55,4 prósent aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins myndu annað hvort fækka starfsfólki eða hækka verð á vörum og þjónustu verulega ef kröfur Starfsgreinasambands Íslands ná fram að ganga. Þetta segja Samtök atvinnulífsins, en þau hafa látið gera könnun meðal aðildarfyrirtækja sinna.
43,5% stjórnenda sem voru spurðir gera ráð fyrir að fækkun starfsfólks verði á bilinu 5-15%. 31% gera ráð fyrir að fækkun starfsfólks verði á bilinu 16-30% og 10% gera ráð fyrir að fækka fólki um 31-50%. Þá sögðu 4,8% stjórnenda að þeir geri ráð fyrir að hætta starfsemi ef kröfur um 50 til 70 prósenta launahækkun verði að veruleika.
24 þúsund starfsmenn starfa hjá fyrirtækjunum sem tóku þátt í könnuninni. „Þegar mat stjórnenda fyrirtækjanna á þeirri fækkun starfsmanna sem muni hljótast af 50-70% launahækkun á þremur árum er vegið saman með starfsmannafjölda fyrirtækjanna fæst að starfsmönnum þessara fyrirtækja muni fækka um 14%, eða um 3.400. Sé sú niðurstaða yfirfærð á almenna vinnumarkaðinn í heild fæst að starfsmönnum gæti fækkað um 16.000,“ segir í tilkynningu SA.
Þá voru stjórnendur þessara fyrirtækja spurðir um mat sitt á hækkun verðlags. 86 prósent þeirra sögðust þurfa að hækka verðlag. „Flestir (39%) gera ráð fyrir því að verðlag hækki um 5-15%, tæpur þriðjungur (31%) telur verðlag hækka um 16-30%, tæpur fimmtungur (18%) gerir ráð fyrir því að verðlag hækki um 31-50% og 9% gera ráð fyrir að verðlag hækki um meira en 50%. Aðeins tæp 3% segja að verðlag muni hækka innan við 5%.“
Könnunin varð gerð meðal aðildarfyrirtækja SA 12. til 15. maí og fjöldi svarenda var 395.