Þegar það snjóaði inn um anddyri Íslands

Borghildur Sölvey Sturludóttir skrifar um aðstæðurnar sem mynduðust í Leifsstöð í desember og hvernig koma má í veg fyrir slíkt. „Það þarf öflugt almenningssamgöngukerfi sem leyfir fólki að velja, sem leyfir frelsi en er ekki takmarkandi.“

Auglýsing

Ég var stödd á flug­vell­inum þann 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn þegar allt lok­aði og allar leiðir stífl­uð­ust. And­dyri Íslands fyllt­ist af snjó - eins og hendi væri veifað varð fjöldi fólks fast í flug­stöð­inni, komst hvorki lönd né strönd.

Aðstæð­urnar urðu erf­iðar á stuttum tíma, þarna var fullt af fólki með börn, fólk sem ætl­aði sér ekk­ert að stoppa á Íslandi og var ekki klætt til að standa í röð í 3 klukku­tíma eftir töskum, aðra 3 klukku­tíma eftir bíl/rút­u/bíla­leigu­bíl sem aldrei kom. Óboð­legar aðstæð­ur.

Þarna krist­all­að­ist á svip­stundu ein­hæfni okkar þegar kemur að ákvörð­unum í sam­göngu­mátum og hve lítið þarf til að allt fari á hvolf, eða eins og í þessu til­viki – í skafl.

Auglýsing

Ég veit – vetur kem­ur, það er lög­mál, það snjó­ar, það er ófært – allra veðra von og allt það. En hvernig við höfum hreiðrað um okkur hér, hvaða val við höfum – eða það sem meira er, hvaða val við höfum ekki komið okkur upp, er það sem stendur upp­úr!

Inn­við­a­ráð­herra talar nú um að Vega­gerðin þurfi að girða sig í brók – að það þurfi að moka meira. Umhverf­is­ráð­herra vill meina að mengun sem nú hvílir yfir höf­uð­borg­ar­svæð­inu stafi m.a. af dísel­vélum strætó. Fag­fólk veit að ekk­ert af þessum leið­um, rökum eða áherslum ráða­manna þjóð­ar­innar er kjarn­inn í lausn sem þarf.

Og nei – við erum ekki of fámenn – okkur hefur skort hug­rekki til að taka ákvarð­anir sem virka fyrir fleiri en þá sem reka bíla. Það þarf öfl­ugt almenn­ings­sam­göngu­kerfi sem leyfir fólki að velja, sem leyfir frelsi en er ekki tak­mark­andi eða situr fast. Og jú – það eru fámenn­ari bæir, norð­ar­lega á hnett­inum sem hafa valið lest­ir, spor­vagna­kerfi, eða BRT kerfi með góðum árangri.

Enn sem komið er er Leifs­stöð okkar stærsta and­dyri, hér segjum við vel­komin til Íslands eða vel­komin heim. Hvernig við síðan komumst heim, eða leyfum gestum að halda leið sinni áfram um eyj­una þarf að end­ur­hugsa – einka­bíll­inn getur ekki haldið áfram að vera aðal leið­in.

Höf­undur er arki­­tekt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar