Ekki gefið að launahækkanir skili auknum kaupmætti

10016471563_0af3028882_z.jpg
Auglýsing

Það er alls ekki sjálf­gefið að miklar nafn­launa­hækk­anir skili sér í auknum kaup­mætti, en það er nokkuð víst að þróun nafn­launa eins og hún var 2011 er lík­leg til að kynda undir verð­bólgu, leiða af sér vaxta­hækk­an­ir, hækka fjár­magns­kostnað almenn­ings og fyr­ir­tækja, lækka raun­tekjur ríkis og sveit­ar­fé­laga og draga úr sam­keppn­is­hæfni hag­kerf­is­ins í gegnum sterkara raun­gengi.

Þetta er mat grein­ing­ar­deildar Arion banka sem fjallar um stöð­una á vinnu­mark­aði í grein sem ber yfir­skrift­ina „Hvað má læra af fyrri kjara­samn­ing­um?“. Í grein­inni segir að frá sjón­ar­hóli laun­þega skipti mestu máli að kom­andi kjara­samn­ingar skili ásætt­an­legri kaup­mátt­ar­aukn­ingu. Á móti vilji atvinnu­rek­endur ekki sjá hækkun launa­kostn­aðar umfram verð­mæta­sköp­un, enda versni afkoma af rekstri sem því nemur og verði aðeins komið í veg fyrir verri afkomu með hækkun verð­lags eða fækkun starfa. „Þar gildir einu hvort atvinnu­rek­and­inn er einka­geir­inn eða hið opin­bera. Það sem eng­inn vill sjá er að kjara­bæt­urnar glat­ist í hækkun verð­lags, að verð­bólgu­skot leiði af sér hækkun verð­tryggðra skulda og að Seðla­bank­inn telji sig nauð­beygðan til að hækka vexti ofan í við­kvæman hag­vöxt. Það er því vert að skoða þann lær­dóm sem draga má af síð­ustu tveimur kjara­samn­ingum og að hve miklu leyti launa­hækk­anir hafi skilað sér í auknum kaup­mætt­i,“ segir grein­ing­ar­deild bank­ans.

Auglýsing

Meiri kaup­máttur í fyrra en 2011

Rifjað er upp að kjara­samn­ing­arnir 2011 fólu í sér 11,4 pró­senta almenna launa­hækkun yfir þriggja ára tíma­bil. Frá maí 2011 til maí 2013 hækk­aði launa­vísi­talan um 17,1 pró­sent. Til sam­an­burðar byggðu samn­ing­arnir 2014 á 2,8 almennri launa­hækkun yfir eitt ár. Á sama tíma hækk­aði launa­vísi­talan um 6,6 pró­sent.



Sam­an­burður á kaup­mátt­ar­aukn­ingu á þessum tveimur tíma­bilum sýnir að kaup­máttur jókst að með­al­tali um 2,9 pró­sent á ári frá 2011 til 2013 en um 3,7 pró­sent árið 2014. Að mati grein­ing­ar­deild­ar­innar þarf hækkun nafn­launa að vera í takt við fram­leiðni­vöxt í hag­kerf­inu til lengri tíma lit­ið, að öðrum kosti er verð­stöð­ug­leika ógn­að.

Hægir á bata við miklar launa­hækk­anir

Nýlegar tölur úr vinnu­mark­aðs­könnun Hag­stof­unnar eru til umfjöll­unar í grein­inni og eru sagðar góðar frétt­ir. „Þar kemur fram að fjöldi starf­andi á vinnu­mark­aði í jan­úar jókst um 5,4% frá sama tíma í fyrra. Einnig jókst með­al­vinnu­tími um 1,8% frá síð­asta ári og heild­ar­vinnu­stundum fjölg­aði því um 7,3% frá jan­úar í fyrra. Þetta eru jákvæð tíð­indi og merki um að öfl­ugur bati sé á vinnu­mark­aði í byrjun árs þótt vissu­lega geti verið sveiflur í mán­að­ar­legum töl­um. Töl­urnar benda til þess að þó nokkur eft­ir­spurn sé eftir vinnu­afli en aukn­ing heild­ar­vinnu­stunda gefur vís­bend­ingar um aukin umsvif í hag­kerf­inu og er ágæt vís­bend­ing um und­ir­liggj­andi hag­vaxt­ar­þró­un.“



Miklar launa­hækk­anir geti þó orsakað verð­bólgu­þrýst­ing, velti fyr­ir­tækin launa­kostn­aði út í verð­lag­ið. „Önnur afleið­ing af miklum launa­hækk­unum kann því að sú að fyr­ir­tæki dragi úr ráðn­ingum eða jafn­vel segi upp starfs­fólki til að draga úr kostn­aði í stað þess að ýta auknum launa­kostn­aði út í verð­lag. Það getur því orðið bakslag á þeim bata á vinnu­mark­aði sem við höfum séð und­an­farin miss­eri. Eftir kjara­samn­inga 2011 hægði nokkuð á fjölgun vinnu­stunda og fjölda starf­andi á vinnu­mark­aði líkt og sést á mynd­inni að ofan. Upp úr ára­mótum 2013 tók heild­ar­vinnu­stundum svo aftur að fjölga og hefur verið nokkuð öfl­ugur bati síðan þá. Nið­ur­staða kjara­samn­inga mun því ekki ein­ungis hafa áhrif á verð­stöð­ug­leika og raun­gengi heldur einnig fjölgun starfa á vinnu­mark­aði og atvinnu­leysi. Of miklar launa­hækk­anir geta því hægt á þeim bata sem við höfum séð und­an­farið og við samn­ings­gerð þarf að hafa í huga þau áhrif sem nið­ur­staða kjara­samn­inga mun hafa á verð­lag, raun­gengi og þróun vinnu­mark­að­ar.“



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnHallgrímur Oddsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None