Topp 5: Bestu umhverfishlaðvörpin

14357008609_02a6087907_z.jpg
Auglýsing

Hlað­varp (e. podcast) ætti, eitt og sér, að vera eina ástæðan fyrir því að eiga snjall­síma. Íslend­ingar virð­ast vera búnir að upp­götva þennan frá­bæra mið­il, til að mynda hafa frétta­síður lands­ins tekið upp á því að búa til skemmti­lega hlað­varps­þætti.

Hlað­varp er frá­bær mið­ill til þess að nálg­ast skemmti­legt og ekki síst fræð­andi efni um það sem þú hefur áhuga á. Sjálfur hef ég mik­inn áhuga á umhverf­is­málum og fór því að leita að hlað­varps­þáttum þeim tengd­um. Einn góðan veð­ur­dag á Horna­firði (þeir eru það reyndar flest­ir) varð ég svo upp­num­inn af snilld­inni sem ómaði í eyrum mér, að ég sá mig til­neyddan til að deila þeim með öll­um.

Auglýsing


Í til­efni af degi jarðar ætla ég að deila með ykkur bestu umhverf­is­hlað­vörp­unum að mínu mati.

5. Radio Ecos­hock 

Í þessum þáttum talar þátta­stjórn­and­inn Alex Smith við hina ýmsu fræð­inga og aktí­vista á svið umhverf­is­mála. Aðal­um­fjöll­un­ar­efnið í þessum þáttum er hnatt­ræn hlýnun og nið­ur­stöður vís­inda­manna í rann­sóknum þeim tengd­um.

4. Nat­ure Podcast

Hlað­varp á vegum tíma­rits­ins Nat­ure. Þar er fjallað um það helsta sem er í tíma­rit­inu í hverri viku. Þarna eru einnig við­töl við vís­inda­menn og frétta­skýr­ingar frá vís­inda­blaða­mönnum um allan heim.

3. Liv­ing Planet

Þýskt umhverf­is­hlað­varp, örvæntið ekki, þetta er á ensku. Þátt­ur­inn hefur hlotið verð­laun fyrir umfjöllun sína. Þeir taka fyrir mál­efni tengd umhverf­inu alls staðar að úr heim­in­um, bæði ógnum er steðja að því, sem og því sem vel er gert.

2. Liv­ing on Earth

Banda­rískur umhverf­is­frétta­þátt­ur. Þessi þáttur bindur umfjöllun sína aðal­lega við mál­efni tengd Norð­ur-, Mið- og Suður Amer­íku en það slæð­ast þó oft með önnur alþjóð­leg mál. Þessir þættir hafa hlotið nokkurn fjölda verð­launa.

1. Cost­ing the Earth

BBC hið breska á heið­ur­inn af þessu podcasti og því besta. Tölu­vert er fjallað um mál­efni tengt umhverf­is­málum í Bret­landi, s.s. London sem reið­hjóla­borg og bar­átt­una við hina fram­andi  grá íkorna. Þeir ferð­ast þó einnig um heimin og segja frá aðkallandi vand­málum sem og hugs­an­legum lausn­um. Rétt er að geta þess að Ísland var til umfjöll­unar þann 15. febr­úar s.l.



Þessi listi er langt frá því að vera heil­agur og ef að fólk saknar ein­hvers hlað­varps­þáttar endi­lega tweet­ið, face­bookið eða hrein­lega gerið annan pistil. Mér þykir það mjög miður að ekk­ert umhverf­is­hlað­varp hafi verið sett á lag­irnar hér á landi og skora ég á áhuga­sama að stofna slíkt. Það gæti þó aldrei farið svo að und­ir­rit­aður geri umhverf­is­hlað­varp.



Höf­undur er verk­efna­stjóri Jökla­leið­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None