United Silicon verður sett í þrot í dag

56 starfsmenn United Silicon munu mögulega missa starf sitt. Framtíð þeirra er nú í höndum skiptastjóra. Mögulegt að nýtt félag verði myndað um rekstur kísilmálmverksmiðjunnar í Helguvík en þrjá milljarða kostar að gera hana starfhæfa.

United Silicon ágúst 2017
Auglýsing

United Sil­icon verður sett í þrot í dag sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Beiðni þess efnis verður skilað inn fyrir klukkan 16. Alls eru 56 starfs­menn enn að störfum hjá fyr­ir­tæk­inu og það verður skipta­stjóra að ákveða hvað verður um störf þeirra. Hann mun einnig þurfa að taka ákvörðun um hvort að nýtt félag verði stofnað um rekstur kís­il­málm­verk­smiðju United Sil­icon í Helgu­vík. Það yrði þá að gera með sam­þykki helstu kröfu­hafa félags­ins, en Arion banki er þeirra langstærst­ur. Nokkrir íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru einnig í þeim hópi.

­Starf­semi verk­smiðj­unnar var stöðvuð 1. sept­em­ber 2017 eftir að Umhverf­is­stofnun tók ákvörðun þess efn­is. Óheim­ilt var að end­ur­ræsa ofn verk­smiðj­unnar nema með skrif­legri heim­ild frá stofn­un­inni að loknum full­nægj­andi end­ur­bótum og ítar­legu mati á þeim.

Arion banki og líf­eyr­is­sjóð­irnir sem tóku yfir United Sil­icon að mestu í fyrra­haust höfðu von­ast til þess að hægt yrði að hefja starf­semi að nýju með því að gera úrbætur sem myndu kosta  fimm millj­ónir evra, um 630 millj­ónir króna. Von­ast var til að hægt yrði að selja verk­smiðj­una ef svo væri.

Auglýsing
Í bréfi sem Umhverf­is­stofnun sendi til for­svars­manna United Sil­icon seint síð­ast­lið­inn föstu­dag kemur hins vegar fram að þær úrbætur muni ekki duga. Sam­kvæmt þeim úrskurði þarf að ráð­ast í úrbætur sem kosta um þrjá millj­arða króna áður en að verk­smiðjan fær að fara í gang að nýju. Þar með þykir úti­lokað að hægt verði að selja verk­efnið að óbreyttu. Kostn­aður nýrra eig­enda við að koma verk­smiðj­unni aftur í gang yrði ein­fald­lega of mik­ill.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að til greina komi að kæra úrskurð Umhverf­is­stofn­unar frá því á föstu­dag. Það verður þó skipta­stjóra að ákveða slíkt eftir að United Sil­icon verður sett í þrot.

Sorg­ar­saga

United Sil­icon er fyrsta kís­il­málm­verk­smiðjan sem hefur verið gang­sett á Íslandi. Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, þáver­andi iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, setti ljós­boga­ofn verk­smiðj­unnar af stað 13. nóv­em­ber 2016. Fljót­lega fór að bera á mik­illi óánægju hjá íbúum í Reykja­nesbæ með mengun frá verk­smiðj­unni. Margir fundu fyrir tölu­verðum lík­am­legum ein­kennum vegna þessa. Í apríl til­kynnti Umhverf­is­stofnun for­svars­mönnum United Sil­icon að ekki yrði hjá því kom­ist að loka verk­smiðj­unni vegna meng­unar sem frá henni streymdi. Í kjöl­farið voru veittir frestir en starf­semin var end­an­lega stöðvuð 1. sept­em­ber 2017 og fram­leiðsla hefur legið niðri síð­an.

Höskuldur Ólafsson er bankastjóri Arion banka. MYND: Arion banki.Áður höfðu helstu lán­veit­endur United Sil­icon, Arion banki og nokkrir íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir, tekið yfir United Sil­icon. Félagið óskaði eftir greiðslu­stöðvun í ágúst 2017 og bar fyrir sig erf­ið­leika í rekstri sem rekja mætti til síend­ur­tek­inna bil­ana í bún­aði sem valdið höfðu félag­inu miklu tjóni. Þá féll gerð­ar­dómur í deilu United Sil­icon við ÍAV hf., sem hafði tekið þátt í að reisa verk­smiðj­una, í fyrra­sum­ar. Sam­kvæmt honum átti United Sil­icon að greiða ÍAV um einn millj­arð króna, sem félagið átti ekki til.

Hlut­hafar og kröfu­hafar tapað stórum fjár­hæðum

Hlut­hafar og kröf­u­hafar félags­­ins hafa þurft að afskrifa stórar upp­­hæðir vegna United Sil­icon það sem af er þessu ári. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 millj­­­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn hefur að mestu tekið yfir hlutafé en útistand­andi skuld­bind­ingar nema ennþá 5,4 millj­­­örð­um, sam­­­kvæmt síð­­­asta birta upp­­­­­gjöri bank­ans. Arion banki hefur auk þess ábyrgst rekst­­­ur­inn á greiðslu­­­stöðv­­­un­­­ar­­­tím­­­anum en hann hefur borgað um 200 millj­­­ónir króna á mán­uði vegna hans, frá því greiðslu­­­stöðv­­­un­­­ar­­­tím­inn hófst í ágúst.

Frjálsi líf­eyr­is­­­sjóð­­­ur­inn, sem fjár­­­­­festi 1.178 millj­­­ónum króna í United Sil­icon, hefur færð niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­­ur­inn á í fyr­ir­tæk­inu um 90 pró­­­sent. Um var­úð­­­ar­n­ið­­­ur­­­færslu er að ræða, og nemur hún rúmum millj­­­arði króna. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­­launa­­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­­manna (EFÍA). Þar nemur nið­­­ur­­­færslan einnig 90 pró­­­sent­­­um. Líf­eyr­is­­­sjóð starfs­­­manna Bún­­­að­­­ar­­­banka Íslands (LSBÍ) fjár­­­festir einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­un­­­ar­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­stöðvum hans í Borg­­­ar­­­túni.

Þá setti líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn Festa 875 millj­­ónir króna í United Sil­icon. Hann hefur einnig fram­­kvæmt var­úð­­ar­n­ið­­ur­­færslu vegna verk­efn­is­ins.

Úttekt til­búin i lok mars

Í sept­em­ber 2017 lagði Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisn­ar, fram beiðni á Alþingi um úttekt á aðkomu rík­is­ins að aðdrag­anda og eft­ir­málum þess. Fór hún fram á að Rík­is­end­ur­skoðun myndi vinna úttekt­ina. Beiðnin var lögð fram á ný í des­em­ber.

RÚV greindi frá því fyrr í dag að Rík­is­end­ur­skoðun vinni nú að úttekt­inni. Í frétt á vef RÚV segir að búist sé við því að úttektin verði til­búin í lok mars.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar