn­ar.

Æðstu stjórn­­endur Lands­­bank­ans eiga stærri eign­­ar­hlut í bank­­anum en aðrir starfs­­menn, eða allt að þrefalt meira en megnið af þeim ­starfs­­mönnum sem eiga hlut í bank­an­­um. Þetta sýna gögn um hlut­hafa Lands­­bank­ans miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs 2014. Þeir starfs­­menn bank­ans sem eiga flesta hluti, af þeim sem komu til­ ­skipt­anna fyrir starfs­­menn miðað við sam­­þykkt hlut­hafa­fundar bank­ans frá 17. júlí 2013, eru Hreiðar Bjarna­­son, Helgi Teitur Helga­­son og Árni Þór Þor­­björns­­son, en þeir áttu allir 528.732 hluti í lok árs 2014, eins og fram kom í umfjöllun Kjarn­ans í októ­ber í fyrra

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None