Það helsta hingað til: Fléttan um Arion banka

Kjarninn tók saman helstu fréttamál íslensks samfélags á fyrsta fjórðungi ársins 2018. Þar á meðal er kaup og sala á hlutum í Arion banka, stærsta banka þjóðarinnar.

Arion banki
Auglýsing

Hvað?

Lokakafl­inn í flétt­unni um fram­tíð Arion banka, eina stóra við­skipta­bank­ans á Íslandi sem er ekki að meiri­hluta í rík­i­s­eigu, stendur nú yfir.

Hann hófst þegar líf­eyr­is­sjóðum lands­ins var boðið að kaupa allt að fimm pró­sent hlut í bank­an­um. Sjóð­irnir höfðu til 12. febr­úar að svara til­boð­inu. Þeir sögðu pass hver á fætur öðr­um.

Í kjöl­farið var þeim skila­boðum komið til Banka­sýslu rík­is­ins að vilji væri hjá Kaup­skil­um, félagi í eigu Kaup­þings þar sem vog­un­ar­sjóðir eru stærstu hlut­haf­arn­ir, að virkja kaup­rétt á 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka og greiða um 23 millj­arða króna fyrir 13 pró­sent hlut rík­is­ins.

Auglýsing

Sam­hliða fór fram stjórn­ar­fundur hjá Kaup­þingi sem, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, stóð fram á nótt. Nið­ur­staða hans var meðal ann­ars sú að tveir af erlendum hlut­höfum bæði Kaup­þings og Arion banka, Attestor Capi­tal og fjár­fest­ing­ar­bank­inn Gold­man Sachs, myndu kaupa 2,8 pró­sent hlut í Arion af Kaup­þingi til við­bótar við það sem þeir áttu. Auk þess keyptu rúm­lega 20 sjóðir í stýr­ingu fjög­urra af stærstu sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum Íslands: Stefn­is, Íslands­sjóða, Lands­bréfa og Júpít­er, sam­tals 2,54 pró­sent hlut. Sam­an­lagt kaup­verð var um 9,5 millj­arðar króna.

Af hverju?

Ástæða þess að salan á hlutnum var keyrð í gegn þennan dag var ein­föld: þá var hægt að miða kaup­verðið við níu mán­aða upp­gjör Arion banka. Miðað við það er verðið sem greitt var fyrir 0,805 krónur á hverja krónu af eigin fé sem bank­inn á. Ef verðið hefði farið niður fyrir 0,8 krónur hefði for­kaups­réttur rík­is­ins á hlutnum virkj­ast. Ef við­skiptin hefðu farið fram 14. febr­úar hefði það gerst.

15. febr­úar var sam­þykkt að Arion banki myndi kaupa 9,5 pró­­sent hlut í sjálfum sér af Kaup­skil­um, félagi í eigu Kaup­­þings, stærsta eig­anda bank­ans. Um er að kaup á eigin bréfum í sam­ræmi við ákvörðun hlut­hafa­fund­ar. Til við­bótar var greidd arð­greiðsla upp á 7,9 millj­arða króna.

Hver var nið­ur­stað­an?

Mikil póli­tísk átök urðu um ofan­greindar vend­ing­ar. Hluti þing­manna vildi að stjórn­völd myndu grípa inn í ferlið með ein­hverjum hætti, annað hvort með því að nýta for­kaups­rétt sinn á hlutum í Arion banka eða með því að hafna nýt­ingu Kaup­þings á kaup­rétt­inum á hlut rík­is­ins. Stjórn­völd töldu hvor­ugt ger­legt, enda engar for­sendur til staðar til nýt­ingar á for­kaups­rétt­inum og nýt­ing kaup­réttar í sam­ræmi við gerða samn­inga. Auk þess er það skoðun margra ráða­manna að æski­legt sé að ríkið selji að minnsta kosti hluta þeirra banka­eigna sem það á.

Allt er þetta hluti af skrán­ing­ar­ferli Arion banka. Fram undan er nefni­lega tví­hliða­skrán­ing Arion banka á mark­að, hér­lendis og í Sví­þjóð. Enn er stefnt að því að sú skrán­ing fari fram í apr­íl. Í aðdrag­anda hennar mun fara fram hluta­fjár­út­boð þar sem Kaup­þing mun bjóða til sölu hluta af eign sinni í bank­an­um.

Í aðdrag­anda skrán­ingar er eign­ar­hald Arion banka nú mjög breytt frá því sem það var í upp­hafi árs. Kaup­þing, vog­un­ar­sjóðir sem eru ráð­andi innan þess félags og Gold­man Sachs eiga nú 87,95 pró­sent í Arion banka. Bank­inn á sjálfur 9,5 pró­sent hlut sem vænt­an­lega verður færður niður á næst­unni og íslenskir fjár­fest­inga­sjóðir eiga  2,54 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar