Ísland eftirbátur í netöryggi – Seðlabankinn líklegur veikleiki

attack.jpg
Auglýsing

Ísland er á margan hátt eft­ir­bátur þegar kemur að net­ör­ygg­is­mál­um, og er af þeim sökum lík­legt skot­mark netárása, bæði þegar kemur að hakk­ara her­ferðum og einnig sér­tækum árásum þeirra á valin skot­mörk. Í ljósi þess að Seðla­banki Íslands er aðil­innn sem ber ábyrgð á fjár­magns­hreyf­ingum til og frá land­inu þá skapar það „mjög lík­legan mið­punkt fyrir veik­leika í net­kerf­inu. (hig­hly likely central point of cyber weakness).“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem unnin hefur verið um net­ör­ygg­is­mál á Íslandi (Iceland – A Wapack Labs Assess­ment of Risks to Information Security in Iceland). Í skýrsl­unni er fjallað ítar­lega um stöðu mála á Íslandi þegar kemur að net­ör­yggi, og er Ísland sagt vera með til­tölu­lega veika inn­viði í tölvu­kerfum sínum og reiða sig að miklu leyti á sér­fræði­þekk­ingu erlendis frá. Af þeim sökum sé mögu­legt að Ísland geti ekki varist árásum eða álagi á tölvu­kerfi lands­ins af nægi­lega miklum mætti.

Seðlabankinn er líklegur miðpunktur veikleika þegar kemur að netöryggi, segir í skýrslu um netöryggi á Íslandi. Seðla­bank­inn er lík­legur mið­punktur veik­leika þegar kemur að net­ör­yggi, segir í skýrslu um net­ör­yggi á Ísland­i.

Auglýsing

Skot­mörk víða í kerf­inu - orku­kerfin

Í skýrsl­unni kemur fram að Alþingi hafi nú þegar verið undir árásum hakk­ara, og ýmis­legt sem snúi að innviðum í atvinnu­lífi geti verið álitin skot­mörk í tölvu­árás­um. Það eigi meðal ann­ars við um orku­kerfi lands­ins og áliðn­að, þar sem sam­keppn­is­að­ilar geti séð sér leik á borði og reynt að hafa áhrif á verð­lagn­ingu í kostn­að­ar­þátt­um, t.d. í gegnum orku­verð­ið. Sér­stak­lega er til­greint í skýrsl­unni að orku­kerfi lands­ins séu við­kvæm fyrir árásum, meðal ann­ars vegna þeirra kerfa sem stuðst sé við þegar kemur að stýr­ingu þeirra. Í alþjóð­legum sam­an­burði hafi reynslan sýnt að þau séu við­kvæm fyrir ákveðnum teg­undum tölvu­árása.

Kína teng­ing gæti verið leikur að eldi

Í skýrsl­unni kemur enn fremur fram, að aukin tengsl við Kína geti geti verið leikur að eldi í ákveðnum skiln­ingi, þar sem það gæti dregið áhættu að tölvu­kerfum í innviðum lands­ins. Þá geti stefnu­mörkun um að gera Ísland að eins­konar frí­ríki fyrir upp­lýs­ingar á net­inu, á meðan inn­við­irnir eru veik­ir, ýtt undir að glæp­a­starf­semi sæki hing­að. Dæmi eru slíkt hafa í raun þegar komið fram, eins og tekið er fram í skýrsl­unni, og má nefna nýleg dæmi þegar Isnic lok­aði á lén sem liðs­menn Íslamska rík­is­ins, ISIS, not­uð­ust við, í októ­ber í fyrra.

Þörf á því að bregð­ast við

Mikil þörf er á því að bregð­ast við stöðu mála hér á landi, að því er fram kemur í skýrsl­unni. Árásin á Voda­fone í nóv­em­ber 2013, þar sem við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar við­skipta­vina voru gerðar opin­ber­ar, sýnir að veik­leikar eru fyrir hendi.

Í skýrsl­unni er lagt til að áhættu­mat á tölvu- og net­ör­yggi fyrir inn­við­ina hér á landi verði unn­ið, og ítar­lega farið ofan í saumann á mik­il­væg­ustu þátt­un­um, þar á meðal teng­ingu lands­ins við umheim­inn í gegn strengi.

 Kjarn­inn mun halda áfram umfjöllun sinni um net­ör­yggi og tækni­lega inn­viði Íslands næstu daga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None