Mest launaskrið hjá fjármálastjórnendum, karlar einoka stjórnendastörfin

forsidumynd4-1.jpg
Auglýsing

Með­al­tal heild­ar­launa á Íslandi voru tæpar 571 þús­und krónur í lok síð­asta árs og hafa hækkað um 2,5 pró­sent á milli ára. Frá árinu 2010 hafa þau hækkað um rúm­lega 15 pró­sent. Mesta hlut­falls­lega launa­skriðið milli ára er hjá yfir­mönnum fjár­mála- og stjórn­un­ar­deilda, en lan þeirra hækk­uðu um 11,5 pró­sent á síð­asta ári. Þau eru nú að með­al­tali 1.117 þús­und krónur á mán­uði. Mik­ill kynja­munur er á stjórn­enda­störf­um. Fleiri karlar en konur sinna slíkum í 17 af 20 teg­undum stjórn­enda­starfa.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í launa­grein­ingu PwC fyrir árið 2014.

Launa­grein­ingin er unnin úr gögnum 16.137 laun­þega frá 83 fyr­ir­tækj­um. Það sam­svarar tæp­lega tíu pró­sent alls launa­fólks á Íslandi. Skýrslan um nið­ur­stöður henn­ar, sem var gerð opin­ber í dag, birtir upp­lýs­ingar um 131 teg­und starfa á íslenskum atvinnu­mark­aði.

Auglýsing

 

Föst laun hækka meira en heild­ar­laun

Í skýrsl­unni segir að með­al­tal heild­ar­launa þátt­tak­enda í könn­un­inni hafi verið 465.565 krónur árið 2010. Launin hafi vaxið jafnt og þétt und­an­farin ár og heild­ar­launin standi nú í 570.719 krón­um. Sú hækkun launa sem átti sér stað á árinu 2014 er umtals­vert umfram verð­bólgu sem þýðir raun­veru­lega kaup­mátt­ar­aukn­ingu. Helm­ingur launa­manna eru með 500 þús­und krónur eða meira í heild­ar­laun á mán­uði og 7,1 pró­sent eru með meira en eina milljón króna í laun á mán­uði. Í fyrra voru um 9,3 pró­sent heild­ar­launa til­komin vegna auka­greiðslna í launa­umslag­inu. Það er mjög sam­bæri­legt hlut­fall og árin á und­an. Hlut­fall auka­greiðslna af heild­ar­launum er hærra hjá fyr­ir­tækjum sem greiða lág grunn­laun.



Föstu laun­in, það sem fólk fær greitt utan auka­greiðslna, hafa hækkað hraðar en heild­ar­laun und­an­farin ár. Árið 2010 voru með­al­tals föst laun 443.632 krón­ur. Í fyrra voru þau 517.571 krónur og höfðu hækkað um 16,6 pró­sent frá árinu 2010. Á síð­asta árin einu saman hækk­uðu þau um3,1 pró­sent.

Launa­hækk­anir virð­ast heilt yfir hafa verið mjög í takt við verð­bólgu þegar litið er á tíma­bil sem nær yfir nokkur ár. Frá árinu 2010 er árlegt með­al­tal breyt­inga á föstum launum 3,9 pró­sent, sem er sama tala og árleg með­al­tals verð­bólga var á sama tíma­bili. Árleg breyt­ing heild­ar­launa er hins vegar 3,6 pró­sent að með­al­tali, eða 0,3 pró­sentu­stígi undir árlegu verð­bólgu­með­al­tali.



Hallar mjög á konur



Í skýrsl­unni er einnig farið yfir kynja­hlut­föll í stjórn­enda­stöðum fyr­ir­tækja. Nið­ur­staðan er sú að karlar eru fjöl­menn­ari í 17 starfs­heitum af 20 sem skoðuð voru. Einu þrjár stjórn­enda­stöðu­stétt­irnar sem konur voru fjöl­menn­ari en karlar í voru yfir­menn þjón­ustu­deilda, yfir­menn starfs­manna­halds og í stétt skrif­stofu­stjóra, aðal­bók­ara og aðal­gjald­kera.

Tæp­lega 80 pró­sent for­stjóra og aðal­fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja og stofn­ana eru karl­ar.

Mest launa­skrið hjá yfir­mönnum í fjár­mála- og stjórn­un­ar­deildum



Sá starfa­flokkur sem hækkar mest í launum á milli ára eru yfir­menn fjár­mála- og stjórn­un­ar­deilda. Mið­gildi launa þar hækk­aði um 11,5 pró­sent á árinu 2014, úr einni milljón króna í 1.117 þús­und krónur á mán­uði. Sér­fræði­störf í stærð­fræði og trygg­inga­fræði komu þar á eft­ir, en mið­gildi laun þeirra sem starfa í þeim geira hækk­uðu að með­al­tali um 10,4 pró­sent.

Minnsta launa­skrið­ið, hjá þeim flokkum sem kann­aðir voru, er hjá bil­stjórum vöru- og flutn­inga­bif­reiða. Laun þar hækk­uðu að með­al­tali um tvö pró­sent í fyrra og mið­gildi þeirra stóð í 478 þús­und krónum í lok árs.



























































































































































































Starfa­flokkur 2013 2014 breyt­ing
For­stjórar og aðal­fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tækja og stofn­ana 1.800 þús­und 1.859 þús­und 3,30 pró­sent
Yfir­menn fjár­mála- og stjórn­un­ar­deilda 1.003 þús­und 1.117 þús­und 11,50 pró­sent
Sér­fræði­störf í stærð­fræði og trygg­inga­fræði 701 þús­und 774 þús­und 10,40 pró­sent
Sér­fræði­störf í véla­verk­fræði 776 þús­und 801 þús­und 3,30 pró­sent
Sér­fræði­störf við end­ur­skoðun og upp­gjör 734 þús­und 782 þús­und 6,50 pró­sent
Tækni- og rann­sókn­ar­störf við örygg­is-, holl­ustu- og gæða­eft­ir­lit 568 þús­und 604 þús­und 6,40 pró­sent
Störf þjón­ustu­full­trúa og sér­hæfð störf í banka­stofn­unum 429 þús­und 452 þús­und 5,30 pró­sent
Störf bók­ara 438 þús­und 456 þús­und 4,10 pró­sent
Afgreiðslu- og sölu­störf í sér­vöru­versl­unum og heild­sölum 335 þús­und 354 þús­und 5,40 pró­sent
Störf málm­smiða, logsuðu­manna, blikk­smiða og stál­smiða 553 þús­und 590 þús­und 6,70 pró­sent
Störf iðn- og land­bún­að­ar­vél­virkja 548 þús­und 601 þús­und 9,60 pró­sent
Sér­hæfð störf við mat­væla­iðnað 412 þús­und 442 þús­und 7,30 pró­sent
Bíl­stjórar vöru- og flutn­inga­bif­reiða 468 þús­und 478 þús­und 2,00 pró­sent
Störf verka­fólks við flutn­inga og vöru­geymslu 336 þús­und 359 þús­und 6,90 pró­sent

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None