Þekking á verðbréfamörkuðum veitir mikilvægt aðhald

baldurT.png
Auglýsing

Það eru ekki ein­göngu mik­il­vægt að fjár­festar séu upp­lýstir um hvernig verð­bréfa­mark­aðir virka og hvernig skráð félög starfa. Lands­menn allir eru ýmist beinir eða óbeinir þátt­tak­endur á verð­bréfa­mark­aði og grunn­þekk­ing á verð­bréfa­mörk­uðum veitir nauð­syn­legt aðhald. Þetta sagði Baldur Thor­laci­us, for­stöðu­maður eft­ir­lits­sviðs Kaup­hall­ar­inn­ar, í fyr­ir­lestri á Popup ráð­stefnu í til­efni af Alþjóð­legri viku fjár­mála­læsis fyrir helgi. „Við erum öll þátt­tak­endur í gegnum líf­eyr­is­sjóðs­kerf­ið,“ benti Baldur á.

Hann líkti verð­bréfa­mark­að­inum við lýð­ræði. „Lýð­ræðið virkar ekki nema fólk nýti rétt sinn og kjósi. Sama gildir á verð­bréfa­mark­aði, fyrir bæði beina og óbeina þátt­tak­end­ur. Því fleiri sem kynna sér mál­in, skoða hlut­ina og til­einka sér gagn­rýna hugs­un, því skil­virk­ari og dýpri verður mark­að­ur­inn.“

Auglýsing

Fjár­festa­verndin nýt­ist ekki öðr­vísi

Baldur hóf mál sitt á að útskýra fjár­festa­vernd og þær ströngu reglur sem ríkja um verð­bréfa­við­skipti. Regl­urnar segi til um hvernig upp­lýs­ingar birtast og hvar þær séu aðgengi­leg­ar. Ann­ars vegar sé um að ræða upp­lýs­ingar sem sýni áhuga ann­arra fjár­festa á til­teknum verð­bréfum og hins vegar séu það upp­lýs­ingar frá skráðum félögum eða stofn­unum á mark­aði. „Það eru stífar laga­kröfur um að upp­lýsa um allt sem við­kemur mati á virði verð­bréf­anna. Þessar upp­lýs­ingar eiga að vera aðgengi­legar í raun­tíma,“ útskýrði Bald­ur.



„Fjár­festa­verndin sem felst í þessu nýt­ist ekki nema við höfum þekk­ingu til þess að nota hana og gefum okkur tíma til þess að meta upp­lýs­ing­arn­ar.“ Hann mælti með því að fólk sæki þau nám­skeið og fyr­ir­lestra sem bjóðast, auk þess sem finna megi mikið af ókeypis fræðslu­efni á net­inu. „Og ef fólk hefur áhuga á að fjár­festa þá er mik­il­vægt að afla sér upp­lýs­inga um félög­in, bæði frá fyr­ir­tækj­unum sjálfum og í fjöl­miðl­u­m.“



Aftur á móti sé það vanda­samt verk að fjár­festa og að gera þurfi grein­ar­mun á gæðum fyr­ir­tækis og gæðum fjár­fest­ing­ar. Stundum geti verð hluta­bréfa í stönd­ugum fyr­ir­tækjum verið of hátt og það lækk­að, jafn­vel þótt fyr­ir­tækið sé áfram gott og vel rek­ið. Ekki sé heldur nægi­legt að kynna sér upp­lýs­ingar um fyr­ir­tækið og mark­aði í upp­hafi fjár­fest­ing­ar, heldur þurfi jafn­framt að fylgj­ast með mögu­legum breyt­ing­um.



„Þetta er ekki ein­falt fyrir ein­stak­linga og því er það kostur að velja fjár­fest­inga­sjóði eða eigna­stýr­ing­ar­fé­lög. En þá komum við aftur inn á þetta, það er mik­il­vægt að búa yfir ákveð­inni grunn­þekk­ingu til þess að geta veitt sjóð­unum aðhald.“



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None