Bankasýslan ætlar að funda með Íslandsbanka vegna Borgunar

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Borgun hafi ekki uppfyllt kröfur laga um aðgerðir gegn peningaþvætti. Málinu hefur einnig verið vísað til héraðssaksóknara. Bankasýsla ríkisins ætlar að funda með Íslandsbanka vegna málsins.

Jón Gunnar Jónsson er forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Jón Gunnar Jónsson er forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Auglýsing

Stjórn­endur Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka, munu funda með for­svars­mönnum Íslands­banka um mál­efni Borg­unar í náinni fram­tíð. Sá fundur mun fara fram þegar færslu­hirð­ing­ar­fyr­ir­tæk­ið, sem er í 63,5 pró­sent eigu Íslands­banka, hefur útskýrt athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á starf­semi þess fyrir stjórn­endum Íslands­banka. Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið beindi hins vegar fyr­ir­spurn Kjarn­ans um álit þess á mál­efnum Borg­unar til Banka­sýsl­unn­ar.

Kjarn­inn greindi frá því fyrir vikuFjár­­­­­mála­eft­ir­litið hefði kom­ist að þeirri nið­­­­ur­­­­stöðu, eftir athugun sem stóð í um níu mán­uði, að fram­­­­kvæmd, verk­lag og eft­ir­lit Borg­unar í tengslum við aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­­­­­mögnun hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­­­­ins erlendis upp­­­­­­­fylli ekki með við­un­andi hætti þær megin kröfur sem gerðar eru í lög­­­­­­­um. Borgun voru gefnir tveir mán­uðir til að ljúka úrbótum vegna athuga­­­­semda eft­ir­lits­ins. Auk þess var mál­inu vísað til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara síð­ast­lið­inn mánu­dag, þar sem grunur leikur á um sak­næmt athæfi sem við liggur refs­ing sam­kvæmt lög­um.

Við­skipti sem geta leitt af sér orð­spors­á­hættu

Borgun hefur verið að færa skarpt út kví­arnar á öðrum mörk­uðum en þeim íslenska á síð­ustu árum. Á meðal þeirra landa sem fyr­ir­tækið hefur aukið mjög hlut­deild sína í færslu­hirð­ingu eru Bret­land, Ung­verja­land og Tékk­land. Kjarn­inn hefur fengið það stað­fest að á meðal þeirra við­skipta­vina sem Borgun hefur tekið að sér að þjón­usta séu aðilar sem selji aðgang að klámi, fjár­hættu­spilum eða selji lyf á net­inu. Allt eru þetta athæfi sem er ólög­legt að stunda á Íslandi en Borgun er hins vegar frjálst að veita stoð­þjón­ustu gagn­vart í öðrum lönd­um, að ákveðnum skil­yrðum upp­fyllt­um. Slíkum við­skiptum fylgir þó mikil orð­spors­á­hætta.

Auglýsing

Borgun sendi frá sér yfir­lýs­ingu á mið­viku­dag þar sem fyr­ir­tækið segir að það telji sig hafa farið að lögum og fram­kvæmt áreið­an­leikakann­anir á við­skipta­vinum sam­kvæmt verk­lags­hefð á Evr­ópska efna­hags­svæð­inu. Þar hafn­aði Borgun því einnig að stór­aukin umsvif Borg­unar í öðrum löndum tengd­ust vafasömum við­skiptum sem önnur korta­fyr­ir­tæki vildu ekki sinna. Í yfir­lýs­ing­unni var því hins vegar ekki hafnað að Borgun hafi tekið að sér slík við­skipti, heldur ein­ungis sagt að hin stór­auknu umsvif væru ekki vegna þeirra.

Ríkið á bank­ann sem á Borgun

Borgun er í 63,5 pró­sent eigu Íslands­banka sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins. Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem fer með eignir rík­is­ins, um mál­efni Borg­un­ar. Þar var m.a. spurt um hvort ráðu­neytið hafi látið kanna starf­semi Borg­unar í kjöl­far athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, hvort ráðu­neytið hafi skoðun á því að fyr­ir­tæki í óbeinni eigu rík­is­ins stundi færslu­hirð­ingu fyrir fyr­ir­tæki sem selji aðgang að klám­síð­um, veð­mála­starf­semi og lyf­sölu á net­inu og hvort ráðu­neytið ætli að bregð­ast við þeirri stöðu sem upp sé komin með ein­hverjum hætti.

Ráðu­neytið svar­aði fyr­ir­spurn­inni ekki efn­is­lega heldur vís­aði henni til Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um.

Jón Gunnar Jóns­son, for­stjóri Banka­sýsl­unn­ar, segir í svari til Kjarn­ans að stofn­unin hafi fengið það stað­fest hjá Íslands­banka að bank­inn hafi spurst fyrir um mál­ið. „Um leið og Íslands­banki hefur fengið svör við fyr­ir­spurn sinni munum við funda með honum um mál­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None