Afkoma Icelandair á hættulegum slóðum

Versnandi afkoma íslenskra flugfélaga er mikið áhyggjumál fyrir efnahagslífið. Forstjórinn axlaði ábyrgð, en krefjandi tímar eru framundan hjá Icelandair.

Icelandair, Philadelphia
Auglýsing

Versn­andi afkoma íslenskra flug­fé­laga er mikið áhyggju­mál fyrir efna­hags­líf­ið, að mati við­mæl­enda Kjarn­ans, og það er ekki aðeins fjár­hags­erf­ið­leikar WOW Air, sem Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um, sem valda áhyggj­um, heldur líka staða Icelanda­ir.

Axl­aði ábyrgð

Skilmálar í lánasamningum Icelandair Group, sjást á þessu yfirliti. En rekstrarafkoman hefur versnað frá þessum tíma, miðað við uppfærða afkomuspá félagsins.For­stjór­inn þraut­reyndi, Björgólfur Jóhanns­son, hefur sagt upp störfum og sagð­ist í yfir­lýs­ingu með því axla ábyrgð á slæmri rekstr­ar­nið­ur­stöðu félags­ins.

Í yfir­lýs­ingu hans nefnir hann meðal ann­ars að byrja hefði átt fyrr á ákveðnum skipu­lags­breyt­ingum og að ákvarð­anir um end­ur­skipu­lagn­ingu á sölu- og mark­aðs­starfi hafi ekki reynst gæfu­legar fyrir rekst­ur­inn.

Auglýsing

En hvað er það sem veldur fjár­festum og þeim sem fylgj­ast grannt með gangi mála, þar á meðal stjórn­völd­um, mestum áhyggj­um?

Að mati við­mæl­enda Kjarn­ans er það grunn­rekst­ur­inn sem veldur áhyggj­um. Hann er kom­inn á hættu­legar slóðir fyrir félag­ið, sé mið tekið af lána­skil­málum félags­ins.

Mikið eigið fé, en slök afkoma

Þrátt fyrir sterka eig­in­fjár­stöðu og eig­in­fjár­hlut­fall upp á 35 pró­sent, þá er félagið með lang­tíma­skuldir upp á 329 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 35 millj­örðum króna, og skil­málar á þeim lánum gera kröfu um að rekstr­ar­kenni­tölur félags­ins séu að lág­marki með ákveðnum hætti.

Þannig á EBITDA rekstr­ar­hagn­aður (rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magns­kostn­að, skatta og afskrift­ir) að lág­marki að nema um tæp­lega 95 millj­ónum Banda­ríkja­dala, sé miðað við 3,5 x EBITDA skil­mála í lána­samn­ingum (sjá með­fylgj­andi mynd).

Sam­kvæmt end­ur­nýjun á afskomu­spá félags­ins, sem sent var til kaup­hallar í gær, sam­hliða til­kynn­ingu um upp­sögn Björg­ólfs, þá gerir upp­færð spá nú ráð fyrir 80 til 100 millj­óna Banda­ríkja­dala EBITDA rekstr­ar­hagn­aði á árinu. Neðri mörkin í þeirri spá eru fyrir neðan fyrr­nefnda skil­mála, og sé horft á stöð­una út frá því, þá er krefj­andi vetur framundan fyrir félag­ið. 

Á papp­ír­unum er það alltaf litið alvar­legum aug­um, ef skil­málar eru brotnir í lána­samn­ing­um, eins og aug­ljóst kann að virðast, en óljóst er þó hvaða afleið­ingar það hefði fyrir þetta til­tekna ákvæði um rekstr­ar­af­kom­una, til skemmri tíma. Gjald­fell­ing á skuldum þyrfti ekki að koma til en stíft aðhald og náið sam­tal við lána­drottna um hvað væri skyn­sam­leg­ast í stöð­unni, yrði  óhjá­kvæmi­legt.

Eitt af því sem hefur haft mikil áhrif til hins verra á afkom­una hjá Icelandair að und­an­förnu er lægra verð á far­gjöldum en spálíkön félags­ins gerðu ráð fyr­ir, sem eru helstu verk­færin sem notuð eru til að meta fram­tíð­ar­horfur í rekstr­in­um. Nú er gert ráð fyrir að far­gjöld fari ekki að hækka fyrr en á næsta ári. Næstu mán­uðir verða því vafa­lítið erf­ið­ir.

Hrun á mark­aði

Hluthafar Icelandair Group eru meðal annars stærstu lífeyrissjóðir landsins. Mynd: Keldan.Óhætt er að segja að fjár­festar hafi ekki tekið versn­andi afkomu Icelandair vel. Enn einu sinni hefur mark­aðs­verð félags­ins hrunið innan dags, en lækk­unin í dag nam 17,26 pró­sent­um. Verð­hrun félags­ins hefur verið mikið á und­an­förnum mán­uð­um, en hæst fór verð­mið­inn í 189 millj­arða króna í apríl 2016. Hann er nú að nálg­ast 30 millj­arða, en eigið fé félags­ins var um mitt þetta ár tæp­lega 530 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 55 millj­örðum króna.

Stærstu hlut­hafar félags­ins eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir, en stærsti hlut­haf­inn er Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna með 13,99 pró­sent hlut.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiInnlent