Bankasýslan undirbýr sölu Landsbankans á sama tíma og ráðherra vill leggja hana niður

Auglýsing

For­stjóri og stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu ríks­ins hafa sent fjár­mála­ráð­herra bréf þess efnis að stofn­unin skili af sér til­lögu til ráð­herra, um sölu­með­ferð á 30 pró­sent eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­an­um, fyrir 31. jan­úar 2016. Bréfið er sent ráð­herra þrátt fyrir að í fjár­laga­frum­varpi fyrir 2016 sé ekki gert ráð fyrir fjár­veit­ingu til Banka­sýsl­unn­ar. Því er alls óvíst hvort stofn­unin hafi nokk­urt hlut­verk í sölu­ferl­inu en Bjarni Bene­dikts­son lagði á síð­asta þingi fram frum­varp sem ætlað var að leggja niður stofn­un­ina og færa hlut­verk hennar beint til ráð­herra.

Í bréfi þeirra Jóns G. Jóns­son­ar, for­stjóra Banka­sýsl­unn­ar, og Lárusar L. Blön­dal, stjórn­ar­for­manns henn­ar, segir að Banka­sýslan hafi kynnt sér áform um sölu á allt að 30 pró­sent eign­ar­hlut í Lands­bank­anum í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2016. Stofn­unin hafi nú þegar hafið nauð­syn­lega und­ir­bún­ings­vinnu og áætlar að skila form­legri til­lögu til ráð­herra, í sam­ræmi við lög um sölu­með­ferð eign­ar­hluta ríks­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um, fyrir 31. jan­úar næst­kom­andi.

Auglýsing

Ætl­aði að leggja niður stofn­un­ina

Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu verður Banka­stofn­un­inni ekki lagt til fé til starfs­rækslu á næsta ári. Í frum­varp­inu er gengið út frá að Banka­sýslan verði lögð nið­ur, í sam­ræmi við það sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra boð­aði á síð­asta þingi. Þá lagði Bjarni fram frum­varp til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Í því var lagt til að eign­ar­hlutir ríks­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum fær­ist beint undir fjár­mála­ráð­herra. Nær hund­rað pró­sent eign ríks­ins í Lands­bank­anum er langstærsta eign ríks­ins sem nú er í umsjón Banka­sýsl­unn­ar.



Frum­varp ráð­herra var til umræðu í þing­sal í maí og fór til fjár­mála­nefndar eftir fyrstu umræðu. Þaðan var það afgreitt úr nefnd um miðjan júní en varð ekki að lögum fyrir þing­lok.

Fyr­ir­komu­lagið til skoð­unar

Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu fyrir 2016 þá hafa áætl­anir um að leggja niður Banka­sýsl­una ekki breyst. „Í fjár­laga­frum­varp­inu er tekið mið af frum­varpi til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem var til umfjöll­unar á sl. vor­þingi en það gerir m.a. ráð fyrir því að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og er því ekki gert ráð fyrir fjár­heim­ild vegna stofn­un­ar­innar í frum­varp­in­u,“ segir í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir 2016.



„Breyt­ingin er til þess fallin að styrkja eig­enda­hlut­verk ráðu­neyt­is­ins gagn­vart fjár­mála­fyr­ir­tækjum og öðrum hluta­fé­lögum sem og félögum utan rík­is­ins. Fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag á stjórn­sýslu á þessu sviði verður áfram til skoð­unar í haust og gert er ráð fyrir að nið­ur­staða þeirrar skoð­unar muni liggja fyrir við loka­af­greiðslu frum­varps­ins,“ segir enn­frem­ur.



Árið 2014 fékk Banka­sýslan 74,5 millj­ónir króna í rekstr­arfé og árið 2015 fékk hún 33,6 millj­ón­ir. Stofn­unin var sett á lagg­irnar árið 2009 og heyrir stjórn hennar undir fjár­mála­ráð­herra. Hlut­verk hennar er að fara með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um.

Boðar „fram­úr­skar­andi sam­starf“

Í bréfi Banka­sýsl­unnar til fjár­mála­ráð­herra, dag­sett þann 9. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, segir að stofn­unin muni fram að 31. jan­úar nk. ræða mögu­lega útfærslu á sölu við Lands­bank­ann, stærstu stofn­ana­fjár­festa inn­an­lands eins og líf­eyr­is­sjóði og fjár­fest­inga­sjóði, og alþjóð­lega fjár­feest­ing­ar­banka, sem stofn­unin kann svo að kalla til ráð­gjafar við form­legt sölu­ferli. Að því gefnu að stöð­ug­leiki ríki á fjár­mála­mörk­uðum og að rekstr­ar­af­koma Lands­bank­ans verði í takt við áætl­anir þá ætti fyrstu sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í bank­anum að vera lokið á seinni hluta árs 2016.



„Banka­sýsla rík­is­ins mun leggja ríka áherslu á að upp­lýsa fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið með reglu­bundnum hætti um fram­vindu máls­ins og að eiga fram­úr­skar­andi gott sam­starf við alla hags­muna­að­ila, sem munu þurfa að koma að ferl­in­u,“ segir í lok bréfs­ins.

Óvíst um hluverk stofn­un­ar­innar

Þrátt fyrir bréf æðstu manna Banka­sýsl­unnar til ráð­herra þá er alls óvíst um hlut­verk stofn­un­ar­innar í boð­uðu sölu­ferli á 30 pró­sent hlut rík­is­ins í Lands­bank­an­um. Sam­kvæmt frum­varp­inu sem fjár­mála­ráð­herra lagði fram á síð­asta þingi, og vísað er til í fjár­lögum fyrir næsta ár, þá hyggst ráð­herra eins og fyrr greinir leggja niður Banka­sýsl­una. Eign­ar­hlutir í bönk­unum verða í kjöl­farið færðir undir ráð­herra, sem sam­tímis skipar þriggja manna ráð­gjafa­nefnd til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð­ina. Rík­is­kaup eiga að ann­ast sölu­með­ferð­ina og skila ráð­herr­anum rök­studdu mati á því hvaða til­boð sé best.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnHallgrímur Oddsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None