Hefði eignaumsýslufélag ríkisins átt að púsla saman íslensku atvinnulífi eftir hrunið?

p--sl.jpg
Auglýsing

Í gær voru sjö ár frá því að neyð­ar­lög voru sett á Íslandi vegna þess að hrun alls íslenska banka­kerf­is­ins var yfir­vof­andi. Næstu daga á eftir féllu þrír stærstu bankar þjóð­ar­innar eins og spila­borg­ir.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi að við banka­hrunið hafi um 70 pró­sent af 120 stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins verið undir beinum eða óbeinum yfir­ráðum banka. Annað hvort voru bank­arnir bein­línis búnir að taka fyr­ir­tækin yfir eða skulda­staða þeirra var þess eðlis að þau voru í gjör­gæslu bank­anna og gátu ekki ráðið sínum málum sjálf. Þessi 120 fyr­ir­tæki mynd­uðu um helm­ing íslensks þjón­ustu­mark­að­ar.

Þótt ekki hafi verið birtar rann­sóknir sem sýna hver staðan var hjá öllu atvinnu­líf­inu var það skoðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og allra stóru bank­anna að þessa tölu, 70 pró­sent, megi í raun yfir­færa á starf­semi lands­ins í heild. Því stóðu stjórn­völd, stofn­anir og atvinnu­fyr­ir­tæki frammi fyrir risa­vöxnu og ein­stöku verk­efni. Hvernig átti að end­ur­skipu­leggja allt á Íslandi? Og hver átti að gera það?

Auglýsing

Á end­anum var tekin sú ákvörðun að end­ur­reistu bank­arn­ir; Arion banki, Íslands­banki og Lands­banki ættu að gera það. Líf­væn­legum inn­lendum eignum hafði verið hrúgað inn í þessa banka og þeir voru fjár­magn­aðir með inn­stæðum lands­manna og fjár­magni frá hinum opin­bera. Þegar sam­komu­lag náð­ist við kröfu­hafa föllnu bank­anna, sem höfðu tapað þús­undum millj­arða króna á við­skiptum sínum við Ísland, um að þeir mættu eiga meiri­hlut­ann í tveimur end­ur­reistu bank­anna, enda voru eign­irnar sem settar voru inn undir öllum eðli­legum kring­um­stæðum þeirra eign­ir.

Bank­arnir fengu því að „þvo“ atvinnu­líf­ið. Það var þó fjarri því ein­boðið að svo yrði. Önnur hug­mynd var líka mikið rædd og kom raun­veru­lega til greina.

Bjugg­ust við því að fá fleiri fyr­ir­tæki í fangið



Framan af árinu 2009 bjugg­ust íslensk stjórn­völd við því að fá fleiri fyr­ir­tæki í fangið en bara bank­ana. Þess vegna var meðal ann­ars und­ir­búin stofnun svo­kall­aðs eigna­um­sýslu­fé­lags rík­is­ins, sem átti að geta tekið við slíkum fyr­ir­tækj­um.

Ljóst var að nokkur þjóð­hags­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki myndu ekki fá að fara á von­ar­völ af neinu tagi. Á meðal fyr­ir­tækja sem skil­greind voru sem slík voru flutn­ings­fyr­ir­tæki og fjar­skipta­fyr­ir­tæki. Efst á þeim lista var Icelanda­ir. Það hefði aldrei komið til greina að láta það fyr­ir­tæki lenda í vand­ræðum vegna mik­il­vægis þess fyrir flutn­inga á fólki og vörum til og frá land­inu. Rík­is­stjórnin hafði rétti­lega gert sér vonir um að ferða­þjón­usta gæti orðið ein af vaxta­grein­unum eftir hrun sem myndi hjálpa til við efna­hags­batann. Aukn­ing innan hennar var ómögu­leg án Icelanda­ir.

Aldrei kom til greina að hálfu stjórnvalda að láta Icelandair fara í þrot. Fyrirtækið gegnir lykilhlutverki í flutningi til og frá landsins og þeirri efnahagslegu endurreisn sem ferðaþjónusta hefur gert Íslandi kleift að upplifa. Aldrei kom til greina að hálfu stjórn­valda að láta Icelandair fara í þrot. Fyr­ir­tækið gegnir lyk­il­hlut­verki í flutn­ingi til og frá lands­ins og þeirri efna­hags­legu end­ur­reisn sem ferða­þjón­usta hefur gert Íslandi kleift að upp­lifa.

