Ríkir karlar ánægðastir með ríkisstjórnina

Almennt eru Íslendingar óánægðir með nýja ríkisstjórn og stjórnarsáttmála hennar. Karlar eru þó síður óánægðir en konur og tekjuháir marktækt sáttari en tekjulágir.

Rúmur mánuður er síðan að skrifað var undir stjórnarsáttmála Bjartrar framtíðar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar. Mikill meirihluti þjóðarinnar er ósátt með innihald hans.
Rúmur mánuður er síðan að skrifað var undir stjórnarsáttmála Bjartrar framtíðar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar. Mikill meirihluti þjóðarinnar er ósátt með innihald hans.
Auglýsing

Tekju­hærri lands­menn eru mark­tækt ánægð­ari með rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar en þeir sem hafa lægri tekj­ur. Þeir eru líka mun lík­legri til að vera ánægðir með inni­hald stjórn­ar­sátt­mála Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar.

Rétt­ara væri reyndar að segja að færri í þeim hópi sem hafa umtals­vert hærri tekjur en með­al­tekjur eru óánægðir með rík­is­stjórn­ina og stjórn­ar­sátt­mál­ann en í þeim hópum sem hafa miðl­ungs- eða lægri tekj­ur, í ljósi þess að ánægja með hvort tveggja mælist mjög tak­mörk­uð. Almennt er þjóðin óánægð með stjórn­ar­sam­starfið og sátt­mál­ann sem það hvílir á.

Þetta má lesa út úr nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup.

Auglýsing

Ríkir ánægð­ari en hinir

Í könnun Gallup kemur fram að í þeim hópum Íslend­inga sem voru með undir 550 þús­und krónur í mán­að­ar­laun mæld­ist ánægja með rík­is­stjórn­ina á bil­inu 13-21 pró­sent. Minnst mæld­ist ánægjan í tekju­hópnum sem hafði 400-549 þús­und krónur á mán­uði, en ein­ungis 13 pró­sent aðspurðra í honum var ánægður með rík­is­stjórn­ina.

Mark­tækt meiri ánægja er á meðal tekju­hærri hópa sam­fé­lags­ins með rík­is­stjórn­ina. Á meðal þeirra tekju­hópa sem eru með yfir 800 þús­und krónur í mán­að­ar­laun mælist ánægjan á bil­inu 25-34 pró­sent. Mest er ánægjan hjá efsta tekju­hópn­um, þ.e. þeim sem hafa yfir 1.250 þús­und krónur í mán­að­ar­laun. Innan þess hóps eru 34 pró­sent aðspurðra ánægðir með rík­is­stjórn­ina. Sam­an­lagt mælist ánægja með rík­is­stjórn­ina ein­ungis um 25 pró­sent þannig að mark­tækt meiri ánægja er með hana hjá tekju­hæstu hóp­unum en öllum hin­um.

Tekju­hærri hópar sam­fé­lags­ins eru líka mun ánægð­ari með stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar en þeir sem eru tekju­lægri. Hjá þeim lands­mönnum sem til­heyra tekju­hópum með laun upp að 550 þús­und krónum mæld­ist ánægjan með stjórn­ar­sátt­mál­ann ein­ungis á bil­inu 12-16 pró­sent. Minnst var ánægjan hjá þeim sem eru með 400 til 549 þús­und krónur á mán­uði, eða 12 pró­sent.

Hjá tekju­hópum með yfir 800 þús­und krónur á mán­uði var ánægja með stjórn­ar­sátt­mál­ann á bil­inu 27-32 pró­sent, og mest hjá þeim sem voru með yfir 1.250 þús­und krónur á mán­uði.

Sex pró­sent kjós­enda Bjartar fram­tíðar ánægðir með sátt­mál­ann

Í könnun Gallup kemur líka fram að karlar eru mun ánægð­ari með rík­is­stjórn­ina en kon­ur. Alls sögð­ust 30 pró­sent karla vera ánægðir með hana en 19 pró­sent kvenna. Áður hefur verið greint frá því að ein­ungis 14 pró­sent þeirra sem kusu Bjartra fram­tíð, sem situr í rík­is­stjórn­inni, eru ánægðir með störf henn­ar. Til við­bótar eru ein­ungis sex pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíðar ánægðir með stjórn­ar­sátt­mála flokk­anna þriggja.

Til sam­an­burðar eru 67 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks ánægðir með rík­is­stjórn­ina og 39 pró­sent kjós­enda Við­reisn­ar. Aðeins minni ánægja er meðal þeirra með stjórn­ar­sátt­mál­ann. 35 pró­sent kjós­enda Við­reisnar eru sáttir með hann en 59 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks.

Menntun telur þegar kemur að þekk­ingu

Í Þjóð­ar­púls­inum var líka spurt hvort fólk teldi sig þekkja inni­hald stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Í nið­ur­stöð­unum kom í ljós að um 31 pró­sent taldi sig þekkja inni­haldið vel, 37 pró­sent hvorki vel né illa en um 32 pró­sent tali sig þekkja það illa.

Skýr munur var á því eftir menntun hvort fólk þekkti inni­hald stjórn­ar­sátt­mál­ans eða ekki. Þannig þekktu 39 pró­sent aðspurðra sem eru með háskóla­próf inni­hald hans en ein­ungis 22 pró­sent þeirra sem voru með grunn­skóla­próf sem æðstu mennt­un. Karlar (39 pró­sent) töldu sig þekkja hann mun betur en konur (26 pró­sent) og tekju­hæsti hópur lands­manna, sá sem hefur yfir 1.250 þús­und krónur í mán­að­ar­laun, taldi sig þekkja hann mun betur en aðrir (46 pró­sent).



Könn­unin var net­könnun sem gerð var dag­ana 1. til 12. febr­úar 2017. Heild­ar­úr­taks­stærð var 1.402 og þátt­töku­hlut­fall var 59,5 pró­sent. Ein­stak­lingar voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None