Eygló segir eðilegt að lækka framlög, VIRK eigi ekki að safna fé í sjóði

mf131030-mfdx5960.jpg
Auglýsing

Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, segir að falli VIRK starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóður ekki frá þeirri ákvörðun sinni að hafna 200 millj­óna króna fram­lagi rík­is­ins „verði allt kapp lagt á að tryggja fólki þá þjón­ustu sem það þarf hjá VIRK eða eftir öðrum leið­u­m“. Ráð­herr­ann segir að það sé ekki hlut­verk VIRK að safna pen­ingum í sjóði og telur eðli­legt að lækka fram­lög til stofn­un­ar­innar í ljósi þess að hún á vara­sjóð. Eygló ætlar að óska eftir fundi með stjórn VIRK sem fyrst til að halda áfram við­ræðum um lausn á mál­inu. Þetta kemur fram í frétt á vef vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins sem var birt í dag.

Kjarn­inn greindi frá því á laug­ar­dag að VIRK muni ekki taka við ein­stak­lingum sem standa utan vinnu­mark­að­ar, eru á örorku­líf­eyri eða skjól­stæð­ingar félags­mála­stof­ana á árinu 2015 að óbreyttu. Þetta til­kynnti stjórn­ar­for­maður VIRK Eygló bréfleiðis á fimmtu­dag í kjöl­far þess að fjár­lög, sem gera ráð fyrir að fram­lag rík­is­ins til VIRK á næsta ári verði 200 millj­ónir króna, voru sam­þykkt. Sam­kvæmt lögum og samn­ingum sem hafa verið und­ir­rit­aðir átti fram­lag rík­is­ins til VIRK Að vera 1,1 millj­arðar króna á næsta ári.

VIRK mun því ekki taka við þeim 200 millj­ónum króna sem sjóðnum er skammtað á fjár­lög­um. Í bréf­inu segir enn­fremur að nú liggi „fyrir að ríkið mun ekki að standa við sam­komu­lagið og því er VIRK nauð­beygt til að til­kynna starfsend­ur­hæf­ing­ar­stöðv­unum um breyttar for­sendur þjón­ustu­kaupa á næsta ári“. Því mun­i ­VIRK „ekki geta tekið ein­stak­linga í þjón­ustu á árinu 2015 sem ekki er greitt iðgjald af í sjóð­inn“.

Auglýsing

Ríkið hefur ekki greitt sitt fram­lag



VIRK er eini starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóður lands­ins og sam­kvæmt lögum eiga atvinnu­rek­end­ur, líf­eyr­is­sjóðir og íslenska ríkið að fjár­magna hann. Sjóð­ur­inn er sjálfs­eign­ar­stofnun en ekki opin­ber stofnun og því getur ríkið ekki tekið ein­hliða ákvörðun um nið­ur­skurð hans.

­Sama ár tók VIRK yfir samn­inga vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins við starfsend­ur­hæf­ing­ar­stöðvar um allt land fyrir um 400 millj­ónir króna á ári og hefur því greitt sam­tals 800 millj­ónir króna af útgjöldum á síð­ustu tveimur árum sem ann­ars hefðu lent á ríkinu.

Ríkið hefur ekki greitt sitt fram­lag til VIRK hingað til og í fyrra var gert óform­legt sam­komu­lag um að fresta fram­lagi rík­is­ins um eitt ár gegn því að það kæmi inn árið 2015. Sama ár tók VIRK yfir samn­inga vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins við starfsend­ur­hæf­ing­ar­stöðvar um allt land fyrir um 400 millj­ónir króna á ári og hefur því greitt sam­tals 800 millj­ónir króna af útgjöldum á síð­ustu tveimur árum sem ann­ars hefðu lent á rík­inu.

Þegar fjár­lög voru kynnt í haust var ekki gert ráð fyrir neinu fram­lagi til VIRK á árinu 2015 þrátt fyrir að sú upp­hæð hefði átt að vera 1,1 millj­arður króna og að fram­lag rík­is­ins væri bundið í lög. Í kjöl­far mót­mæla stjórnar VIRK við þessu var ákveðið að fram­lagið yrði 200 millj­ónir króna án þess að sér­stakar skýr­ingar væru settar fram um hvernig sú tala væri fund­in.

Ekki hlut­verk VIRK að safna í sjóð að mati ráð­herra



Í bréfi stjórn­ar­for­manns VIRK til félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sem var sent síð­ast­ið­inn fimmtu­dag, kemur fram að við­ræður við ráð­herra og emb­ætt­is­menn hafi einkum verið mætt með „óbil­gjörnum kröfum um mik­inn nið­ur­skurð í starf­sem­inni, þrátt fyrir að hún hafi skilað miklum ávinn­ingi til ein­stak­linga, rík­is­sjóðs, líf­eyr­is­sjóða og sam­fé­lags­ins í heild[...]einkum virð­ist sá vara­sjóður sem byggður hefur verið upp með fram­lögum atvinnu­lífs­ins, og nauð­syn­legur er til að mæta óvissri fram­tíð sjóðs­ins, vera þeim þyrnir í aug­um.

Vara­sjóð­inn á að nota ef breyt­ingar verða á starf­semi VIRK og vinda þarf ofan af henni. Þá á vara­sjóð­ur­inn að standa undir kostn­aði við þær breyt­ing­ar.

Í frétt­inni sem birt­ist á vef vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í morgun er haft eftir Eygló Harð­ar­dóttur að það sé „ekki  hlut­verk VIRK að safna í sjóð og Alþingi lagði áherslu á þá afstöðu sína þegar lög um starfsendu­hæf­ing­ar­sjóði voru sam­þykkt. Það er ágrein­ingur um fram­lög þeirra þriggja aðila sem eiga að leggja sjóðnum til fé. Ég tel eðli­legt að lækka fram­lögin þannig að ekki verði óeðli­leg sjóðs­söfn­um, aðhalds verði gætt í rekstr­inum og að allir aðil­arnir þrír greiði jafnt í sjóð­inn.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None