Reykjavíkurborg skilar miklu meiri afgangi en lagt var upp með

Alls skilaði sá hluti reksturs Reykjavíkurborgar sem rekin er fyrir skattfé 3,6 milljarða króna afgangi á fyrri hluta ársins. Það er 2,5 milljörðum krónum meira en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ástæðan er m.a. hærri skatttekjur og framlög Jöfnunarsjóðs.

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur.
Auglýsing

A-hluti Reykja­vík­ur­borgar var rek­inn með 3,6 millj­arða króna afgangi á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Það er 2,5 millj­örðum krónum meiri afgangur en fjár­hags­á­ætlun gerði ráð fyr­ir. Hin bætta nið­ur­staða er til­komin vegna þess að skatt­tekjur – útsvar og fast­eigna­gjöld – voru um 650 millj­ónum króna hærri en áætlað var, fram­lög Jöfn­un­ar­sjóð voru 900 millj­ónum króna yfir áætlun og tekjur af sölu bygg­inga­réttar og sölu­hagn­aði fast­eigna voru 1,1 millj­arði króna meiri en gert hafði verið ráð fyr­ir. Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi borg­ar­innar sem birtur var í dag.

­Rekstr­ar­nið­ur­staða sam­stæðu borg­ar­inn­ar, A og B-hluta henn­ar, er jákvæð um 18,5 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar segir að ástæða þess sé hærri tekju­færsla á mats­breyt­ingum fjár­fest­inga­eigna Félags­bú­staða hf. (hækkun á virði fast­eigna í eigu borg­ar­inn­ar), lægri fjár­magns­gjöld vegna gang­virð­is­breyt­inga inn­byggðra afleiða í raf­orku­samn­ingum hjá Orku­veitu og lægri rekstr­ar­kostn­aðar en áætlun gerði ráð fyr­ir. Sú nið­ur­staða er 10,8 millj­örðum krónum betri en fjár­hags­á­ætlun hafði gert ráð fyr­ir.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í mán­uð­inum að inn­­heimt fast­­eigna­­gjöld í Reykja­vík hafi auk­ist um 50 pró­­sent frá árinu 2010. Vegna þess árs inn­­heimti Reykja­vík­­­ur­­borg tæp­­lega 12,1 millj­­arð króna í fast­­eigna­­gjöld. Áætlað er að borgin inn­­heimti 18,2 millj­­arða króna í fast­­eigna­­gjöld vegna árs­ins 2017. Þar sagði einnig að inn­­heimta fast­­eigna­gjalda muni skila 2,6 millj­­arði króna meira í borg­­ar­­sjóð vegna árs­ins 2017 en hún gerði árið 2016. Það er tekju­aukn­ing upp á 16,6 pró­­sent milli ára.

Dagur boðar bæt­ingu í fjár­fram­lög

Þá hefur skulda­hlut­fall Reykja­vík­ur­borgar hríð­lækkað á und­an­förnum árum. Hreinar vaxta­ber­andi skuldir sam­stæðu borg­ar­innar voru 263 millj­arða króna í árs­lok 2011 eða tæp­lega 242 pró­sent af tekjum sam­stæð­unn­ar. Síðan þá hefur hlut­fallið hríð­lækkað og vaxta­ber­andi skuldir eru nú 169 millj­arðar króna, eða 100 pró­sent af rekstr­ar­tekj­um.

Auglýsing
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, segir í stöðu­upp­færslu á Face­book að upp­gjörið sé mjög sterkt hvar sem á sé lit­ið. Það muni gera borg­inni kleift að „bæta við fjár­fram­lögum í skóla­mál, vel­ferð­ar- og hús­næð­is­mál og end­ur­nýjun inn­viða. Það höfum við gert frá því við­snún­ingur varð í rekstr­inum um mitt síð­asta ár og munum halda því áfram í næstu fjár­hags­á­ætl­un. Sterk­ari fjár­hags­staða gerir þetta kleift og skól­ar, vel­ferð, hús­næð­is­mál og inn­virðir eru í for­gangi hjá meiri­hluta borg­ar­stjórn­ar.“

Miklar sveiflur á síð­ustu árum

Í fyrra var hagn­aður sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar sam­tals 26,4 millj­arðar króna eða tæpum 15 millj­örðum króna yfir áætl­un. A-hlut­inn var rek­inn með 2,6 millj­arða króna afgangi.

Árið 2015 var rekst­ar­nið­ur­staðan nei­kvæð um fimm millj­arða króna og A-hlut­inn rek­inn með 13,6 millj­arða króna tapi. Ástæða þess var að líf­eyr­is­skuld­bind­ingar borg­ar­innar juk­ust um 14,6 millj­arða króna á árinu 2015 vegna nýrra trygg­inga­fræði­legra for­sendna. Þær voru allar gjald­færðar á því ári.

A-hlut­inn var rek­inn með 2,8 millj­arða króna tapi árið 2014 en rekstr­ar­nið­ur­staða sam­stæð­unnar var jákvæð um 11,1 millj­arða króna á því ári.

Því er staðan sú að á þeim tíma sem liðin er frá síð­ustu sveita­stjórn­ar­kosn­ingum er afkoma borg­ar­innar (2014, 2015, 2016 og fyrri helm­ingur árs­ins 2017) jákvæð um 51 millj­arð króna en A-hlut­inn, sá hluti sem fjár­magn­aður er með skatt­tekjum og not­aður er til að greiða fyrir þjón­ustu, rek­inn með rúm­lega tíu millj­arða króna tapi. Þar verður þó að taka inn gjald­færslu á áður­nefndum 14,6 millj­arða líf­eyr­is­skuld­bind­ingum sem voru ein­skiptis­kostn­aður.

Sveita­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram næsta vor.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar