AGS: Ísland í betri stöðu í ár heldur en fyrir hrunið

turisminn.jpg
Auglýsing

For­maður sendi­nefndar Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) gagn­vart Íslandi, Peter Dohlman, segir að Ísland geti orðið fyrsta þjóðin í Evr­ópu til þess að kom­ast í betri efna­hags­lega stöðu en var fyrir hendi þegar bank­arnir hrundu, á þessu ári. Margt bendi til þess að Ísland sé að ná efna­hags­legum vopnum sínum á nýjan leik, en gæta þurfi að því að við­halda stöð­ug­leika á meðan rýmkun fjár­magns­hafta er und­ir­búin og síðan hrint í fram­kvæmd.

Skýrsla AGS um Ísland, var til umræðu á fundi fram­kvæmda­stjórnar sjóðs­ins 9. mars síð­ast­lið­inn, en hún er sú fimmta sem kemur frá honum um Ísland eftir að efna­hags­á­ætlun sjóðs­ins og Íslands lauk form­lega. Í stórum dráttum teiknar AGS upp nokkuð góða mynd af stöðu efna­hags­mála hér á landi, þó við­var­andi óvissa sé fyrir hendi vegna fjár­magns­hafta.

Seðlabankinn Hér má sjá Má Guð­munds­son, seðla­banka­stjóra, á vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi í des­em­ber, þar sem hann klædd­ist jóla­peysu. AGS segir mik­il­vægt að sjálf­stæði seðla­bank­ans verði verndað áfram.

Auglýsing

 

Þarf að styrkja inn­viði



Sendi­nefndin leggur til að umbætur verði gerðar til að auka fram­leiðni og sam­keppn­is­hæfni íslenska hag­kerf­is­ins, ekki síst starfs­fólks­ins. Seðla­bank­inn er jafn­framt hvattur til að beita sér gegn ­þrýst­ingi á of miklar launa­hækk­an­ir, sem hag­kerfið standi ekki und­ir, og halda áfram að stækka gjald­eyr­is­vara­forð­ann. Þá leggur AGS áherslu á að sjálf­stæði seðla­bank­ans standi óhaggað og að spenn­andi verði að sjá nið­ur­stöð­una af end­ur­skoðun laga um Seðla­banka Íslands.

Fjár­mál rík­is­ins á góðu róli



Skuldaniðurfelling Fjár­mál rík­is­ins eru á góðu róli, segir AGS. Hér sjást Bjarni Bene­dikts­son , efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, tala fyrir umdeildri aðgerð, hinni svo­nefndu leið­rétt­ing­u.

 

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hrósar stjórn­völdum fyrir það, að rík­is­fjár­málin séu nú komin í góðan far­veg, en svig­rúm sé þó fyrir hendi til þess að auka hag­kvæmni skatt­kerf­is­ins. Nauð­syn­legt sé að taka á vanda Íbúða­lána­sjóðs, með hags­muni rík­is­ins að leið­ar­ljósi.

Peter Dohlman segir í til­kynn­ingu, að mikil fjölgun ferða­manna hafa hjálpað mikið til við að rétta hag­kerfið af og að hlut­irnir séu almennt á réttri leið. Skuldir í erlendri mynt séu þó enn miklar, og mik­il­vægt sé að huga að því að end­ur­skipu­leggja eign­ar­hald á fjár­mála­kerf­inu.

Sam­kvæmt nýj­ustu tölum Hag­stofu Íslands mæld­ist 1,9 pró­sent hag­vöxtur í fyrra, en það er tölu­vert minna en reiknað var með í byrjun árs­ins. Spár, þar á meðal AGS, gerðu ráð fyrir um þrjú pró­sent hag­vexti. Atvinnu­leysi á Íslandi mælist með því allra lægsta í Evr­ópu, eða 4,3 pró­sent. Með­al­tal Evr­ópu­ríkja er ríf­lega 10 pró­sent, sam­kvæmt tölum Eurostat, Hag­stofu Evr­ópu.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None