Ármann Kr.: „Gríðarleg óvissa“ ef þinglýst eignarhald heldur ekki

armann.jpg
Auglýsing

Ármann Kr. Ólafs­son, bæj­ar­stjóri í Kópa­vogi, segir að „gríð­ar­leg óvissa“ skap­ist ef ekki sé hægt að reiða sig á upp­lýs­ingar úr þing­lýs­inga­bók, þegar kemur að eign­ar­haldi á landi. Eign­ar­nám bæj­ar­ins í landi Vatns­enda hafi byggt á þing­lýs­inga­bók og heim­ildum frá opin­berum stofn­unum og ráð­herra.

Þetta kemur fram í svari Ármanns við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­efni sem tengj­ast landi Vatns­enda, en Hæsti­réttur hefur nú stað­fest að Þor­steinn Hjalte­sted var ekki rétt­mætur eig­andi Vatns­enda þegar bær­inn greiddi millj­arða til hans í eign­ar­náms­bæt­ur, vegna upp­bygg­ingar bæj­ar­ins á landi Vatns­enda, heldur fimmtán erf­ingjar dán­ars­bús Sig­urðar K. Hjalte­sted. Erf­ingj­arnir telja sig eiga rúm­lega tíu millj­arða inni hjá Kópa­vogsbæ þar sem eign­ar­náms­bæt­urnar hafi verið greiddar til ólög­mæts eig­anda Vatns­enda, líkt og Hæsti­réttur hefur nú stað­fest með dóm­um. Kópa­vogs­bær greiddi Þor­steini rúm­lega tvo millj­arða króna árið 2007 í eign­ar­náms­bæt­ur, en það er upp­hæð sem nemur 3,7 millj­örðum að núvirði.

Er hætta á frek­ari fjár­út­látum úr sjóðum bæj­ar­ins?



Fyr­ir­spurin til Ármanns var eft­ir­far­and­i; Telur þú hættu á því að Kópa­vogs­bær muni þurfi að greiða meira en hann hefur þegar gert, vegna upp­bygg­ingar í Vatns­enda, og þeirra deilna sem eru í gangi varð­andi eign­ar­hald á jörð­inni?

Í svari Ármanns kemur meðal ann­ars fram að bær­inn muni krefj­ast sýknu í þeim dóms­málum sem hluti erf­ingja í dán­ar­búið hefur höfðað á hendur bæn­um. „Hluti erf­ingja dán­ar­bús Sig­urðar K. Hjalte­sted hefur þegar höfðað dóms­mál á hendur Kópa­vogsbæ með kröfu um að bær­inn greiði dán­ar­bú­inu bætur vegna þess lands sem tekið var eign­ar­námi árin 1992 til 2007. Kópa­vogs­bær mun krefj­ast sýknu af öllum kröfum stefn­enda en varnir bæj­ar­ins munu koma fram í grein­ar­gerð sem lögð verður fyrir hér­aðs­dóm. Rétt er þó að taka fram að eign­ar­nám Kópa­vogs­bæjar fóru í öllum til­fell­u­m fram á grund­velli eign­ar­náms­heim­ildar frá opin­berum stofn­unum og ráð­herra. Eðli máls­ins sam­kvæmt ráð­staf­aði Kópa­vogs­bær eign­ar­náms­bótum til þing­lýsts ­eig­anda Vatns­enda sem jafn­framt var ábú­andi jarð­ar­inn­ar,“ segir Ármann í svari sínu. Þá segir hann að aðrir opin­berir aðilar sem hafi fram­kvæmt eign­ar­nám í landi Vatns­enda hafi ráðstafað eign­ar­náms­bótum til ábú­enda jarð­ar­innar á hverjum tíma. „Þeir aðilar eru íslenska rík­ið, Reykja­vík­ur­borg og Lands­virkj­un. Á­réttað er að öll aðila­skipti með mann­virki, land og stærra lausafé eru háð þeirri grund­vall­ar­for­sendu að aðilar megi treysta á rétt­mæti upp­lýs­inga úr þing­lýs­ing­ar­bók. Önnur regla myndi leiða til gríð­ar­legrar óvissu um það kerfi sem gildir um skrán­ingu eign­ar­halds að umræddum eign­um,“ segir í svari Ármanns.

Auglýsing

kjarninn_vatnsendi_vef

Neita að afhenda lög­fræði­á­lit



Kjarn­inn óskaði eftir því að fá lög­fræði­á­lit, sem unnin hafa verið fyrir bæinn vegna máls­ins, afhent. Bær­inn neit­aði að afhenda gögn­in, og vís­aði í upp­lýs­inga­lög. „Hluti af lög­erf­ingjum dán­ar­bús Sig­urðar K. Hjalte­sted hefur þegar stefnt Kópa­vogsbæ fyrir dóm með kröfu um bætur fyrir eign­ar­nám bæj­ar­ins á landi Vatns­enda á árunum 1992-2007. Með vísan til 3. tl. 6. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012 afhendir bær­inn ekki þau lög­fræði­á­lit sem unnin hafa verið fyrir bæinn og tengj­ast umræddum rétt­ará­grein­ing­i,“ segir í svari bæj­ar­ins.

Rit­stjórn Kjarn­ans hyggst kæra neit­un­ina til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, og vísa þar öðru fremur til þess, að upp­lýs­ingar er varði mikla fjár­hags­lega hags­muni Kópa­vogs­bæjar og íbúa bæj­ar­ins, og eftir atvikum ann­arra opin­bera aðila, varði almanna­hag og því sé eðli­legt að gögnin í dóms­málum sem bein­ast að bænum vegna eign­ar­náms í Vatns­enda séu opin­ber og aðgengi­leg blaða­mönn­um.

Sam­kvæmt tölum Hag­stofu Íslands, bjuggu rúm­lega 32 þús­und manns í Kópa­vogi í 1. jan­úar 2014, eða nærri tíu pró­sent íbúa Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None