Tíu hópar sem borga fyrir auknar tekjur ríkissjóðs á árinu 2018

Skatttekjur ríkissjóðs munu aukast úr 627 milljörðum króna í fyrra í 662 milljarða króna í ár. En hverjir borga þessar auknu tekjur?

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur úr 662 milljörðum króna að spila á yfirstandandi ári.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur úr 662 milljörðum króna að spila á yfirstandandi ári.
Auglýsing

1.Launa­fólk í land­inu

Stefnt er að því að að tekju­skattur sem leggst á ein­stak­linga muni verða 14,1 millj­örðum króna hærri í ár en hann var í fyrra. Alls áætlar íslenska ríkið að ná inn 181,2 millj­örðum króna í tekju­skatt sem leggst á ein­stak­linga í land­inu á árinu 2018.

2. Fyr­ir­tækin í land­inu

Tekju­skattur sem leggst á lög­að­ila, fyr­ir­tæki og félög lands­ins, dregst hins vegar saman á milli ára. Sam­kvæmt fjár­lögum mun hann skila tveimur millj­örðum krónum minna rík­is­kass­ann í ár en hann gerði í fyrra. Alls munu lög­að­ilar greiða 73,5 millj­arða króna í tekju­skatt á þessu ári. Þá munu tekjur af inn­heimtu trygg­ing­ar­gjalds hækka umtals­vert. Þær voru 89 millj­arðar króna í fyrra en fjár­lög árs­ins 2018 gera ráð fyrir að þær verði 96,4 millj­arðar króna.

3. Bankar lands­ins

Þrátt fyrir að búið sé að semja við kröfu­hafa föllnu bank­anna, lyfta höftum að mestu og banka­kerfið að stærstu leyti í eigu rík­is­ins þá er enn inn­heimtur 0,376 pró­sent banka­skattur af heild­ar­skuldum fjár­mála­fyr­ir­tækja sem hafa heim­ild til að taka við inn­lán­um. Þessi sér­staki skattur var fyrst lagður á árið 2010. Banka­skatt­ur­inn skil­aði 8,8 millj­örðum króna í rík­is­sjóð árið 2017 en á að skila 9,2 millj­örðum króna í ár. Sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja hafa sagt að þessi skattur geri það að verkum að bankar séu ekki sam­keppn­is­hæfir við aðra veit­endur útlána. Því borga í raun við­skipta­vinir bank­anna banka­skatt­inn, að minnsta kosti að hluta, í gegnum lak­ari kjör en þeir gætu ella boð­ið.

Auglýsing

4. Fjár­magns­eig­endur

Tæpur helm­ingur allra fjár­magnstekna sem verða til á Íslandi í fyrra renna til tæp­lega tvö þús­und fram­telj­enda. Sá litli hópur er rík­asta eitt pró­sent lands­manna. Skatt­ur­inn skil­aði mun meira í kass­ann árið 2017 en áætl­anir gerðu ráð fyr­ir, eða sam­tals 36 millj­örðum króna. Í ár er reiknað með því að fjár­magns­eig­endur greiði 37,1 millj­arð króna í skatt af pen­ing­unum sem þeir láta vinna fyrir sig, eða 1,1 millj­arði króna meira en í fyrra.

5. Bif­reið­ar­eig­endur

Það er dýrt að eiga bif­reið. Það þarf að greiða olíu­gjald (hækkar úr 10,8 millj­örðum króna í 11,4 millj­arða króna), vöru­gjöld af bens­íni (hækkar úr 12,8 millj­örðum króna í 13,3 millj­arða króna), kíló­metra­gjald af stórum öku­tækjum (hækkar úr 1.030 í 1.100 millj­arða króna) og bif­reiða­gjald (hækkar úr 7,3 millj­örðum króna í 7,5 millj­arða króna)  svo fátt eitt sé nefnt. Mest hækkar þó svo­kallað kolefn­is­gjald, sem er lagt á jarð­efna­elds­neyti og jarð­gas. Tekjur rík­is­sjóð vegna þess fara úr tæpum 3,7 millj­örðum króna í 5,6 millj­arða króna.

6. Hús­næð­is­kaup­endur

Allir ein­stak­lingar sem kaupa sér íbúð­ar­hús­næði þurfa að greiða 0,8 pró­sent af heild­ar­fast­eign­ar­mati í svo­kallað stimp­il­gjald. und­an­­tekn­ing er til staðar að veittur er helm­ings­af­­sláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða. Tekjur rík­is­sjóðs af inn­heimtu stimp­il­gjalda voru 4,8 millj­arðar króna á árinu 2017. Fjár­lög yfir­stand­andi árs gera ráð fyrir að þær tekjur verði 5,1 millj­arður króna í ár.

7. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki

Ein mest ræddi tekju­stofn íslenska rík­is­ins eru veið­gjöld, sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiða fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. Sumum finnst gjöldin allt of há en ansi mörgum finnst þau hafa verið of lág. Þau hækka umtals­vert á milli ára. Í fyrra inn­heimti rík­is­sjóður sex millj­arða króna í veiði­gjöld en sam­kvæmt fjár­lögum er gert ráð fyrir því að þau skili rúmum tíu millj­örðum króna í ár.

8. Þeir sem reykja eða taka í vör­ina

Tóbaks­gjald leggst á allar tóbaks­vör­ur, hvort sem um er að ræða vind­linga og sígar­ettur eða hið gróf­korn­aða nef­tó­bak sem ÁTVR fram­leiðir og sel­ur, og er sjaldn­ast kallað annað en „Rudd­i“. Inn­heimta tóbaks­gjalds skil­aði um sex millj­örðum króna í rík­is­sjóð í fyrra og áætl­anir fyrir árið 2018 gera ráð fyrir að í ár muni tekj­urnar aukast um 50 millj­ónir króna.

9. Þeir sem drekka áfengi

Allir sem flytja inn eða fram­leiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu ber að greiða áfeng­is­gjald. Einnig þeir sem flytja áfengi með sér eða fá það sent erlendis frá, til eigin nota. Áfeng­is­gjald er greitt af neyslu­hæfu áfengi sem í er meira en 2.25 pró­sent af vín­anda að rúm­máli. Þessu gjaldi er velt út í verð­lag og því hækkar það útsölu­verð til neyt­enda. Tekjur rík­is­sjóðs vegna áfeng­is­gjalds voru 17,8 millj­arðar króna árið 2017 en verða, sam­kvæmt fjár­lög­um, 18,6 millj­arðar króna í ár.

10. Allir sem greiða útvarps­gjald til RÚV

Útvarps­­gjaldið er lagt á ein­stak­l­inga 16-70 ára, sem eru með tekju­skatts­stofn yfir tekju­­mörk­um en und­an­þegn­ir frá gjald­inu eru elli- og ör­orku­líf­eyr­is­þegar sem dvelja á dval­­ar- og hjúkr­un­ar­heim­ilum og þeir sem eru 70 ára og eldri í lok tekju­ár­s­ins Gjald­­skyld­an hvíli einnig á inn­­­lend­um lög­að­il­um. Út­varps­gjaldið hækkar úr 16.800 krón­um í 17.200 krón­ur á milli ára. Það þýðir að tekjur rík­is­sjóðs vegna inn­heimtu þess, sem eiga að renna óskiptar til RÚV, fara úr tæp­lega 4,1 millj­arði króna í rúm­lega 4,2 millj­arða króna. Alls nemur hækk­unin 140 millj­ónum króna.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar