Ferðaþjónustan orðin að stoðvirki í hagkerfinu

Vöxtur ferðaþjónustunnar hefur umbreytt henni í afar mikilvæga stærð fyrir íslenskan efnahag. Því fylgja tækifæri en líka hættur. Er flugfélögin orðin að kerfisáhættuþætti svipað og bankastarfsemi? Í hverju liggja tækifærin?

flug
Auglýsing

Lands­bank­inn birti í vik­unni sem leið ítar­lega grein­ingu sína á ferða­þjón­ust­unni á Íslandi, og fylgdi því úr vör með fundi um þessa und­ir­stöðu­at­vinnu­grein Íslands.

Margt athygl­is­vert má finna í grein­ingu bank­ans. Fimm atriði verða hér dregin fram sér­stak­lega, sem sýna glögg­lega hversu mikið vægi ferða­þjón­ust­unnar hefur fyrir Ísland, og hversu miklir hags­munir eru í húfi fyrir íslenskt efna­hags­líf.

1. Árið 2015 nam útflutn­ingur ferða­þjón­ustu í hag­kerf­inu um 31 pró­sent af heild­ar­út­flutn­ingi. Til sam­an­burðar er heims­með­al­talið um 7 pró­sent. Vægi ferða­þjón­ust­unnar í útflutn­ingi er því ríf­lega fjór­falt meira á Íslandi en það er almennt í heim­in­um. Á síð­ustu tveimur árum hefur þetta hlut­fall farið hækk­andi, og spáir hag­fræði­deild Lands­bank­ans því að vægið verði um 43 pró­sent á þessu ári.

Auglýsing

2. Sé mið tekið af rann­sóknum hag­fræði­deildar Lands­bank­ans á því, hversu næm ferða­þjón­ustan er fyrir geng­is­breyt­ing­um, þá bendir margt til þess að ferða­þjón­usta á Íslandi sé ekki eins næm fyrir hækkun verð­lags vegna geng­is­breyt­inga heldur en gengur og ger­ist í heim­in­um. Þetta eru sagðar jákvæðar frétt­ir, sem slá á miklar áhyggjur manna af því að ferða­mönnum muni fækka á næstu miss­er­um. Hag­fræði­deildin gerir ráð fyrir 22 pró­sent fjölgun ferða­manna á þessu ári, en síðan fari að hægja nokkuð á fjölg­un­inni. Hún verði 8 pró­sent á næsta ári og 5 pró­sent árið 2019.

3. Önnur eyríki sem reiða sig að miklu leyti á ferða­þjón­ustu, eru líkt og Ísland afar háð því að flug­sam­göngur séu góðar og skil­virk­ar. Um 99 pró­sent allra erlendra ferða­manna sem koma til Ísland koma um Kefla­vík­ur­flug­völl, og því er kerf­is­lægt mik­il­vægi hans fyrir ferða­þjón­ust­una og hag­kerfi í heild sinni afar mik­ið. Gíf­ur­legt álag hefur verið á vell­inum á und­an­förnum árum, og er upp­bygg­ing hans nú í gangi. Sam­kvæmt gögnum sem hag­fræði­deild Lands­bank­ans tók saman þá voru flug­hreyf­ingar (áætl­un­ar- og leiguflug) á vell­inum 45.771 í fyrra sem er um 178 pró­sent aukn­ing frá árinu 2009. Þessi vöxtur er fáheyrður í alþjóð­legu sam­hengi. Með­al­tals­fjöldi milli­landa­fluga á hverjum degi var 63.

Erlendir ferðamenn eru í lykilhlutverki í íslensku efnahagslífi.

4. Því er velt upp í grein­ingu Lands­bank­ans, hvort flug­fé­lögin Icelandair og WOW Air séu orðin kerf­is­lægt mik­il­væg fyrir fjár­mála­stöð­ug­leika í land­inu, með svip­uðum hætti og fjár­mála­fyr­ir­tækin stærstu eru skil­greind sem kerf­is­lægt mik­il­væg út frá þeim mæli­kvarða. Fram kemur í umfjöll­un­inni að ef flug­fé­lögin lendi í vand­ræð­um, þá geti það leitt til alvar­legra áfalla fyrir íslenskt efna­hags­líf í heild sinni. Svo yfir­þyrm­andi eru stærðir ferða­þjón­ust­unnar orðnar fyrir íslenska hag­kerf­ið. Þarf að útbúa við­bragðs­á­ætl­anir og neyð­ar­úr­ræði, vegna þess­ara mik­il­vægu félaga? Að þessu er spurt í grein­ing­unni.

5. Grein­ing Lands­bank­ans gerir ráð fyrir að fjölgun gistin­átta geti mögu­lega hafa verið van­metin á und­an­förnum árum. Er ástæðan sú að stór hluti af gisti­mark­aðnum er óskráð­ur. Telur grein­ingin meðal ann­ars að Air­bnb kunni að vera með helm­ing af gisti­mark­aðnum á Íslandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar