Vatn á myllu kölska

Sverrir Albertsson segir fullt tilefni til að blása til samstöðu innan Starfsgreinasambandsins og hvetur aðildarfélög þess til að veita Eflingu þann stuðning sem þarf í komandi baráttu.

Auglýsing

Yfir­lýs­ing for­manns Efl­ingar um hærri fram­færslu­kostnað í Reykja­vík en á lands­byggð­inni hefur farið fyrir brjóstið á fólki og meira að segja for­menn verka­lýðs­fé­laga hafa séð ástæðu til að stíga fram og mæla gegn þess­ari yfir­lýs­ing­u.  

Það er tvennt vont við þessa stöð­u. Í fyrsta lagi eru þetta óheppi­leg ummæli for­manns Efl­ingar því henni mátti vera ljóst að skilja mætti ummæli hennar sem svo, að það ættu að vera hærri launa­taxtar að jafn­aði í Reykja­vík en ann­ars stað­ar­. Það er úti­lokað að nokkurn tíma tæk­ist sam­staða um það innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar. Og verka­lýðs­fé­lag sem stefnir í átök þarf á sam­stöðu að halda.

Í öðru lagi er mjög óheppi­legt að for­menn ann­arra verka­manna­fé­laga skuli stíga fram í deilu sem á fyrst og fremst að vera milli Efl­ingar og SA. For­ysta Sam­taka atvinnu­lífs­ins hefur því getað hallað sér aftur á bak og fylgst með for­mönnum verka­manna­fé­laga takast á um rétt­mæti krafna Efl­ing­ar. Þeir hafa eflaust skemmt sér ágæt­lega á með­an.

Við ættum að styðja hvert það verka­lýðs­fé­lag lág­launa­fólks sem fer fram með launa­kröfur – jafn­vel þó við höfum sjálf samið um annað og lægra. Þannig náði verka­lýðs­hreyf­ingin árangri á fyrstu ára­tugum bar­átt­unnar – sigrar unn­ust í mörgum smá­or­ustum og launa­hækkun sem samið er um á einum stað – smit­ast fljótt út til ann­arra.

Auglýsing
Síðar lærðu launa­greið­endur að skipu­leggja sig og hafa unnið hörðum höndum að því að smala öllu launa­fólki í eina rétt. Því miður með aðstoð frá verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Marg­um­rætt Salek sam­komu­lag sner­ist einmitt um að smala öllum í eina rétt og það sem samið væri fyrir einn – myndi svo gilda um alla.

Salek þýðir því og hefur alltaf þýtt að sjálf­stæði hvers verka­lýðs­fé­lags er skert og samn­ings­rétt­ur­inn færður í ein­hverja „sátt“ sem snýst um nið­ur­stöðu úr excel skjali sem sýnir hvað er eftir til ráð­stöf­unar eftir m.a. arð­greiðslur og ofur­laun stjórn­enda.

Verka­lýðs­bar­átta á ekki að snú­ast um per­sónur og leik­endur heldur félags­menn­ina sem fá laun skv. gerðum kjara­samn­ing­um. Hvort fólki líkar við for­mann Efl­ingar eða ekki, eða er sam­mála mál­flutn­ingi hennar eða ekki – skiptir bara engu máli. Það eru kom­andi kjara­samn­ingar Efl­ingar sem skipta máli og ekki bara fyrir félags­menn Efl­ingar heldur alla félags­menn í aðild­ar­fé­lögum Starfs­greina­sam­bands­ins. Því nái Efl­ing betri samn­ingi en aðrir hafa gert er næsta víst að eitt­hvað af þeim hækk­unum munu ganga út til ann­arra félaga í formi launa­skriðs og annað mun nást í samn­ingum eftir 12 mán­uði.

Nú þegar ljóst er að það stefnir í verk­fallsá­tök í Reykja­vík er fullt til­efni til að blása til sam­stöðu innan Starfs­greina­sam­bands­ins og að aðild­ar­fé­lög þess veiti Efl­ingu þann stuðn­ing sem þarf. 

Höf­undur er starfs­maður AFLs Starfs­greina­fé­lags.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Nýr vegur um Öxi yrði mikil lyftistöng fyrir Múlaþing en einnig allt Austurland segir sveitarstjórinn. Á myndina er búið að tölvuteikna nýjan veginn fyrir miðju.
Myndu að „sjálfsögðu ekki“ sætta sig við verulegar tafir á Axarvegi
Sveitarstjórn Múlaþings mun ekki sætta sig við verulegar tafir á framkvæmdum við Axarveg. Sveitarstjórinn óttast reyndar ekkert slíkt enda hafi hann engin skilaboð fengið um að setja eigi framkvæmdina „í salt“ vegna þenslu.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar