Fjárfesting í gamla FL Group þegar búin að skila milljarðaávöxtun

Snemma á árinu keyptu Tryggingamiðstöðin (TM) og nokkrir fjárfestar meirihluta í Stoðum, áður FL Group. Hópurinn var að mestu samansettur af hluthöfum í TM og mönnum sem áður gegndu lykilstöðum hjá FL Group. Virði hlutarins hefur aukist um milljarða.

FL Group var eitt alræmdasta fjárfestingafélag fyrirhrunsáranna. Það fór aldrei í þrot og er enn starfandi undir sömu kennitölu. Í dag heitir það Stoðir og heldur nú utan um eina eign.
FL Group var eitt alræmdasta fjárfestingafélag fyrirhrunsáranna. Það fór aldrei í þrot og er enn starfandi undir sömu kennitölu. Í dag heitir það Stoðir og heldur nú utan um eina eign.
Auglýsing

Í vor keyptu tvö félög stóran hlut í Stoð­um, sem áður hét FL Group. Félögin keyptu hlut­ina að mestu af Glitni­Holdco, eifn­ar­halds­fé­lagi utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka Glitn­is. Þegar hlutur félag­anna tveggja var lagður saman við lít­inn hlut hol­lensks aðila sem starfar með þeim er sam­eig­in­legur eign­ar­hlutur hóps­ins um 52 pró­sent. Hann er því með meiri­hluta í Stoð­u­m/FL Group, sem eitt sinn var alræmdasta fjár­fest­inga­fé­lag lands­ins.

Glitn­ir­Holco hefur ekk­ert viljað  gefa upp um hvað hefði verið greitt fyrir hlut­inn sem félagið seldi, en það  hafði átt 40,28 pró­sent hlut. Raunar hafa ekki feng­ist upp­­lýs­ingar um hvenær hóp­­ur­inn sem nú á meiri­hluta í Stoðum hóf upp­­­kaup sín á bréf­um, hvað hann greiddi fyrir hlut­inn né hvernig þau kaup voru fjár­­­mögn­uð.

Hlutafé sam­tals 4,8 millj­arðar króna

Í sam­þykktum félags­ins sem keypti hlut­inn, S122 ehf., er hlutafé þess félags um 4,1 millj­arður króna. Eina eign S122 er hlut­ur­inn í Stoð­u­m/FL Group og félagið var stofn­sett í þeim eina til­gangi að kaupa þann hlut.

Hitt félagið sem keypti stóran hlut í Stoðum heitir S121 ehf. Það á 8,45 pró­sent hlut í félag­inu. Hlutafé þess er 700 millj­ónir króna. Fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ing­ar, sem hægt er að nálg­ast úr fyr­ir­tækja­skrá, benda því til þess að greitt hafi verið um 4,8 millj­arðar króna fyrir 48,73 pró­sent hlut í Stoðum snemma í vor.

Miðað við það verð mætti ætla að mark­aðsvirði Stoða væri um tíu millj­arðar króna.

Eina eft­ir­stand­andi eign Stoða/FL Group er 8,87 pró­sent hlutur í hol­lenska drykkja­vöru­fram­leið­and­anum Refresco. Um síð­ustu ára­mót var mark­aðsvirði þess hlutar um 12 millj­arðar króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi Stoða.

Sam­kvæmt kynn­ingu sem haldin var á hlut­hafa­fundi Stoða/21. apríl síð­ast­lið­inn, eftir að kaupin voru öll um garð geng­in, kom fram að virði hlut­ar­ins væri um 128 millj­ónir evra, sem er 15,9 millj­arðar króna á núvirði. Síðan þá hefur hluta­bréfa­verð í Refresco reyndar fallið um átta pró­sent. Virðið í dag ætti því að vera um 14,6 millj­arðar króna.

Auglýsing
Í apríl gerði félagið  PAI Partners SAS, sem er fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lag sem ein­blínir á Evr­­­ópu­­­mark­að, yfir­­­­­tökutil­­­boð í Refresco. Til­­­boðið var upp á 1,4 millj­­arða evra. Sam­­kvæmt því til­­­boði myndu Stoðir fá 15,4 millj­­arða króna fyrir sinn hlut á núvirði. Það er aðeins minna en skráð mark­aðsvirði Refresco en umtals­vert meira en þeir 12 millj­­arðar króna sem hlut­­ur­inn var met­inn á í árs­­reikn­ingi Stoða fyrir árið 2016. Til­boð­inu var hins vegar hafn­að. Það þótti ekki nægi­lega gott.

