Mynd: Birgir Þór Harðarson 7DM_0815_raw_2406.JPG
Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslenskur fjölmiðlaheimur gjörbreyttist á einu ári

Rekstrarumhverfi fjölmiðla hefur breyst mikið á örfáum árum vegna upplýsinga- og tæknibyltingar. Þau viðskiptamódel sem voru undirstaða hefðbundinna fjölmiðla áratugum saman, áskriftar- og auglýsingasala, eiga undir högg að sækja og eru í mörgum tilfellum hrunin.

Í upp­hafi árs 2017 var skipuð nefnd sem hafði það hlut­verk að skila til­lögum um hvernig bæta mætti rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi. Á meðan að sú nefnd starf­aði urðu mestu breyt­ingar sem orðið hafa á íslensku fjöl­miðla­lands­lagi í ára­tugi. Jafn­vel frá upp­hafi. 

Á einu ári lagði það dag­blað sem hafði næst mesta útbreiðslu upp laupana, ein af stærstu fjöl­miðla­sam­steypum lands­ins lið­að­ist í sundur og hluti hennar fór í þrot, stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins var skipt upp og skilin milli fjar­skipta og fjöl­miðla urðu enn óskýr­ari. Svo fátt eitt sé nefnt.

Frétta­tím­inn hvarf

Fyrstu stóru svipt­ing­arnar á árinu 2017 urðu strax í febr­úar þegar greint var frá því að fjár­hags­leg end­ur­skipu­lagn­ing á frí­blað­inu Frétta­tím­anum stæði yfir. Til­kynn­ingin kom mörgum á óvart þar sem nýir eig­end­ur, undir for­ystu Gunn­ars Smára Egils­son­ar, höfðu keypt allt hlutafé í miðl­inum í nóv­em­ber 2015 og blásið til mik­illar sóknar með ráðn­ingu á reyndu starfs­fólki og fjölgun útgáfu­daga úr einum í viku í þrjá í viku. 

Í byrjun apríl var ljóst að það stefndi í óefn­i. Gunnar Smári til­kynnti þá að hann væri hættur afskiptum af útgáf­unni. Starfs­menn höfðu á þessum tíma ekki fengið greidd laun og erf­ið­lega gekk að fá nokkrar upp­lýs­ingar frá stjórn­endum um hvort að slíkt stæði til. 

Frétta­tím­inn kom út í síð­asta sinn föstu­dag­inn 7. apríl 2017. Skömmu áður hafði verið greint frá því að blaðið hefði tapað 151 millj­ónum króna á árinu 2016. Tapið hafði tífald­ast milli ára. 

Útgáfu­fé­lag Frétta­tím­ans var tekið til gjald­þrota­skipta í júlí og kröfur í búið námu 236 millj­ónum króna.

Sápu­óperan í kringum Press­una

Mesta drama­tíkin á fjöl­miðla­mark­aði í fyrra var í kringum Pressu­sam­stæðu Björns Inga Hrafns­son­ar, sem hafði árin á undan farið mik­inn og sankað að sér allskyns fjöl­miðlum oft með skuld­settum yfir­tök­um. Síð­asta yfir­takan var á tíma­rita­út­gáf­unni Birt­ingi í lok árs 2016 og eftir hana voru tæp­lega 30 miðlar í Pressu­sam­stæð­unn­i. Þeirra þekkt­­astir voru DV, DV.is, Eyj­an, Pressan, sjón­­varps­­stöð­in ÍNN og tíma­­ritin Vikan, Gest­gjaf­inn, Nýtt líf og Hús og híbýli.

Í apríl var til­kynnt um að hlutafé Pressunnar yrði aukið um 300 millj­ónir króna og að sam­hliða myndi Björn Ingi stíga til hlið­ar. Sá aðili sem ætl­aði að koma með mest fé inn í rekst­ur­inn var Fjár­fest­inga­fé­lagið Dal­ur­inn, félag í eigu Róberts Wessman, Árna Harð­ar­sonar og þriggja ann­arra manna. Með þeim var hópur ann­arra fjár­festa og svo virt­ist sem Pressu­sam­stæð­unni væri borg­ið.

