Mjög strangtrúaðir gyðingar aftur komnir í stjórn í Ísrael

h_51896576-1.jpg
Auglýsing

Benja­min Net­anjahú hefur tek­ist að mynda nýja rík­is­stjórn í Ísra­el, meðal ann­ars með hjálp flokka mjög strang­trú­aðra gyð­inga. Sam­steypu­stjórn for­sæt­is­ráð­herr­ans er mjög tæp, með 61 þing­sæti af 120 sætum í þing­inu. AP frétta­stofan greinir frá þessu.

Strang­trú­aðir gyð­ingar í flokk­unum Shas og United Torah Juda­ism, hafa verið í stjórn­ar­and­stöðu und­an­farin tvö ár, en vegna hlut­falls­kerf­is­ins í Ísr­ael hafa þeir notið áhrifa umfram fylgi. Þeir hafa því oft verið í þeirri stöðu að verja rík­is­stjórnir og tryggja þeim meiri­hluta í þing­inu. Vegna stöðu sinnar hafa þeir fengið í gegn ýmsar und­an­þágur fyrir strang­trú­aða, eins og und­an­þágu frá ann­ars lög­bund­inni her­skyldu. Þeir hafa líka fengið háar fjár­hæðir frá rík­inu í sér­stakt skóla­kerfi sitt, þar sem mikil áhersla er lögð á að kenna trúna, en ekki mikil áhersla á stærð­fræði, ensku eða tölvu­kunn­áttu. Þessar und­an­þágur og sér­staka kerfi hefur lengi valdið úlfúð meðal ann­arra.

Frá­far­andi rík­is­stjórn lands­ins sam­þykkti lög sem mið­uðu að því að breyta þessu. Nú er hins vegar komin til valda rík­is­stjórn sem mun stöðva breyt­ing­arnar strax.

Auglýsing

Rík­is­stjórn­ar­sam­starfið hefur verði gagn­rýnt tals­vert, bæði innan og utan raða flokks Net­anja­hús. Hann er tal­inn hafa gert var­huga­verð sam­komu­lag við aðra flokka sem muni kosta ríkið hund­ruð millj­óna dala. Utan­rík­is­ráð­herr­ann Avigdor Lieberman neitar til dæmis að taka sæti í þess­ari rík­is­stjórn, og segir að hann geti ekki sætt sig við áfram­hald­andi und­an­þágur til handa strang­trú­uð­um.

Mjög strang­trú­aðir eru um átta pró­sent af átta millj­ónum Ísra­els­manna. Atvinnu­leysi er meira meðal þeirra en ann­arra hópa, og aðal­lega meðal karla sem fá bætur frá rík­inu og stunda trú­ar­legt nám. Und­an­farið hefur hins vegar atvinnu­þátt­taka þessa hóps aukist, þannig að 70% kvenna eru í vinnu og 45% karla. Sér­fræð­ingar eru sam­mála um að ef atvinnu­þátt­taka þess­ara karla eykst ekki umtals­vert muni það þýða mikla kreppu í ísra­elsku efna­hags­lífi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None