FME veitir bönkunum fresti til að stunda óskyldan rekstur

bankar_island.jpg
Auglýsing

Bank­arnir stunda umfangs­mik­inn rekstur sem er óskyldur skil­greindri banka­starf­semi í grunn­inn, á grund­velli und­an­þága frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME). Frestir sem FME hefur veitt bönk­unum tengj­ast flestir end­ur­skipu­lagn­ing­ar­ferli félaga og fyr­ir­tækja sem bank­arnir hafa eign­ast hlut í. Und­an­þág­urn­ar, sem enn er verið að veita rúm­lega sex árum eftir að bank­arnir voru end­ur­reistir á grunni föllnu bank­anna þriggja, heim­ila bönk­unum að eiga tíma­bundið eign­ar­hluti í fyr­ir­tækj­um, með það fyrir augum að hámarka end­ur­heimtur lána sem hinir föllnu bankar veittu í flestum til­vik­um.

„Góður árang­ur“



Í sam­an­tekt FME á þessum mál­um, sem hefur verið birt á vef FME, kemur fram að bankar, spari­sjóðir og lána­fyr­ir­tæki hafi náð „góðum árangri“ í að fækka eign­ar­hlutum í fyr­ir­tækjum með starf­semi sem fellur ekki undir almennar starfs­heim­ildir þeirra og sem þeim er ein­ungis heim­ilt að stunda tíma­bund­ið. Frá miðju ári 2011 hefur starf­semi af þessu tagi verið lokið í 185 mál­um, að því er segir í skýrslu FME.

FME veitir fresti



Í júní 2010 kom inn í lög ákvæði sem gerði það að verkum að fjár­mála­fyr­ir­tæki mættu ekki stundan óskyldan rekstur í tíma­bund­inni starf­semi, t.d. með yfir­töku á eign­ar­hlut í fyr­ir­tæki, lengur en tólf mán­uði. FME getur fram­lengt tíma­frest í grund­velli umsóknar um slíkt, og hefur FME verið óspart á það að veita fresti sem þessa. Um það eru mörg dæmi, og má þar nefna eign­ar­hald Arion banka á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu HB Granda, en Arion banki eign­að­ist um þriðj­ungs hlut í félag­inu sem áður var í eigu Ólafs Ólafs­son­ar, og átti hlut­inn í á þriðja ár, þar til félagið var skráð á aðal­markað Kaup­hallar Íslands. Bank­inn á nú 6,16 pró­sent hlut í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu.

Miðað við stöð­una 1. mars síð­ast­lið­inn, eiga fjár­mála­fyr­ir­tæki hluti í 41 félagi í tíma­bund­inni starf­semi. Félög sem fjár­mála­fyr­ir­tæki eiga minna en tíu pró­sent eign­ar­hlut í eru ekki með­talin í sam­an­tekt FME, en þau eru þónokk­ur. „Þá er vert að geta þess að mörg félög, sem eru að fullu í eigu fjár­mála­fyr­ir­tækja, eru aðeins eign­ar­hald utanum minni eign­ar­hluti í öðrum félög­um, bæði inn­lendum sem og erlend­um. Af umræddum fjölda félaga eru 21 félag í yfir fjöru­tíu pró­sent eign­ar­haldi fjár­mála­fyr­ir­tæk­is, í fimmtán félögum er eign­ar­haldið á bil­inu tutt­ugu til fjöru­tíu pró­sent og í fimm félögum er eign­ar­hald­ið ­tíu til tutt­ugu pró­sent,“ segir í sam­an­tekt FME.

taflafme

Auglýsing

Við­kvæmt sam­keppn­is­mál



Um­svif end­ur­reistu bank­anna í rekstri sem er í grunn­inn óskyldur banka­rekstri, og háður und­an­þágu frá FME, er við­kvæmt sam­keppn­is­mál, enda erfitt að keppa við fyr­ir­tæki sem hafa djúpa vasa bank­anna á bak við sig eða meiri slaka að hálfu bank­anna en eðli­legt getur talist. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur stað­fest að fjöl­margar kvart­anir hafi borist eft­ir­lit­inu vegna þessa inn­gripa bank­anna í sam­keppn­is­rekstur sem er alls óskyldur banka­starf­semi, en reynt hefur verið að leysa úr þeirri stöðu með því að þrýsta á um að bank­arnir hraði end­ur­skipu­lagn­ingu eins og kostur er, og selji eign­ar­hluti sína.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None