Bensínverð hefur lækkað hratt - Íslenskir neytendur spara milljarða á ári

bensín
Auglýsing

Verð á 95 okt­ana bens­íni á Íslandi hefur lækkað um 21,9 pró­sent frá því í júlí í fyrra. Þá kost­aði lítri af bens­íni 251,5 krónur en í dag er lægsta lítra­verðið 196,5 krón­ur. Hann hefur því lækkað um 55 krónur á 15 mán­uð­um.

Allt árið í fyrra voru fluttir inn 178 millj­ónir lítrar af 95 okt­ana bens­íni. Miðað við lítra­verðið í júlí í fyrra hefði það magn kostað íslenska neyt­endur um 45 millj­arða króna. Ef miðað er við verð dags­ins í dag myndu þeir greiða 35 millj­arða króna fyrir sama magn af bens­íni. Mun­ur­inn er um tíu millj­arðar króna á árs­grund­velli. Auk þess sparar þessi lækkun þjóð­ar­bú­inu millj­arða króna í gjald­eyri. Þessi mikla lækkun á bens­ín­verði, og öllu öðru elds­neyti, er ráð­andi þáttur í því að inn­flutt verð­bólga hefur dreg­ist sam­an. Það hefur leitt til þess að verð­bólga hefur hald­ist lág í ár þrátt fyrir að inn­lend verð­bólga sé fjögur til fimm pró­sent.

Hugi Hreið­ars­son, mark­aðs­stjóri Atl­antsol­íu, segir að áætl­aður gjald­eyr­is­sparn­aður vegna lægra elds­neyt­is­verðs í sept­em­ber einum saman sé um hálfur millj­arður króna. Það þýðir að um sex millj­arðar króna af gjald­eyri sparist á árs­grund­velli. Hann segir að Hol­lend­ingar greiði nú næsta bens­ín­verð í Evr­ópu, eða 224 krónur á lítra, og fast á hæla þeirra komi Norð­menn, sem greiði 222 krónur á lítra. Hol­lend­ingar borga því 27 krónum meira en Íslend­ingar fyrir hvern lítra af bens­íni.

Auglýsing

Heims­mark­aðs­verð lækkað um rúm 60 pró­sent



Ástæðan fyrir þess­ari miklu lækkun er ein­föld: heims­mark­aðs­verð á olíu hefur hríð­fallið frá miðju síð­asta ári. Í júní 2014 kost­aði tunna af Brent-olíu 115,9 dali. Hún kostar nú 45,46 dali og hefur því lækkað um 61 pró­sent á sextán mán­uð­um. Verðið hefur ekki verið svona lágt síðan á árinu 2009.

Kjarn­inn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 4. ágúst síð­ast­lið­inn að sam­hliða þessum lækk­unum á heims­mark­aði hefði útsölu­verð olíu­fé­lag­anna á Íslandi á 95 okt­ana bens­íni lækkað um 12,1 pró­sent. Ein ástæða þess að bens­ín­verðið hafði ekki lækkað meira var sú að álagn­ing íslensku olíu­fé­lag­ana hafði auk­ist á tíma­bil­inu. Félag íslenskra bif­reið­ar­eig­enda áætl­aði þá að sú hækkun á álagn­ingu sem átt hafði sér stað hefði aukið útgjöld neyt­enda um hálfan millj­arð króna á einu ári.

Bens­ín­verð hefur hins vegar lækkað hratt hér­lendis und­an­farna mán­uði. Í júlí 2015 var verð á lítra af 95 okt­ana bens­íni 225,6 krón­ur. Á þremur mán­uðum hefur verðið því lækkað um tæp þrettán pró­sent og er komið nokkuð undir 200 krónur á lítra.

Ríkið tekur um helm­ing til sín



Það er eðli­legt að útsölu­verð á elds­neyti lækki ekki til jafns við lækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu, þótt vissu­lega séu deildar mein­ingar um hversu mörgum krónum lækkun á heims­mark­aðs­verði ætti að skila í vasa neyt­enda hverju sinni. Íslenskir elds­neyt­is­salar þurfa til dæmis að gera ráð fyrir inn­kaupa­verði, sköttum álagn­ingu og flutn­ings­kostn­aði í útsölu­verði sín­u. Og gengi íslensku krón­unnar skiptir líka máli, enda greitt fyrir elds­neyti með gjald­eyri. Íslenska krónan hefur lækkað tölu­vert gagn­vart Banda­ríkja­dal frá því í júní á síð­asta ári, eða um níu pró­sent,og það hefur nei­kvæð áhrif á lækkun á elds­neyt­is­verði til neyt­enda.

Önnur ástæða sem oft er nefnd er sú að olíu­fé­lögin eigi svo miklar upp­safn­aðar birgðir af elds­neyti sem keyptar hafi verið á hærra verði. Því taki tíma fyrir lækk­anir á heims­mark­aðs­verði að skila sér út í verð­lagið sem íslenskir neyt­endur verða að sætta sig við. Þegar langt lækk­un­ar­skeið á sér stað eiga þau rök þó aug­ljós­lega ekki við og ljóst að á ein­hverjum tíma­punkti verði lækkun á heims­mark­aðs­verði alltaf að skila í útsölu­verði.

Það er rétt að stór ástæða þess að verð á bensín og dísel er jafnt hátt og raun ber vitni hér­lendis er sú að ríkið tekur til sín um helm­ing elds­neyt­is­verðis til sín í formi ýmissa gjalda og skatta sem það leggur á. Þar er átt við sér­stakt bens­ín­gjald, almennt bens­ín­gjald, kolefn­is­gjald og auð­vitað virð­is­auka­skatt sem leggst á bensín eins og aðra vöru. Því fara um 100 krónur af hverjum lítra af bens­íni sem við kaupum til rík­is­ins og aug­ljóst að ríkið gæti stuðlað að lægra verði með því að draga úr álögum sín­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None