Bók Eggerts Skúlasonar: Fyrrum starfsmaður FME vildi selja Hreiðari Má skýrslu fyrir 30 milljónir

hreidar-mar.jpg
Auglýsing

Í bók Egg­erts Skúla­son­ar, And­er­sen skjölin – rann­sóknir eða ofsókn­ir?“, er sagt frá því að þáver­andi starfs­manður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins hafi boð­ist til þess að afhenda Hreið­ari Má Sig­urðs­syni, fyrrum for­stjóra Kaup­þings, og lög­manni hans skýrslu eft­ir­lits­ins um meinta mark­aðs­mis­notkun Kaup­þings sem hafði verið send til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Hann vildi frá 30 millj­ónir króna fyrir gögn­in. Hreiðar Már hitti mann­inn á bíla­stæði við Árbæj­ar­kirkju í sept­em­ber 2011 til að fara yfir mál­ið. Þar á mað­ur­inn að hafa sýnt honum skýrsl­una á tölvu sinni en hún hafi orðið straum­laus skömmu eftir að lestur hófst. Hreiðar Már hitti mann­inn ekki aftur og keypti ekki skýrsl­una.

Frá þessu er greint í DV í dag en Egg­ert, höf­undur bók­ar­inn­ar, er rit­stjóri blaðs­ins.

Þessa dag­anna stendur yfir aðal­með­ferð í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings. Þar er Hreiðar Már á meðal sak­born­inga. Hann var dæmdur til fimm og hálfs árs fang­els­is­vistar í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða fyrr á þessu ári, meðal ann­ars fyrir mark­aðs­mis­notk­un.

Auglýsing

Átti að sýna fram á sjón­ar­mið um sak­leysi



Í frétt DV um bók Egg­erts segir að inni­hald skýrsl­unnar hafi átt að sýna fram á ýmis sjón­ar­mið sem styddu við þá skoðun að stjórn­endur Kaup­þings hefðu ekki gerst sekir um mark­aðs­mis­notk­un. Í bók­inni segir að þeim atriðum hafi hins vegar „öllum verið eytt út í loka­út­gáf­unni sem send var sér­stökum sak­sókn­ara.“

Bæði Hreiðar Már og Hörður Felix Harð­ar­son, lög­maður hans, stað­festa þessa frá­sögn sam­kvæmt DV. Höf­undur bók­ar­innar náði hins vegar ekki tali af fyrrum starfs­manni Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem vildi selja skýrsl­una á 30 millj­ón­ir, að því er kemur fram í bók­inni.

Í DV kemur fram að starfs­mað­ur­inn fyrr­ver­andi hafi átt frum­kvæði að því að hitta Hreiðar Má. Í bók­inni seg­ir: „Hörður tók erind­inu vel og hitt­ust þeir nokkru síð­ar. Þar kvaðst mað­ur­inn hafa í fórum sínum gögn sem myndu hjálpa skjól­stæð­ingi Harð­ar, Hreið­ari Má, en hann vildi fá 30 millj­ónir króna fyrir þau. Mað­ur­inn vildi lítið segja um efni þess­ara gagna annað en að þau gætu nýst í málsvörn­inni sem framundan væri vegna ákæru sér­staks sak­sókn­ara í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli á hendur nokkrum fyrr­ver­andi starfs­mönnum Kaup­þings, þeirra á meðal Hreið­ari Má.“

Hitt­ust á bíla­stæði við Árbæj­ar­kirkju



Hörður Felix til­kynnti mann­inum að athæfið væri ólög­legt og hann gæti því ekki verið milli­göngu­maður í mál­inu. Hreiðar Már ákvað hins vegar að hitta mann­inn. „Hreiðar Már trúði vart eigin eyr­um. Hann segir að það hafi verið mjög stór ákvörðun að vega og meta hvort hann ætti að freista þess að hitta mann­inn en úr varð að þeir gerðu það. Upp­ljóstr­ar­inn lagði til að fund­ur­inn færi fram að kvöld­lagi og skyldu þeir hitt­ast á bíla­stæðum við Árbæj­ar­kirkju. Hreið­ari Má fannst þetta allt að því súr­r­eal­ískt og minnti hann á atriði úr kvik­mynd. Skil­yrði var að Hreiðar Már kæmi yfir í bíl­inn til manns­ins.“ 

Síðan segir að Hreiðar Már hafi hitt mann­inn á bíla­stæði við Árbæj­ar­kirkju klukkan tíu í sept­em­ber 2011.

„Hreiðar Már lagði bíl sínum í annarri röð svo að nokkuð var á milli bíl­anna. Því næst gekk hann yfir að bíl upp­ljóstr­ar­ans og sett­ist í fram­sæt­ið, far­þega­meg­in. Mað­ur­inn var tauga­ó­styrkur og Hreiðar Már við­ur­kennir að hann hafi sjálfur sveifl­ast á milli þess að vera undr­andi og smeyk­ur. Fyrst sagð­ist mað­ur­inn vera ósáttur við vinnu­brögð Fjár­mála­eft­ir­lits­ins vegna skýrsl­unnar um meinta mark­aðs­mis­notkun Kaup­þings, sem hefði verið send til sér­staks sak­sókn­ara.“

Mað­ur­inn sagði að skýrslan væri með rekj­an­legum breyt­ingum (e. track changes). Sam­kvæmt DV komu fram þar sjón­armð sem „styddu við að ekki hefði verið um mark­aðs­mis­notkun að ræða en að þau atriði hefðu aftur á móti ekki fylgt með í loka­út­gáfu skýrsl­unnar til sér­staks sak­sókn­ara.“

Mað­ur­inn á síðan að hafa sýnt Hreið­ari Má skýrsl­una í aft­ur­sæti bif­reiðar sinn­ar. Í DV seg­ir: „Um leið og mað­ur­inn opn­aði tölv­una sá Hreiðar að þetta var skýrsla Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem send var til sér­staks sak­sókn­ara vegna meintrar mark­aðs­mis­notk­unar Kaup­þings. Hreiðar Már var rétt byrj­aður að skoða skýrsl­una þegar tölvan varð straum­laus. Við svo búið kvaddi Hreiðar Már mann­inn.“

Hreiðar Már hitti mann­inn ekki aftur og sam­kvæmt DV veit hann enn ekki hvert inni­hald gagn­anna er.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None