Meira af pollagöllum og „rigningarfóðri“ vegna vætutíðar í Reykjavík

Tíðar rigningar og kalt veðurfar í Reykjavík hefur haft misjöfn áhrif á fyrirtæki í höfuðborginni.

Lítið hefur verið af sólríkum dögum í höfuðborginni í sumar
Lítið hefur verið af sólríkum dögum í höfuðborginni í sumar
Auglýsing

Vot­viðri og kuldi hefur sett sinn svip á sum­arið á Suð­vest­ur­horni Íslands. Fyrir utan öll áhrifin sem vætu­tíðin hefur haft á geð­heilsu borg­ar­búa virð­ast mörg fyr­ir­tæki einnig finna fyrir breyt­ingu í starf­semi sinni vegna henn­ar. Þannig hefur þurft að fresta mal­bikun oftar og meira keypt af „rign­ing­ar­fóðri,“ en sala á polla­göllum er í hæstu hæð­um.

Mal­bikun frestað

Sam­kvæmt skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar hefur veð­ur­farið haft áhrif á mal­bikun innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Til þess að hægt sé að mal­bika þurfi yfir­borð að vera þurrt þegar fram­kvæmdir hefj­ast og lím borið á göt­ur. Einnig hamli lágt  hita­stig og mikil vindur fram­kvæmd­um. Í fyrra féllu fram­kvæmdir niður í sam­tals 31 dag yfir fimm mán­aða verk­tíma. Í ár, nú þegar þrír mán­uðir hafa liðið frá fyrsta verk­degi hafa verið 30 ­rign­inga­dag­ar og því hafa tafir vegna rign­ingar verið jafn­miklar og yfir allan sum­ar­tím­ann í fyrra. 

Birkir Hrafn Jóakims­son, bygg­ing­ar­verk­fræð­ingur hjá Vega­gerð­inni, segir vætu­tíð­ina í sumar einnig hafa gert starfs­mönn­unum fyr­ir­tæk­is­ins erfitt fyr­ir. Hann þakkar þó góðum verk­tökum sem unnið hafa á sól­ar­hrings­vöktum til að mal­bika á þurrum köflum um allt land. Þrátt fyrir það hefur mal­bik­un­inni yfir sum­ar­tím­ann seinkað lít­il­lega, en búist er við að henni muni ljúka um miðjan ágúst. 

Auglýsing

Breyt­ing í sund­lauga­ferðum

Nokkur breyt­ing hefur einnig verið í aðsókn sund­lauga milli ára, en sund­lauga­ferðum hefur fækkað í þremur af sex laugum í Reykja­vík. Þótt aukn­ing hafi verið í heild­ar­fjölda sund­lauga­ferða milli sum­r­anna 2017 og 2018 hefur hún aðal­lega verið drifin af nýupp­gerðri Sund­höll Reykja­vík­ur. Í Árbæj­ar­laug, Graf­ar­vogs­laug og Laug­ar­dals­laug hefur sund­ferðum hins vegar fækk­að. 

Dýr og plöntur fagna

Slæmt veð­ur­far und­an­far­inna mán­aða hefur þó ekki haft telj­andi slæm áhrif á dýra-og ­plöntu­líf, ef marka má við­mæl­endur Kjarn­ans. Steinar Smári Guð­bergs­son mein­dýra­eyðir segir helstu breyt­ing­una hjá sér vegna r­ing­ing­ar­inn­ar vera þær að fólk verði ekki var við köngulær og geit­ungabú hjá sér jafn­snemma þar sem það fari ekki jafn­mikið út í garð og í fyrra. Þannig hafi þurft að eiga við fleiri stærri köngulær og geit­ungabú þegar leið á sum­ar­ið, en ekki jafn­mörg í byrjun sum­ar­s. 

Bjarn­i J.Þórð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri garða­þjón­ust­unnar Garðar best, segir einnig ekk­ert lát hafa verið á garðslætti í sum­ar, grasið vaxi jafnar og með stöðugri hættu í rign­ing­ar­tíð­inni. Á síð­ustu sumrum hafi oft þurft að fresta garðslætti vegna langra þurrka­tíma­bila á sumr­in, en lítið hafi verið um slíkt í ár þar sem nær allir dagar hafi verið blaut­ir. Þrátt fyrir það segir Bjarni að hægst hafi á runna­gróðri þar sem sólin hefur af skornum skammti. Sam­kvæmt honum hef­ur ­rign­ing­ar­tíð­in ­fyrst og fremst verið erfið fyrir starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins, sem hefur þurft að vinna úti í köldu og blautu veðri síð­ustu vik­urn­ar.

Fleiri pollagall­ar, færri erma­lausir bolir

Veðr­áttan virð­ist einnig hafa haft áhrif á neyslu­venjur lands­manna, en í sam­tali Kjarn­ans við Ell­ings­sen var mikil sala á regn­fatn­aði í byrjun sum­ars, á meðan úti­leg­u­sala var sein að taka við sér. Gunnar Ing­i ­Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Hag­kaups, segir einnig svo­kallað „rign­inga­fóð­ur“ hafa ein­kennt sölu fyr­ir­tæk­is­ins í sum­ar, en þar vísar hann helst til matar sem eld­aður er inni. Einnig segir hann áber­andi að minni sala sé á erma­lausum bolum og opnum skóm, en met­sala á polla­göllum og stíg­vélum vegi það upp. 

Þar að auki nefnir Gunnar að aukin tíðni útlanda­ferða gæti einnig útskýrt litla sölu fyr­ir­tæk­is­ins í sum­ar, en neyt­endur virð­ast verja meiri tíma erlendis þetta sum­ar­frí heldur en önnur ár. Kjarn­inn fjall­aði um sögu­lega sölu ferða­skrif­stofa lands­ins, en sam­kvæmt Tómasi J. Gests­syni, fram­kvæmda­stjóra Heims­ferða, er ljóst að þetta verði met­sumar í sól­ar­landa­ferð­um. Ingi­björg Elsa Eysteins­dótt­ir, for­stöðu­kona ­sól­ar­-og ­sér­ferða hjá Gam­an­ferðum tekur í sama streng og segir allt upp­selt úr land­inu: „Fólk er alveg greini­lega komið með nóg af þessu. Við erum eig­in­lega að díla við það vanda­mál núna að það er ekk­ert laust, það er bara upp­selt í næstu brott­far­ir, upp­selt úr land­i,“  segir Ingi­björg. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnJónas Atli Gunnarsson
Meira úr sama flokkiInnlent