Nær öll ný störf urðu til á höfuðborgarsvæðinu

verkamenn.jpg
Auglýsing

Fjölgun nýrra starfa á íslenskum vinnu­mark­aði 2014 var nær öll á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í fyrra fjölg­aði starf­andi ein­stak­lingum um 2.800 frá fyrra ári og þar af fjölg­aði þeim um 2.400 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en 400 á lands­byggð­inni. Skipt­ingin er mun ójafn­ari en árið 2013, þegar starf­andi fólki ­fjölg­aði um 5.800 og þar af um 3.300 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 57 pró­sent aukn­ing­ar­inn­ar.















































Hvar fjölg­aði störf­um? Árið 2013 Árið 2014
Starf­andi fjölg­aði um 5800 2800
     Þar af á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 3300 (57%) 2400 (86%)
     Þar af utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins 2500 (43%) 400 (14%)


Starf­andi fólki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölg­aði um 2,1 pró­sent í fyrra og voru að með­al­tali 115.200 manns starf­andi. Á Lands­byggð­inni fjölg­aði starf­andi um 0,6 pró­sent og voru að með­al­tali 62.500 manns starf­andi. Á graf­inu hér fyrir neðan sést hvernig fjöldi starf­andi hefur þró­ast á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ann­ars vegar og á lands­byggð­inni hins vegar (utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins). Starf­andi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru rúm­lega 20 pró­sent fleiri en um alda­mótin 2000. Á sama tíma hefur starf­andi aðeins fjölgað um tæp þrjú pró­sent utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

 

Fjöldi starf­andi 2000 til 2014 | Create infograp­hics

Línu­ritið hér að neðan sýnir síðan hvernig fjölgun starfa hefur breyst frá ári til árs en störfum hefur fjölgað frá 2011.

Auglýsing


Nær öll fjölgun í ferða­þjón­ustu



Í kjöl­far birt­ingar Hag­stof­unnar á Vinnu­mark­aðs­rann­sókn 2014 greindi Morg­un­blaðið frá því að nær öll fjölgun starf­andi á árinu hafi verið innan ferða­þjón­ust­unnar, eða um 2.700 störf af þeim 2.800 störfum sem fjölg­unin nam, sam­kvæmt grein­ingu Ólafs Más Sig­urðs­son­ar, sér­fræð­ings hjá Hag­stof­unni.

Í því ljósi er athygl­is­vert að fjölgun starf­andi var nær öll á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða að 86 pró­sent hluta. Það verður þó að hafa í huga að fólks­fjölgun hefur verið tölu­vert meiri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en utan þess. Frá alda­mótum 2000 hefur fólki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á aldr­inum 16-74 ára (þ.e. sá aldur sem vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stof­unnar nær til) fjölgað um fjórð­ung en um 13,3 pró­sent á sama tíma á lands­byggð­inni.

ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None