Íslendingar elska H&M og Apple - 22 prósent fatainnkaupa í H&M

HM.jpg
Auglýsing

Alls versl­uðu rúm­lega 57% not­enda Meniga í Frí­höfn­inni á síð­asta ári. Að með­al­tali vörðu þeir tæpum 40.000 krónum í Frí­höfn­inni á árinu 2013. Það kemur ekki á óvart að hæsti tekju­hóp­ur­inn versl­aði bæði oftar og fyrir hærri upp­hæðir en sá tekju­lægsti, en tekju­hæsti hóp­ur­inn versl­aði að með­al­tali 4,8 sinnum í Frí­höfn­inni en sá tekju­lægsti 1,4 sinnum að með­al­tali. Árið 2013 varði tekju­hæsti hóp­ur­inn að með­al­tali rúm­lega 57.000 krónur í Frí­höfn­inni í sam­an­burði við tæpar 25.000 krónur hjá þeim tekju­lægsta.







Mikil fata­kaup erlendis



Þá er einnig áhuga­vert að skoða hrifn­ingu land­ans á verslun í H&M. Tæp 37% not­enda Meniga versl­aði í H&M. Þó versla tekju­hærri hópar mun oftar en þeir tekju­lægri. Þannig versl­uðu 26% tekju­lægsta hóps­ins í H&M í sam­an­burði við 47% þeirra tekju­hæstu. Lít­ill sem eng­inn munur var á með­al­upp­hæð sem keypt var fyrir í hvert sinn eftir tekju­hóp­um, en hún var rúmar 15.000 krón­ur. Sama má segja um heild­ar­upp­hæð sem þeir vörðu í H&M á árinu 2013, en hún nam að með­al­tali 32.000 krón­um.

H&M er langstærsta fata­versl­unin á íslandi



Sé hlut­deild í fata­verslun Men­inga not­enda skoðuð sést þeir verja 22% fata­versl­unar sinnar í versl­unum H&M, en sú inn­lend verslun sem kemur næst er með 9% hlut­deild. Aðrar versl­anir eru með 5% hlut­deild eða minna.  H&M er því langstærsta fata­verslun á Íslandi sem er einkar áhuga­verð stað­reynd þar sem H&M starf­rækir enga verslun á Íslandi.





Eplin í inn­kaupa­körfu land­ans



Árið 2013 versl­uðu 3,7% Meniga­not­enda í versl­unum Apple erlend­is. Ein­ungis tæp­lega 2% tekju­lægsta hóps­ins versl­aði við Apple í útlöndum í sam­an­burði við rúm­lega 7% þess tekju­hæsta.

Að með­al­tali keyptu þeir vörur þar fyrir rúmar 77.000 krón­um; tekju­lægsti hóp­ur­inn varði rúmum 58.000 en sá tekju­hæsti tæpum 90.000. Þess utan vörðu 16% Meniga­not­enda að með­al­tali tæpum 9.000 krónum í iTu­nes.

Það er ljóst að stór hluti Meniga­not­enda verslar í H&M en ver hæstu upp­hæð­unum í versl­unum Apple. Þá er áhuga­vert að velta fyrir sér ástæðum þess að fólk kýs að versla föt og raf­tæki erlend­is. Nær­tæk­ast er að ætla að Meniga­not­endur beini verslun sinni þangað sem hún er hag­stæð­ust. Sé það rétt, er áhuga­vert að draga fram hvernig tekju­hóp­arnir hafa ólík tæki­færi að nýta sér þau lægri verð sem bjóð­ast í versl­unum erlend­is. Þá er einnig ljóst að íslenska ríkið verður af tekjum vegna versl­unar Meniga­not­enda erlend­is.

Auglýsing

 

 

Ofan­greindar upp­lýs­ingar eru fengnar úr Meniga­hag­kerf­inu og unnar í sam­starfi Stofn­unar um fjár­mála­læsi og Meniga. Meniga hjálpar fólki að halda utan um fjár­mál heim­il­is­ins og er heild­ar­fjöldi not­enda um 40.000. Aldrei er unnið með per­sónu­grein­an­leg gögn í Meniga hag­kerf­inu. Nán­ari upp­lýs­ingar má finna á www.­meniga.is og www.­fe.is. Höf­undur grein­ar­innar er for­stöðu­maður Stofn­unar um fjár­mála­læsi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None