Matorka og stofnendur félagsins hafa fengið 90 milljónir frá Rannís

Canaqua5.jpg
Auglýsing

Stofn­end­ur ­fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Matorku hafa fengið tæp­lega 90 millj­ón­ir króna úr tækni­þró­un­ar­sjóði Rann­sókn­ar­mið­stöðvar Íslands (Rannís) frá árinu 2010.

Fyr­ir­tæk­ið, sem hét áður­ ­Ís­lensk matorka ehf., fékk tæp­lega 27 millj­óna króna styrk árið 2011 til þriggja ára vegna verk­efn­is­ins „Úr grænum haga í fiskimaga.“ Með­um­sækj­endur Íslenskrar matorku um styrk­inn voru Laxá ehf., Fóð­ur­blandan hf., Matís og Háskóli Íslands. Mark­mið verk­efn­is­ins, sam­kvæmt vef­síðu Rannís, var að lækka fóð­ur­kostnað í fisk­eldi og þróa ný íslensk hrá­efni í fóður sem eru ódýr, umhverf­is­væn og sjálf­bær.

Ragn­heiður Inga Þór­ar­ins­dótt­ir, verk­fræð­ing­ur, sem átti upp­haf­lega þriðj­ungs­hlut í Íslenskri matorku við stofnun félags­ins í gegnum félagið Svinna-verk­fræði ehf., var ­fyrst titluð sem verk­efn­is­stjóri yfir verk­efn­inu, en Stef­anía Katrín Karls­dóttir tók síðar við verk­stjórn­inni af Ragn­heiði. Stef­an­ía, sem er mat­væla­fræð­ingur og við­skipta­fræð­ingur og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Árborg, er sömu­leiðis einn stofn­anda Íslenskrar matorku og átti þriðj­ungs­hlut í félag­inu við stofnun í gegnum félagið Nova Invest­ment, sem hún á ásamt eig­in­manni sínum Eiríki Svav­ars­syni hæsta­rétt­ar­lög­manni.

Auglýsing

Millj­ón­irnar streymdu inn



Stef­an­í­a var einnig í for­svari fyrir verk­efni sem hlaut 23,5 millj­óna króna styrk úr tækni­þró­un­ar­sjóði Rannís árið 2010. Verk­efnið laut að því að byggja upp nýja útflutn­ings­grein, fram­leiðslu á hvítum mat­fiski í hlý­vatns­eldi. Þar að auki fékk Stef­an­í­a 12,5 millj­óna króna styrk úr tækni­þró­un­ar­sjóði Rann­sókn­ar­mið­stöðvar Íslands í fyrra, en með­um­sækj­endur hennar að styrknum voru Íslensk matorka og Mat­ís. Mark­mið verk­efn­is­ins var að hefja þör­unga­ræktun í frá­rennsli frá fisk­eldi.

Þá hefur áður­nefnd Ragn­heiður Inga, einn af stofn­endum Íslenskrar matorku, tví­vegis hlotið veg­lega styrki úr tækni­þró­un­ar­sjóði Rannís. Árið 2013 fékk hún 14 millj­óna króna styrk til tveggja ára frá Rannís vegna land­eldis á Evr­ópu­humri, og í fyrra fékk hún 12,5 millj­óna styrk úr tækni­þró­un­ar­sjóðnum til verk­efnis sem þróar hag­kvæma fram­leiðslu á fiski og græn­meti, með því að nota jarð­hita og ferskt hreint vatn. Með­um­sækj­endur að síð­ast­nefnda verk­efn­inu voru Biof­or­sk, Háskóli Íslands og Land­bún­að­ar­há­skóli Íslands.

Nú á að ein­beita sér að bleikju­eldi



Eins og áður segir á Ragn­heiður félagið Svinna-verk­fræði ehf. sem aftur á tæp­lega tólf pró­senta hlut í einka­hluta­fé­lag­inu Rann­sóknir og þró­un, sem áður hét Matorka. Matorka Hold­ings, sviss­neskt móð­ur­fé­lag Matorku ehf., á ríf­lega 88 pró­senta hlut í Rann­sóknum og þróun á móti Svinn­u-verk­fræði ehf.

Áður­nefnt félag Stef­aníu K. Karls­dóttur og Eiríks Svav­ars­son­ar, Nova Invest­ment, á 15 pró­senta hlut í Matorku Hold­ings. Þá á félagið Landás tæp­lega 15 pró­senta hlut í móð­ur­fé­lagi Matorku ehf., en það félag er í eigu Sjafnar Sig­ur­gísla­dótt­ur, fyrr­ver­andi for­stjóra Mat­ís, og var þriðja félagið sem kom að stofnun Íslenskrar matorku árið 2010.

Tækni­þró­un­ar­sjóður Rann­sókn­ar­mið­stöðvar Íslands hefur þannig frá árinu 2010 ýmist styrkt stofn­endur Matorku eða félagið sjálft í sam­vinnu við aðra, um tæp­lega 90 millj­ónir króna vegna ýmissa verk­efna. Eins og kunn­ugt er gerði félagið umdeildan fjár­fest­inga­samn­ing við ríkið á dög­unum vegna fyr­ir­hug­aðs bleikju­eldis á Reykja­nesi. Sam­kvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins um málið gætu íviln­anir fjár­fest­inga­samn­ings­ins numið hátt í 60 pró­sentum af heild­ar­fjár­fest­ingu Matorku vegna verk­efn­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None