Fjármagnstekjuskattur verður hækkaður og fæðingarorlof lengt

Í stjórnarsáttmála verðandi ríkisstjórnar kemur fram að það eigi að stofna stöðugleikasjóð og gera hvítbók um endurskipulagningu fjármálakerfisins. Málefni Seðlabankans verða áfram í forsætisráðuneytinu og nefnd skipuð um endurskoðun stjórnarskrár.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, verður næsti forsætisráðherra þjóðarinnar ef stjórnarsáttmálinn verður samþykktur á morgun.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, verður næsti forsætisráðherra þjóðarinnar ef stjórnarsáttmálinn verður samþykktur á morgun.
Auglýsing

Fjár­magnstekju­skattur verður hækk­að­ur, hvít­bók verður skrifuð um end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins, fæð­ing­ar­or­lof lengt og greiðslur til þeirra sem það taka hækk­að­ar, komu- og brott­far­ar­gjöld verða lögð á og gistin­átta­gjald mun renna óskert til sveit­ar­fé­laga. Stofn­aður verður stöð­ug­leika­sjóð­ur, sem kall­aður verður Þjóð­ar­sjóð­ur, og skip­aðar þverpóli­tískar nefndir um end­ur­skoðun á stjórn­ar­skrá og um hvort þurfi að end­ur­skoða útlend­inga­lög­in. Þetta eru á meðal þeirra atriða sem er að finna í stjórn­ar­sátt­mála verð­andi rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dótt­ur, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Það vekur athygli að í þeim sátt­mála sem kynntur hefur verið þing­mönnum verð­andi stjórn­ar­flokka er ekk­ert minnst á ramma­á­ætl­un, sem var deilu­mál milli for­manna flokk­anna þriggja sem standa að rík­is­stjórn­inni á meðan að við­ræður þeirra stóðu yfir. Þar er heldur ekk­ert fjallað um hvort og þá hvernig eigi að ráð­stafa því fé sem nú liggur í bönkum í eigu rík­is­ins og sumir við­mæl­endur Kjarn­ans sem hafa séð sátt­mál­ann telja að það vanti mjög upp á að þær tekju­öfl­un­ar­leiðir sem röt­uðu í hann dugi fyrir þeirri útgjalda­aukn­ingu sem stefnt er að.

Seðla­banka­mál verða hjá Katrínu

Sátt­mál­inn verður lagður fyrir flokks­stofn­anir Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna á morg­un. Vinstri græn munu svo halda þing­flokks­fund á fimmtu­dags­morgun verði hann sam­þykktur þar sem gerð verður nán­ari grein fyrir ráð­herra­skipan flokks­ins og annarri verka­skipt­ingu rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Síðan er gert ráð fyrir að rík­is­ráðs­fundur verði hald­inn síð­degis á fimmtu­dag og nýja rík­is­stjórnin taki þá við.

Auglýsing

Enn liggur ekki nið­ur­neglt fyrir hvaða flokkur fær hvaða ráðu­neyti en sam­komu­lag ríkir um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái fimm ráðu­neyti, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn þrjú og Vinstri græn þrjú auk þess sem búist er við því að Stein­grímur J. Sig­fús­son verði for­seti Alþing­is.

Katrín verður for­sæt­is­ráð­herra og nær öruggt er að Bjarni Bene­dikts­son verði fjár­mála­ráð­herra. Eitt af þeim málum sem tek­ist var á um í við­ræðum flokk­anna þriggja var hvar mál­efni Seðla­banka Íslands ættu að vera en nú liggur fyrir að þau verða áfram í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Katrín mun því skipa næsta seðla­banka­stjóra, en skip­un­ar­tími Más Guð­munds­sonar rennur út á kjör­tíma­bil­inu.

Þjóð­ar­sjóður verður til

Þær tekju­öfl­un­ar­leiðir sem m.a. er minnst á í sátt­mál­anum eru hækkun fjár­magnstekju­skatts sem á að skila 2,5 millj­örðum króna á ári í rík­is­kass­ann. Þá á að leggja á komu- og brott­far­ar­gjöld í stað þess að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu, líkt og síð­asta rík­is­stjórn ætl­aði að gera. Gistin­átta­gjald á að renna óskipt til sveit­ar­fé­laga og vera ákveðið hlut­fall af kostn­aði við gist­ingu. Þannig greiði þeir sem vilji lúx­us­gist­ingu fleiri krónur í gjaldið en þeir sem kjósi að gista í tjaldi á tjald­svæði.

Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson hafa lokið viðræðum við Katrínu Jakobsdóttur um myndun ríkisstjórnar. MYND: Birgir Þór HarðarsonFjallað er um vaxta- og hús­næð­is­bætur og breyt­ingar á greiðslum til þeirra sem taka fæð­ing­ar­or­lof. Þá á einnig að lengja orlofið en Vinstri græn lögðu til að mynda fram frum­varp fyrr á þessu ári um að lengja það úr níu mán­uðum í tólf í tveimur þrep­um. Sú leng­ing átti þá að vera að fullu komin til fram­kvæmda 2019.

Til stendur að stofna stöð­ug­leika­sjóðs, sem mun kall­ast þjóð­ar­sjóð­ur. Inn í hann eiga að renna til dæmis arð­greiðslur úr orku­fyr­ir­tækj­um. Þá á að skrifa hvít­bók um end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins og stuðla að gagn­sæi í eign­ar­haldi fjár­mála­fyr­ir­tækja. Ekk­ert er hins vegar sér­tækt, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, um hvað eigi að gera með það fé sem liggur inni í bönkum í eigu rík­is­ins.

Þverpóli­tískar nefndir skip­aðar

Aðgerðir í loft­lags­málum eru sagðar vera mjög í anda þeirra sem þegar liggja fyr­ir. Athygli vekur að ekk­ert var fjallað um ramma­á­ætl­un, sem segir til um hvaða virkj­un­ar­kosti eigi að vernda og hverja eigi að nýta, í þeim sátt­mála sem við­mæl­endur Kjarn­ans sáu.

Þá sé lítið fjallað um hvernig rekstr­ar­form þyki æski­leg­ust í heil­brigð­is­kerf­inu og almennt orða­lag um Borg­ar­línu, sem er sam­göngu­fram­kvæmd sem öll sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu leggja mik­inn þunga á.

Eng­inn flokk­anna þriggja sem nú taka við völdum hefur verið yfir sig áhuga­samur um að ráð­ast í stór­felldar stjórn­ar­skrár­breyt­ing­ar. Nið­ur­staða þeirra mála, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, í sátt­mál­anum er að skipa þverpóli­tíska nefnd um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár. Önnur þverpóli­tísk nefnd verður einnig skipuð til að fara yfir lög um útlend­inga­mál til að kanna hvort að þeim þurfi að breyta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar