Eðlilegt að fara yfir endurreisn bankakerfis

Screen-Shot-2015-02-17-at-15.54.43.png
Auglýsing

Brynjar Níels­son sér þess ekki merki að við end­ur­reisn bank­anna þriggja hafi verið beitt svikum og blekk­ingum eða að farið hafi verið á svig við lög. Þrátt fyrir það segir hann eðli­legt að skoðað verði, að minnsta kosti að ein­hverju leyti, hvort veiga­miklar ákvarð­anir hafi í öllum til­vikum verið eðli­legar á þeim tíma sem þær voru teknar og hvort mál­efna­leg sjón­ar­mið hafi alltaf legið þar að baki.

Þetta kemur fram í skýrslu hans til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis vegna erind­is Víg­lundar Þor­steins­son­ar, en Víglundur hefur haldið því fram að svikum og blekk­ingum hafi verið beitt við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins og útlend­ingar hafi hagn­ast um hund­ruð millj­arða á því.

Brynjar segir nauð­syn­legt og eðli­legt að skoða allt ferlið við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins og aðgerðir við end­ur­skipu­lag­ingu skulda fyr­ir­tækja og ein­stak­linga í því skyni að styrkja lagaum­gjörð­ina og skýra form­reglur stjórn­sýsl­unn­ar. Ein­hver kostn­aður muni fylgja end­ur­skoðun og yfir­ferð af þessu tagi en hún er engu að síður nauð­syn­leg að mati Brynjars.

Auglýsing

Gögn Víg­lundar ófull­nægj­andi



Þá segir Brynjar í skýrsl­unni að gerð hennar hafi tekið lengri tíma en áætlað var, fyrst og fremst vegna þess að gögnin sem fylgdu erindi Víg­lundar til Alþingis hafi verið ófull­nægj­andi. „Því var ekki hægt að leggja mat á þær full­yrð­ingar og ásak­anir sem þar komu fram, án þess að afla frek­ari gagna, fara yfir lög, reglur og stjórn­sýslu­á­kvarð­anir sem tengd­ust mál­efn­inu og ræða við ýmsa sem voru með einum eða öðrum hætti þátt­tak­endur í atburða­rásinni og aðra sem miðlað gátu af þekk­ingu sinn­i.“

Þá segir Brynjar að full­yrða megi þegar horft sé til baka að margt hefði mátt gera bet­ur, en hvað sem því líði verði ekki hjá því horft að tek­ist hafi að end­ur­reisa banka­kerfið „og greiðslu­miðlun féll ekki niður einn ein­asta dag. Hér stóðu stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn og sér­fræð­ingar frá haustinu 2008 frammi fyrir nánast ó­vinn­andi verk­efni við for­dæma­lausar aðstæð­ur. Það verk­efni var, þrátt fyrir allt, leyst af hend­i og ástæða er til að fagna því.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None