Því virð­ist ljóst að hóp­ur­inn sem keypti hlut­inn í Stoðum snemma á þessu ári, í við­skiptum sem litlar upp­lýs­ingar fást um, hefur hagnað mjög vel á fjár­fest­ingu sinni. Við­mæl­endur Kjarn­ans í við­skipta­líf­inu segja fyr­ir­liggj­andi að saman hafi hóp­ur­inn þegar hagnast, bók­halds­lega, um nokkra millj­arða króna.

Gamlir lyk­il­menn úr FL og stjórn­ar­menn TM

En hverjir eru í þessum hópi? S122 (áður Ell 323) og S122 eru í eigu fjög­urra einka­hluta­fé­laga og eins skráðs félags, Trygg­inga­mið­stöðv­ar­inn­ar.  Fé­lögin fjögur heita Helg­­ar­­fellehf., Esju­­borg ehf., Einir ehf. og GGH ehf. Þrjú þeirra, eru í eigu aðila sem eru líka stórir hlut­hafar í Trygg­ing­­ar­mið­­stöð­inni. Og eig­endur þeirra voru margir hverjir lyk­il­menn í FL Group á árunum fyrir hrun.

Esju­­borg er í 50 pró­­sent eigu félags sem heitir Jökla­­borg. Það er skráð í 100 pró­­sent eigu Jóhanns Arn­­ars Þór­­ar­ins­­son­­ar, for­­stjóra og eins stærsta eig­anda veit­ing­­aris­ans Foodco. Hinn helm­ing­­ur­inn í Esju­­borg er í eig Riverside Capi­­tal SARL, félags sem er skráð í Lúx­em­­borg. Sam­­kvæmt Pana­ma­skjöl­unum er það félag í end­an­­legri eigu For­town Corp, félags skráð á Möltu. Eig­andi þess félags er Örvar Kærne­­sted. RiversideCapi­­tal á líka 2,63 pró­­sent hlut í Trygg­inga­mið­­stöð­inni í gegnum íslenska félagið Riverside Capi­­tal ehf. Hann situr einnig í stjórn Trygg­inga­mið­­stöðv­­­ar­inn­­ar. Örvar var yfir starf­­semi FL Group í London um tíma fyrir banka­hrun og þar áður hjá Kaup­­þingi í níu ár.  Hann er nú umsvifa­­mik­ill fjár­­­fest­­ir. Hann sett­ist í stjórn Stoða á síð­­asta aðal­­fundi félags­­ins, se fór fram 21. apríl síð­­ast­lið­inn.

Stoðir eiga í dag eina eign, 8,87 prósent hlut í hollenska drykkjavöruframleiðandanum Refresco.Einar Örn Ólafs­­son er líka á meðal eig­enda Trygg­inga­mið­­stöðv­­­ar­inn­­ar. Hann á 2,76 pró­­sent hlut í henni í gegnum félag sitt Einir ehf. Það félag er líka á meðal þeirra sem náð hafa yfir­­ráðum í Stoð­­um. Einar starf­aði hjá Glitni og síðar Íslands­­­banka á árum áður. Hann var meðal ann­­ars for­­stöð­u­­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Íslands­­­banka fyrstu mán­uð­ina eftir að bank­inn var end­­ur­reistur eftir hrun­ið. Hann gerð­ist síðan for­­stjóri Skelj­ungs í maí 2009 eftir að hafa hætt hjá bank­­anum vegna trún­­að­­ar­brests. Hann er í dag umsvifa­­mik­ill fjár­­­fest­­ir.

Stærsti ein­staki eig­andi að hlutum í Trygg­inga­mið­­stöð­inni, að und­an­­skildum líf­eyr­is­­sjóðum og sjóðs í stýr­ingu Stefn­is, er félag sem heitir Helg­­ar­­fell ehf. með 6,34 pró­­sent hlut. Helg­­ar­­fell er líka á meðal þeirra félaga sem keyptu stóran hlut í Stoðum með Trygg­ing­­ar­mið­­stöð­inni á síð­­­ustu mán­uð­­um.

Eig­endur Helg­­ar­­fells eru Björg Fen­­ger, Kristín Fen­­ger Ver­­munds­dóttir og Ari Fen­­ger. Björg er eig­in­­kona Jóns Sig­­urðs­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra FL Group/­Stoða. Jón tók við sem stjórn­­­ar­­for­­maður Stoða á síð­­asta aðal­­fundi félags­­ins fyrir tæpum mán­uði síð­­­an.

Fjórða félagið sem er stór eig­andi í S122 og S121 heitir GGH ehf.  Eig­endur þess eru Gruppen ehf. (í eigu hol­­lenska félags­­ins Golden Gate Mana­­gement BV, sem teng­ist Magn­úsi Ármann), Ágúst Már Ármann (faðir Magn­úsar Ármann), og BNB Consulting (fé­lag í eigu Bern­hards Boga­­son­­ar, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóra lög­­fræð­is­sviðs FLGroup) sem á eitt pró­­sent hlut. Magnús Ármann var á meðal hlut­hafa í FL Group fyrir hrun og sat í stjórn félags­­ins.

Sam­­starfs­að­ili hóps­ins er félagið Tavira Securities sem er í eigu óþekkts hol­­lensk fjár­­­fest­­is.

Félögin sem notuð voru til að kaupa hluti í Stoðum hafa þegar skipt um stjórn­­­ir. Í S121er Gunnar Sturlu­­son lög­­­maður í stjórn. Hann var lengi vel náinn sam­­starfs­­maður Hann­esar Smára­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra FL Group, var lög­­­maður hans, sat í stjórnum og var skráður fram­­kvæmda­­stjóri félaga í eigu Hann­es­­ar. Gunnar er líka í stjórn S122. Þar situr hann ásamt Þor­­steini M. Jóns­­syni, sem á árum áður var oft­­ast kenndur við kók. Þor­­steinn átti hlut í FL Group fyrir banka­hrun­ið, sat í stjórn félags­­ins og tók við sem stjórn­­­ar­­for­­maður Glitnis um tíma eftir að FL Group og tengdir aðilar náðu yfir­­ráðum yfir bank­an­­um.

Bæði Jón Sig­­urðs­­son og Þor­­steinn M. Jóns­­son hafa setið í stjórn Refresco fyrir hönd íslenskra eig­enda. Jón situr þar raunar enn og hefur gert frá 2009.

„Vegur lang þyngst í afkom­unni“

Trygg­inga­mið­stöðin birti hálfs­árs­upp­gjör sitt í síð­ustu viku. Þar kemur fram að mjög vel hafi gengið í fjár­fest­inga­starf­semi félags­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2017. Í fjár­festa­kynn­ingu sem haldin var í tengslum við upp­gjörið kom fram að eign­ar­hlutur Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar í Stoðum er bók­færður á tæp­lega 1,8 millj­arða króna.

Í kynn­ing­unni var einnig greint frá því að mjög góð afkoma hafi verið af óskráðum hluta­bréfum í eigu Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar á fyrri hluta árs­ins, en ávöxtun þeirra var 9,5 pró­sent á tíma­bil­inu. . Sig­urður Við­ars­son, for­stjóri Trygg­inga­mið­stöðv­ar­inn­ar, sagði á fjár­fest­inga­kynn­ing­unni að þarna vegi „ lang þyngst ný eign, sem við keyptum í vor, þegar við keyptum ásamt öðrum fjár­festum meiri­hluta í Stoð­um, sem eiga eina eign, eign­ar­hlut í Refresco. Það veldur því að óskráðu hluta­bréfin hækk­uðu meira en við höfðum gert ráð fyrir og vegur lang þyngst í afkom­unni þarna.“



Því er ljóst að fjár­fest­ingin hefur skilað Trygg­inga­mið­stöð­inni, og einka­fjár­fest­unum sem tóku þátt í henni með félag­inu, mönnum sem sitja í stjórn Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar og eru í hlut­hafa­hópi félags­ins, mik­illi ávöxt­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar