Rauðar tölur lækkunar í kauphöllinni

Tugir milljarða gufuðu upp úr í kauphöllinni í gær, á miklum lækkunardegi í viðskiptum.

kauphöll
Auglýsing

Úrvals­vísi­tala íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins lækk­aði um 3,05 pró­sent í gær, sem telst vera mikil lækkun á einum degi, í sögu­leg­um ­sam­an­burði. Mest var lækk­unin á bréfum í Icelandair Group, um 4,89 pró­set í við­skiptum upp á ríf­lega 1,3 millj­arða króna. Eins og Kjarn­inn greindi frá í gær­morgun

Auglýsing

htt­p://kjarn­inn.is/­skyr­ing/2016-09-29-­geng­is­styrk­ing-og-haekk­un-oli­u-­get­ur-­skapa­d-o­kyrr­d-i-­lofti/

þá hefur mark­aðsvirði Icelandair hrapað niður að und­an­förnu, en um 70 millj­arðar hafa gufað upp af verð­mæti félags­ins frá því í apríl á þessu ári. Félag­ið er nú tæp­lega 120 millj­arða virði en í apríl var það um 190 millj­arða virði.

Katrín Olga Jóhann­es­dótt­ir, stjórn­ar­maður félags­ins og for­maður Við­skipta­ráðs, var ein þeirra sem seldi bréf í félag­inu í dag, á geng­inu 24. Sam­tals seldi hún 400 ­þús­und hluti, að virði um 9,6 millj­óna króna.

Önnur félög lækka líka

Næst mesta lækk­unin var á Mar­el, rúm­lega fjögur pró­sent. Önnur félög lækkuð skarpt, á bil­inu 1,5 til þrjú pró­sent flest.

En hvað veld­ur? Það er ekki gott að segja, enda geta ýms­ir þættir haft áhrif á verð­bréfa­mark­aði. En greini­legt er að meiri nei­kvæðni er hjá fjár­festum nú en á fyrri hluta árs­ins. Styrk­ing krón­unnar gagn­vart helst­u við­skipta­myntum er einn þáttur sem við­mæl­endur Kjarn­ans hafa nefnt, en ýms­ir hafa áhyggjur af því að hún sé þegar farin að þrengja að útflutn­ings­hlið hag­kerf­is­ins og muni einnig með tím­anum hafa heft­andi áhrif á ferð­þjón­ust­una.

Tvö­földun verð­bólg­unnar

Kauphallarfélög lækkuðu mikið,eins og sést á þessari mynd frá Keldunni.Til við­bótar kemur svo hin óvenju­lega tvö­földun á verð­bólg­unni, vegna mis­taka Hag­stofu Íslands. Í gær hækk­aði verð­bólga úr 0,9 ­pró­sent í 1,8 pró­sent, með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum á vaxta­á­lag á skulda­bréfa­mark­aði og aug­ljós­lega einnig á verð­bólgu­vænt­ing­ar.

Áður en mis­tök Hag­stof­unnar komu fram, bjuggust fjár­festar jafn­vel við því að Seðla­bank­inn myndi lækka vexti á nýjan leik, en ­meg­in­vextir hans voru lækk­aði rúr 5,75 pró­sent í 5,25 pró­sent á síð­asta ­vaxta­á­kvörð­un­ar­degi. Telja verður ólík­legt að Seðla­bank­inn lækki vexti næst, og frekar spurn­ing hvort þeir verði hækk­aðir á nýjan leik, þrátt fyrir að verð­bólgan sé enn nokkuð undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði.

Velta í hluta­bréfa­við­skiptum var tölu­vert mik­il, og greini­lega að margir fjár­festar seldu bréf í dag. Næst mesta veltan var með bréf í Eim­skip, sem lækk­aði um 1,64 pró­sent í 500 millj­óna króna við­skipt­um.

Á sama tíma og hluta­bréf haf fallið í verði þá hefur gengi íslensku krón­unnar haldið áfram að styrkj­ast gagn­vart helstu við­skipta­mynt­um. Banda­ríkja­dalur kostar nú 114 krón­ur, evran 128 krónur og pundið 148 krón­ur. Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur svo hækkað skarpt, á síð­ustu tveimur dög­um, eða um tæp­lega tíu pró­sent. Ástæðan er óform­legt sam­komu­lag OPEC ríkja um að draga úr fram­leiðslu. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None