Hugmyndir Happdrættis Háskóla Íslands um spilavíti „alveg út í hött“

Henry Alexander Henrysson, doktor í heimspeki, segir hugmyndum starfshóps háskólans um álitaefni tengd tekjuöflun HHÍ ekki hafa verið framfylgt. Í staðinn talar HHÍ fyrir hugmyndum um spilavíti.

„Þetta er bara alveg út í hött, þetta er bara einhver vitleysa,“ segir Henry Alexander Henrysson, doktor í heimspeki, um hugmyndir Happdrættis Háskóla Íslands að opna spilavíti.
„Þetta er bara alveg út í hött, þetta er bara einhver vitleysa,“ segir Henry Alexander Henrysson, doktor í heimspeki, um hugmyndir Happdrættis Háskóla Íslands að opna spilavíti.
Auglýsing

Hug­myndir Happ­drættis Háskóla Íslands (HHÍ) um rekstur spila­vítis eru þvert á nið­ur­stöðu starfs­hóps Háskóla Íslands um álita­efni tengd tekju­öflun HHÍ.

Þetta er mat Henrys Alex­and­ers Henrys­son­ar, dokt­ors í heim­speki, sem átti frum­kvæði að stofnun starfs­hóps­ins í febr­úar 2021.

Auglýsing

Rektor skip­aði starfs­hóp um álita­efni tengd tekju­öflun HHÍ í mars 2021 og skil­aði hann til­lögum í júní sama ár. Nið­ur­staða hóps­ins var að Háskóla Íslands beri að leggja áherslu á skaða­minnk­andi aðgerðir í tengslum við rekstur spila­kassa. Meðal til­lagna var að hvetja HHÍ til að taka sem fyrst nauð­syn­leg skref til inn­leið­ingar spila­korta í þeim til­gangi að tak­marka spila­getu ein­stakra spil­ara.

„Það var mik­ill þrýst­ingur að það yrði fundin leið til að skrúfa þetta nið­ur. Það var nið­ur­staða starfs­hóps­ins að það yrði að gera eitt­hvað fljótt. Það var pínu óánægja, ég held að það sé ekk­ert leynd­ar­mál, hvað gengur hægt að bregð­ast við nið­ur­stöðum starfs­hóps­ins,“ segir Henry í sam­tali við Kjarn­ann.

Skömmu eftir að starfs­hópur háskól­ans hóf störf skip­aði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, starfs­hóp um happ­drætti og fjár­­hætt­u­­spil. Starfs­hóp­ur­inn skil­aði til­­lögum til Jóns Gunn­­ar­s­­sonar dóms­­mála­ráð­herra í lok nóv­em­ber, nærri einu og hálfu ári eftir að hóp­­ur­inn átti fyrst að skila til­­lög­­um.

Til­lögur HHÍ þvert á nið­ur­stöður starfs­hóps háskól­ans

Í minn­is­blaði sem Bryn­dís Hrafn­kels­dótt­ir, for­stjóri HHÍ, sendi for­manni starfs­hóps­ins í maí síð­ast­liðnum er lögð fram til­laga um að núver­andi sér­leyf­is­höfum á happ­drætt­is­mark­aði verði heim­ilt að opna spila­víti.

„Þetta er þvert á nið­ur­stöðu starfs­hóps háskól­ans, þetta er bara alveg út í hött, þetta er bara ein­hver vit­leysa,“ segir Henry.

Til­lögur starfs­hóps ráðu­neyt­is­ins hafa ekki verið gerðar opin­berar en sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er ekk­ert þar að finna um til­lögur að sér­leyf­is­höfum verið veitt leyfi til að reka spila­víti.

Hug­myndir um spila­víti hafi ítrekað komið fram

Bryn­dís segir í svari við skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarn­ans að hug­myndin um spila­víti hafi aldrei verið til umfjöll­unar í starfs­hópnum en að „hug­myndir um að heim­ila rekstur spila­halla hér á landi hafa ítrekað komið fram“. Vísar hún til að mynda í frum­vörp sem lögð voru fram á Alþingi 2014-2016.

„Í umsögnum um þau þing­mál lagði HHÍ áherslu á að ef heim­ila ætti slíka starf­semi ætti að fylgja þeirri stefnu sem gildir um happ­drætti hér á landi, þ.e. að allur hagn­aður af slíkri starf­semi renni til þjóð­þrifa­mála,“ segir í skrif­legu svari Bryn­dís­ar.

Ekk­ert sem ætti að koma í veg fyrir skaða­minnk­andi aðgerðir

Henry segir að hug­myndin með skipan starfs­hóps háskól­ans hafi verið að sam­ræma við­brögð háskól­ans við vax­andi gagn­rýn­is­röddum um að rekstur spila­kassa sé snar þáttur í tekju­öflun ýmissa stofn­ana og félaga­sam­taka sem þjóna sam­fé­lags­lega mik­il­vægu hlut­verki.

Happdrættisvélar eða spilakassar Gullnámunnar voru fyrst settir upp árið 1993.

„Ef ein­hvers staðar er þekk­ing á þessum mála­flokki í íslensku sam­fé­lagi þá er það alltaf innan háskól­ans sjálfs,“ segir Henry. Til­lögum starfs­hóps­ins hefur hins vegar ekki verið fylgt eft­ir.

„Af­sök­unin hefur verið sú, sem ég er reyndar per­sónu­lega ósam­mála, að það þurfi að bíða eftir nið­ur­stöðum starfs­hópi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins,“ segir Hen­ry, en að hans mati er ekk­ert sem ætti að koma í veg fyrir að háskól­inn ráð­ist í skaða­minnk­andi aðgerð­ir. Í stað­inn er Happ­drætti Háskóla Íslands að fara í allt aðra átt en starfs­hóp­ur­inn lagði til, til að mynda með hug­myndum um rekstur spila­vít­is.

„Við vorum að reyna að berj­ast við að bjarga skól­anum og orð­spori hans. Við komumst að sam­hljóða nið­ur­stöðu að það væri ekk­ert eftir neinu að bíða fyrir háskól­ann. Allar skaða­minnk­andi aðgerðir sem eru mögu­leg­ar, það er engin rétt­læt­ing á að fara ekki strax í þær. Það er bara þannig.“

Henry segir að happ­drættið sjálft, sem HHÍ stendur fyr­ir, muni líða fyrir áherslur HHÍ á spila­víti og fjár­hættu­spil á net­inu.

„Ég hef haldið því per­sónu­lega fram að það séu tæki­færi til að sækja fram á þeim mark­aði sem er allt ann­ars eðlis og ekki skaða­vald­andi mark­að­ur, að reka happ­drættið sjálft,“ segir Henry. Þannig væri hægt að loka spila­kössum en hvetja fólk til að kaupa happ­drætt­is­miða.

„En ef Happ­drætti háskól­ans ætlar að fara í þessa átt þá finnst mér, mark­aðs­lega, verið að missa af tæki­fær­in­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnErla María Markúsdóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar