Það fyrirsjáanlegasta af öllu fyrirsjáanlegu

9954308386_52a5d51e0a_z-1.jpg
Auglýsing

Grein­endur eru nú farnir að sjá, það sem blasti við að gæti ger­st, eftir að íslensk stjórn­völd ákváðu að fara út í for­dæma­lausar aðgerðir til þess að lækka hús­næð­is­skuldir sumra Íslend­inga um sam­tals 80 millj­arða króna. Það sem nú er byrjað ger­ast er það, að pen­ing­arnir úr rík­is­sjóði eru farnir að kynda undir hækkun fast­eigna­verðs, sem síðan fer út í verð­bólg­una. Sem svo hækkar skuld­irnar sem mark­miðið var að lækka.

Fast­eigna­verð hefur á þremur mán­uð­um, eftir að til­kynnt var um pen­inga­færsl­una úr rík­is­sjóði, hækkað um 4,2 pró­sent að raun­virði, sem er gríð­ar­lega mikið og á sér fá for­dæmi. Verð­bólgan hækk­aði úr einu pró­senti í 1,6 í mars, og þar ræður hús­næð­islið­ur­inn lang­sam­lega mestu, gríð­ar­lega hröð hækkun fast­eigna­verðs.

Óhætt er að segja að þessi áhrif hafi verið fyr­ir­sjá­an­leg, svo ekki sé fastar að orði kveð­ið, og varla til sá hag­fræð­ingur sem yfir þetta lagð­ist, sem var­aði ekki við því að þessi aðgerð gæti farið beint út í verð­lag og þannig verið sóun á opin­beru fé.

Auglýsing

Þeir sem hafa gagn­rýnt þessar aðgerð­ir, meðal ann­ars Kjarn­inn í rit­stjórn­ar­skrif­um, hafa oft verið settir niður í flokkspóli­tísk hólf. Að því er virð­ist til þess að koma í veg fyrir að stað­reyndir um þessa aðgerð fáist rædd­ar, og auð­velda þannig póli­tíska bar­daga.

Bless­un­ar­lega hefur fólk séð í gegnum þetta, eins og kann­anir hafa sýnt, og myndað sér skoðun á þess­ari aðgerð án þess að vera með flokkspóli­tísk gler­augu. Fylgið hefur verið að tæt­ast af stjórn­ar­flokk­unum allt frá til­kynnt var um aðgerð­irn­ar, einkum Fram­sókn­ar­flokkn­um. Lík­lega bjóst Fram­sókn­ar­fólk ekki við því að það myndi ger­ast.

Alþingi bíður nú eftir því að fá að sjá skýrslu um þessa aðgerð, þar sem fram mun koma, í fyrsta skipti, hvaða fólk eða hópar það eru sem eru að fara fá þessa 80 millj­arða úr rík­is­sjóði, á tímum erf­ið­leika í opin­berum fjár­mál­um, mik­illa opin­berra skulda og hárra skatta. Það hafa komið fram upp­lýs­ing­ar, sem virð­ast sýna að tugir millj­arða króna muni renna til efna­fólks sem hefur ekk­ert með pen­ing­ana að gera, á sama tíma heil­brigð­is­þjón­usta er óvið­un­andi og aðstoð til þeirra sem eiga ekki fast­eign er lítil sem eng­in. Allt verður þetta að telj­ast með ólík­ind­um, og verður því ekki trú­að, að svona sé þetta í reynd, fyrr en það hefur verið stað­reynt með gögn­um.

Þessi gögn þarf að setja upp á yfir­borð­ið, hratt og örugg­lega.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None