Flutn­ings- og fjar­skipta­fé­lag rík­is­ins



Önnur fyr­ir­tæki sem raun­veru­lega var rætt um að ríkið myndi taka yfir var Míla. Ríkið átti þá þegar Lands­net og þurfti síðar að setja mikið fé í Farice, sem rekur sæstrengi til lands­ins. Hug­myndin var þá að setja Mílu, sem er félag utan um grunn­fjar­skipta­net­ið, ásamt Lands­neti og Farice inn í eitt stórt og öfl­ugt flutn­ings- og fjar­skipta­fé­lag í eigu rík­is­ins.

Hug­myndin um opin­bert eigna­um­sýslu­fé­lag er oft­ast kennd við Sænska banka­sér­fræð­ing­inn ­Mats Jos­efs­son. Hann kom hingað til lands eftir hrunið fyrir til­stuðlan Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og hafði ára­tuga reynslu af end­ur­skipu­lagn­ing­ar­störf­um, meðal ann­ars í banka­krepp­unni í Sví­þjóð eftir árið 1990. Jos­efs­son setti strax fram ákveðnar hug­myndir um hvernig ætti að end­ur­reisa atvinnu­lífið eftir hrun­ið. Það skyldi gert á grund­velli þess að vernda sam­keppni ann­ars vegar og síðan þjóð­hags­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki hins veg­ar. Jos­efs­son lagði til að öll þjóð­hags­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki sem stæðu höllum fæti yrðu sett í sér­stakt eigna­um­sýslu­fé­lag í opin­berri eigu, í það minnsta fyrst um sinn. Með þjóð­hags­lega mik­il­vægum fyr­ir­tækjum var átt við rekstur sem hag­kerfið þurfti nauð­syn­lega á að halda, svo sem rekstur á sviði skipa­flutn­inga, flug­sam­gangna og fjar­skipta.

Mikil and­staða við hug­myndir Jos­efs­son innan bank­anna



Jos­efs­son kynnti þessar hug­myndir í umboði Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og taldi að þær væru best til þess fallnar að end­ur­heimta traust, fljótt og vel. Hann var for­maður nefndar um end­ur­reisn fjár­mála­kerf­is­ins, sem rík­is­stjórnin og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn komu sér saman um að skipa, og hafði það meg­in­mark­mið að sam­ræma aðgerðir stjórn­valda, eft­ir­lits­stofn­ana og bank­anna við þá vinnu fyrstu mán­uð­ina eftir að nýtt banka­kerfi varð til í kjöl­far neyð­ar­lag­anna. Á meðal þess sem Jos­efs­son lagði mikla áherslu á var að allt yrði uppi á borð­inu við end­ur­skipu­lagn­ingu bank­anna og björgun fyr­ir­tækja lands­ins.

Steingrímur J. Sigfússon var fjármálaráðherra þegar ákvörðun var tekin um að láta endurreistu bankana endurskipuleggja íslenskt viðskiptalíf. Stein­grímur J. Sig­fús­son var fjár­mála­ráð­herra þegar ákvörðun var tekin um að láta end­ur­reistu bank­ana end­ur­skipu­leggja íslenskt við­skipta­líf.

Strax var ljóst að mikil and­staða var til staðar innan end­ur­reistu bank­anna og hags­muna­sam­taka atvinnu­lífs­ins, sér­stak­lega Sam­taka atvinnu­lífs­ins og Sam­taka iðn­að­ar­ins, við þær hug­myndir sem Jos­efs­son boð­aði. And­staðan var einkum gagn­vart hug­mynd­inni um stofnun eigna­um­sýslu­fé­lags á vegum rík­is­ins. Margir ótt­uð­ust póli­tíska spill­ingu við stjórn félags­ins og einnig að arð­sem­is­sjón­ar­mið fengju ekki að ráða för í rekstri, þ.e. að póli­tísk stefna yrði að ein­hverju leyti ráð­andi við ákvarð­ana­töku innan fyr­ir­tækj­anna sem yrðu í félag­inu. Horft var til ýmissa fyr­ir­tækja sem gætu farið inn í þetta félag, svo sem Eim­skips, Icelandair Group og Skipta, móð­ur­fé­lags Sím­ans.

And­staðan við hug­myndir Jos­efs­son magn­að­ist eftir því sem leið á end­ur­reisn­ar­starfið og varð brátt hávær innan stjórn­ar­flokk­anna. Þar var komin upp óánægja með störf Jos­efs­son í upp­hafi árs 2009 þegar nefndin sem hann stýrði hafði aðeins starfað í nokkra mán­uði.

Jos­efs­son hót­aði að hætta



Í maí­mán­uði það ár dró til tíð­inda. Þá snöggreidd­ist Jos­efs­son á fundi með stjórn­völdum og hót­aði að hætta störfum þegar í stað. Morg­un­blaðið greindi frá þessu á for­síðu 25. maí 2009. Jóhanna Sig­urð­ar­dótt­ir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, stað­festi í umræðum á þing­inu sam­dæg­urs að Jos­efs­son hefði hótað að hætta. Ástæðan fyrir reiði­kasti Jos­efs­son og hót­unum hans í kjöl­farið var að hann taldi end­ur­reisn bank­anna ekki ganga nógu hratt. Var hann sér­stak­lega pirr­aður yfir því að bank­arnir væru ekki að leggja nógu mikið af mörkum við að greina eigna­söfn sín og taka á vanda fyr­ir­tækj­anna.

Innan end­ur­reistu bank­anna horfðu málin öðru­vísi við og var þeim sjón­ar­miðum marg­sinnis komið skýrt á fram­færi að hug­myndir Jos­efs­son væru á skjön við það sem stjórn­endur og starfs­fólk bank­anna teldu rétt­ast. Þeim hugn­að­ist ekki stofnun eigna­um­sýslu­fé­lags­ins og töldu skyn­sam­leg­ast að vandi fyr­ir­tækja, einnig þeirra sem væru þjóð­hags­lega mik­il­væg, yrði fyrst og fremst í höndum bank­anna og hann yrði leystur sér­tækt en samt á grund­velli almennra laga og reglna.

Eygló spurði út í Mats



Eygló Harð­ar­dótt­ir, þáver­andi þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins og núver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, spurði for­sæt­is­ráð­herra sér­stak­lega út í það hvers vegna Mats Jos­efs­son hefði hótað að hætta störfum og hvaða skil­yrði hann hefði sett fyrir áfram­hald­andi störfum fyrir stjórn­völd.

Eygló Harðardóttir spurði út í gagnrýni Mats Josefssonar á Alþingi. Eygló Harð­ar­dóttir spurði út í gagn­rýni Mats Jos­efs­sonar á Alþing­i.

Í svari Jóhönnu við fyr­ir­spurn­inni sagði að Jos­efs­son hefði komið þeirri skoðun sinni „skýrt á fram­færi“ við stjórn­völd að end­ur­reisn banka­kerf­is­ins hefði verið tíma­frek­ari en að hefði verið stefnt.

„Frá lokum árs­ins 2008 hefur verið starf­andi svo­nefnd sam­ræm­ing­ar­nefnd í banka­málum sem Mats Jos­efs­son hefur stýrt og hefur sú nefnd haldið viku­lega fundi. Í þess­ari nefnd hafa setið auk Mats full­trúar for­sæt­is­ráðu­neyt­is, fjár­mála­ráðu­neyt­is, við­skipta­ráðu­neyt­is, utan­rík­is­ráðu­neyt­is, Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Seðla­banka Íslands. Í síð­asta mán­uði var ákveðið í fullu sam­ráði við Mats Jos­efs­son að breyta fyr­ir­komu­lagi þess­ara mála á þann hátt að í stað sam­ræm­ing­ar­nefnd­ar­innar yrði sett á lagg­irnar tíma­bund­inn stýri­hópur um end­ur­reisn banka­kerf­is­ins. Meg­in­til­gangur þess­arar breyt­ingar er að styrkja fram­kvæmd end­ur­reisn­ar­starfs­ins enn frekar nú þegar nær dregur þeim tíma­punkti að ríkið leggi nýju bönk­unum til nýtt eigið fé þegar samn­ingum við kröfu­hafa gömlu bank­anna lýk­ur. Stýri­hóp­ur­inn hefur fundað mjög ört og að jafn­aði þrisvar til fjórum sinnum í viku. Í stýri­hópnum sitja, auk Mats Jos­efs­son­ar, seðlabanka­stjóri, sem stýrir starfi nefnd­ar­inn­ar, full­trúi for­sæt­is­ráðu­neytis og fjár­mála­ráðu­neytis auk aðstoð­ar­manna for­sæt­is-, fjár­mála- og við­skipta­ráð­herra.

Mats Jos­efs­son hefur því ekki sett nein skil­yrði fyrir áfram­hald­andi starfi en hann hefur komið þeirri skoðun sinni skýrt á fram­færi við stjórn­völd að það fyr­ir­komu­lag sem upp­haf­lega var sett upp varð­andi end­ur­upp­bygg­ing­ar­starfið í banka­málum hafi ekki verið eins skil­virkt og stefnt var að. Með nýju fyr­ir­komu­lagi í þessum málum er brugð­ist við þessum ábend­ingum Mats Jos­efs­son­ar,“ sagði í svari for­sæt­is­ráð­herra.

Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi forsætisráðherra, staðfesti að Josefsson hefði sett fram gagnrýni á endurskipulagningu atvinnulífsins. Jóhanna Sig­urð­ar­dótt­ir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, stað­festi að Jos­efs­son hefði sett fram gagn­rýni á end­ur­skipu­lagn­ingu atvinnu­lífs­ins.

Hafði litla trú á íslensku fag­fólki og vildi erlenda ráð­gjafa



Eftir því sem leið á vinn­una við end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins og stærstu fyr­ir­tækj­anna var ljóst að Mats Jos­efs­son var ekki að ráða för og inn­takið í hans hug­myndum fékk ekki hljóm­grunn hjá stjórn­völdum eða innan end­ur­reistu bank­anna. Á fundum sem hann sat með emb­ætt­is­mönnum og starfs­fólki úr bönk­unum kom marg­sinnis fram í hans máli að hann hefði litla trú á íslensku fag­fólki og helst vildi hann fá erlenda ráð­gjafa hingað til lands­ins til að stýra eigna­um­sýslu­fé­lag­inu. Aðeins þannig væri hægt að tryggja fag­lega stjórn yfir hinum þjóð­hags­lega mik­il­vægu fyr­ir­tækj­um.

Virkjun eigna­um­sýslu­fé­lags­ins reynd­ist óþörf eftir að bank­arnir voru orðnir starf­hæf­ir. Þá gátu þeir sjálfir tekið á vand­ræðum atvinnu­lífs­ins. Það er hins vegar ljóst að hug­myndin um eigna­um­sýslu­fé­lag rík­is­ins, sem hefði fært eign­ar­hald margra fyr­ir­tækja til hins opin­bera, var hótun sem virk­aði ágæt­lega gagn­vart bönk­un­um. Hún var hvati til að drífa þá af stað. Jos­efs­son hætti störfum árið 2011. Hug­myndir hans fengu aldrei neitt braut­ar­gengi hjá íslenskum stjórn­völd­um.

Væri póli­tískt eigna­um­sýslu­fé­lag betra en bankar?



Þótt end­ur­skipu­lagn­ing íslensks atvinnu­lífs hafi að mörgu leyti gengið vel hefur hún einnig verið gagn­rýnd umtals­vert. Við­skipta­bank­arnir hafa til dæmis ítrekað legið undir ámæli fyrir að halda á eignum í óskyldum rekstri lengur en reglur gera ráð fyr­ir.

Þá hefur gagn­sæi og jafn­ræði við sölu fyr­ir­tækja sem búið er að end­ur­skipu­leggja einnig verið gagn­rýnt. Dæmi um slíka gagn­rýni snúa að sölu á fyr­ir­tækjum bak­við luktar dyr til val­inna hópa fjár­festa, að starfs­menn banka hafi nýtt sér aðstöðu sína til að kom­ast yfir fyr­ir­tæki eða að valdir við­skipta­vinir bank­anna eða aðilar innan fyr­ir­tækja sem verið er að selja fái betri kjör en öðrum bjóð­ast á hlutum í þeim í aðdrag­anda skrán­inga þeirra á mark­að.

Auk þess voru nýju bank­arnir gagn­rýndir harð­lega af stjórn­endum fyr­ir­tækja sem stóðu af sér hrunið fyrir að halda fyr­ir­tækjum sem lentu í fangi bank­anna á áfram á lífi með fjár­hags­legri með­gjöf. Með þess­ari stöðu, þar sem dauðum fyr­ir­tækjum væri haldið lif­andi með handafli, væri verið að refsa þeim sem stóðu af sér hrunið fyrir að hafa rekið fyr­ir­tækin sín af ábyrgð.

Hvernig end­ur­skipu­lagn­ingin hefði gengið ef eigna­um­sýslu­fé­lag rík­is­ins, með póli­tískri yfir­stjórn, hefði séð um hana mun eng­inn nokkru sinni vita. Það má þó slá því föstu að ásak­anir um spill­ingu, aðstöðumun, græðgi, mis­notkun og frænd­hygli, sem ítrekað hafa beinst að bönk­unum á meðan að á þeirra end­ur­skipu­lagn­ing­ar­ferli hefur stað­ið, hefðu síst orðið minni ef stjórn­mála­menn hefðu með beinum hætti verið með putt­ana í því hverjir myndu fá að eign­ast stærstu og mik­il­væg­ustu fyr­ir­tæki lands­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None