Gjald­þrot og kærur vegna meintra lög­brota

Nýju fjár­fest­arnir komust þó fljót­lega að því að mun meira vant­aði til þess að rétta af rekst­ur­inn en þeir höfðu talið áður. Um miðjan maí voru þeir hættir við aukna fjár­fest­ing­u en áttu þó enn meiri­hluta hluta­fjár í sam­stæð­unni. Á sama tíma var kaupum Pressunnar á Birt­ingi rift og Dal­ur­inn keypti í kjöl­farið allt hlutafé þess fyr­ir­tæk­is. Það útgáfu­fé­lag gefur meðal ann­ars út Mann­líf í sam­starfi við Kjarn­ann.

Drama­tík­inni var þó hvergi nærri lok­ið. Í byrjun sept­em­ber var til­kynnt að Sig­­­urð­ur G. Guð­jóns­­­son hæsta­rétt­­­ar­lög­­maður hef­ði ásamt hópi fjár­­­­­festa keypt 

flesta lyk­ilmiðla Pressu­sam­stæð­unnar með hluta­fjár­aukn­ingu. Um var að ræða DV, DV.is, Press­una, Eyj­una, Bleikt, ÍNN og tengda vefi. Eftir í gamla eign­ar­halds­fé­lag­inu voru skildir hér­aðs­frétta­miðl­ar. For­svars­menn Dals­ins sögðu að þeir hefðu ekki vitað um þennan gjörn­ing fyrr en hann var afstað­inn.

Óljóst er hvort að ofan­greind við­skipti muni halda. Pressan var tekin til gjald­þrota­skipta í des­em­ber 2017 og skipta­stjóri skip­aður yfir búið. Grunur er uppi um lög­­brot í starf­­semi félags­­ins, og hefur ný stjórn kært Björn Inga og Arnar Ægis­son, fyrr­ver­and­i fram­kvæmda­stjóra ­fyr­ir­tæk­is­ins, til hér­­aðs­sak­­sókn­­ara vegna lög­­brota. Þá verður skoðað hvort kröfu­höfum Pressunnar hafi verið mis­munað og hvort það eigi að rifta sölu á miðlum félags­ins.

365 og Voda­fone runnu að mestu saman

Stærstu tíð­indin á fjöl­miðla­mark­aði á þessu mikla breyt­ing­ar­ári urðu þó lík­ast til um miðjan mars 2017, þegar til­kynnt var um að Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Voda­fone á Íslandi, hefði und­ir­­ritað samn­ing um kaup á öllum eignum og rekstri 365 miðla, að und­an­­skildum eignum er varða útgáfu Frétta­­blaðs­ins. Þeir miðlar sem selja átti yfir frá 365 miðlum voru Stöð 2 og tengdar sjón­­­­varps­­­­stöðv­­­­­­­ar, útvarps­­­­­­­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins (t.d. Bylgj­an, X-ið og FM957) og frétta­vef­­­­ur­inn Vís­ir.is. Frétta­­­­stofa 365 fylgdi með í kaup­un­um, en hún er ein stærsta frétta­­­­stofa lands­ins og sú eina sem heldur úti dag­­­­legum sjón­­­­varps­frétta­­­­tíma utan frétta­­­­stofu RÚV. 

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­­þykkti sam­runa Fjar­­skipta og flestra miðla 365 með skil­yrðum í byrjun októ­ber síð­­ast­lið­ins. Keyptu eign­irnar fær­ð­ust yfir til Fjar­­skipta 1. des­em­ber 2017.

Næst stærsta einka­rekna fjöl­miðla­sam­steypa lands­ins, Árvakur sem gefur út Morg­un­blaðið og tengda miðla, gekk líka í gegnum breyt­ingar í fyrra. Fyr­ir­tækið fór á fullu í útvarps­rekstur og Eyþór Arn­alds, nú fram­bjóð­andi í leið­toga­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar, keypti rúm­lega fjórð­ungs­hlut í Árvakri. 

Auk þess var greint frá því í októ­ber að Árvakur og Sím­inn myndu fram­leiða í sam­ein­ingu inn­lent sjón­varps­efni og dag­skrár­gerð á árinu 2017. 

Frétta­skýr­ingin birt­ist fyrst í Mann­lífi 26. jan­úar 2017.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Efnisflokkar:
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar